Safnanefnd, fundur 1
11. september 2018, kl. 16:00 til 17:15, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Pétur Sörenson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Kamma Dögg Gísladóttir, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Sigríður Hrönn Gunnarsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Pétur Þór Sörensson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 4 liður 9
Fundargerð safnanefndar nr. 1 frá 11.september 2018, lögð fram til samþykktar.
Bæjarráð, fundur 581 liður 17
Fundargerð safnanefndar frá 11. september 2018 lögð fram til umfjöllunar.
Bæjarstjórn, fundur 254 liður 11
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð safnanefndar frá 11. september sl. staðfest með 8 atkvæðum utan liðar 5.
Dagskrá
-
1. Erindisbréf safnanefndar
Mál 1806133 Allur ferill málsins
Lagt fram og farið yfir erindisbréf nefndarinnar.
Jafnframt var farið yfir vinnulag nefndarinnar, fundartíma og fleira.
Nefndin fór yfir erindisbréfið og gerir engar athugasemdir.
-
2. Stofnun Safnaráðs Neskaupstaðar - gögn síðan 2008
Mál 1401192 Allur ferill málsins
Umræða um málefni Safnaráðs Neskaupstaðar.
Safnanefnd mun skoða málefni safnaráðs á næstu fundum.
-
3. Afhending plöntusafns Náttúrugripasafnsins í Neskaupstað til varðveislu á Náttúrufræðistofnun Íslands
Mál 1808057 Allur ferill málsins
Náttúrustofa Austurlands óskar eftir heimild til að afhenda Náttúrfræðistofnun Íslands plöntusafn Hjörleifs Guttormssonar. Búið er ræða við Hjörleif Guttormsson og er hann samþykkur því að safnið verði afhent Náttúrufræðistofnun Íslands. Safnanefnd leggur því til við menningar- og nýsköpunarnefnd að plöntusafnið verð afhent Náttúrufræðistofnun Íslands.
-
4. Stjórn Héraðsskjalasafns Austfirðinga.
Mál 1806161 Allur ferill málsins
Stjórn Héraðsskjalasafns Austfirðinga. Samkvæmt stofnsamningi Héraðsskjalasafns Austfirðinga og eftir tilnefningu safnanefndar skipar bæjarstjórn aðal- og varafulltrúa í stjórn safnsins og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar.
Ævar Ármannsson er tilnefndur sem aðalmaður og Kamma Dögg Gísladóttir sem varamaður í stjórn Héraðsskjalasafnsins. Tilnefningum er vísað til bæjarstjórnar.
-
5. Stjórn Sjóminjasafns Austurlands.
Mál 1806162 Allur ferill málsins
Stjórn Sjóminjasafns Austurlands. Bæjarstjórn skipar fulltrúa í stjórn Sjóminjasafns Austurlands samkvæmt stofnsamningi þess og eftir tilnefningu safnanefndar.
Gunnar Jónsson er tilnefndur sem aðalmaður og Kömmu Dögg Gísladóttir sem varamaður í stjórn Sjóminjasafns Austurlands. Tilnefningum er vísað til bæjarstjórnar.
-
6. Stjórn Sjóminja- og smiðjumunasafns Jósafats Hinrikssonar
Mál 1806163 Allur ferill málsins
Stjórn Sjóminja- og smiðjumunasafns Jósafats Hinrikssonar. Bæjarstjórn skipar fulltrúa í stjórn safnsins samkvæmt stofnsamningi þess og eftir tilnefningu safnanefndar.
Jón Björn Hákonarson er tilnefndur sem aðalmaður og Pétur Sörensson sem varamaður í stjórn Sjóminja- og smiðjusafn Jósafats Hinrikssonar. Tilnefningum er vísað til bæjarstjórnar.
Safnanefnd ræddi framtíð sjálfseignarstofnunar Sjóminja- og smiðjumunasafns Jósafats Hinrikssonar og mun taka það fyrir á næstu fundum.