Fræðslunefnd, fundur 60
25. september 2018, kl. 16:30 til 18:23, í Molanum fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
- Aðalbjörg Guðbrandsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Bryndís Guðmundsdóttir, áheyrnarfulltrúi
- Þóroddur Helgason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 581 liður 13
Fundargerð fræðslunefndar nr. 60 frá 25. september 2018 lögð fram til umfjöllunar.
Bæjarstjórn, fundur 254 liður 5
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Jens Garðar Helgason.
Fundargerð fræðslunefndar frá 25. september sl. staðfest með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2019
Mál 1809012 Allur ferill málsins
Unnið við gerð starfs- og fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019. Vinna við gerð launaáætlunar er langt komin og framundan er vinna í skólunum við aðra liði en launaliði. Frekari vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun frestað til næsta fundar.
-
2. Samstarf Menningarstofu við skóla í Fjarðabyggð
Mál 1809136 Allur ferill málsins
Karna forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar mætti til fundarins og gerði grein fyrir samstarfi við skóla Fjarðabyggðar haustið 2018 og varpaði fram hugmyndum um frekara samstarf Menningarstofu og skólanna. Meðal annars var rætt um styrkingu tónmenntarkennslu í leikskólum og samstarf starfandi listamanna við skólana í Fjarðabyggð.