Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 61

9. október 2018, kl. 16:00 til 18:50, í Molanum fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Alma Sigurbjörnsdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Bryndís Guðmundsdóttir, áheyrnarfulltrúi
  • Þóroddur Helgason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 584 liður 11

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 61 frá 9.október 2018, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 255 liður 6

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 9.október sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Lýðheilsa ungs fólks í 8.-10.b. í Fjarðabyggð 2018

    Mál 1806041 Allur ferill málsins

    Þessi liður var tekinn fyrir á sameiginlegum fundi félagsmála-, fræðslu- og íþrótta- og tómstundanefndar. Margrét Lilja Guðmundsdóttir sérfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu og kennari á íþróttafræðisviði Háskólans í Reykjavík fjallaði um niðurstöður lýðheilsurannsókna ungs fólks í Fjarðabyggð. Hún ásamt Bryndísi Jónsdóttur verkefnastjóra hjá Heimili og skóla halda opinn fund í Grunnskóla Reyðarfjarðar fyrir foreldra og elstu nemendur skólans í kvöld, þriðjudaginn 9. október. Bryndís mun þar fjalla um mikilvægi foreldra í forvörnum og 18 ára ábyrgð.

    Eftir fyrirlesturinn voru umræður.

  2. 2. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2019

    Mál 1809012 Allur ferill málsins

    Farið var yfir drög að starfsáætlun fræðslusvið 2019. Einnig var farið yfir launaáætlun og vinnu við fjárhagsáætlun, aðra rekstrarliði en launaliði. Fræðslustjóra falið að ljúka við fjárhagsáætlun í samræmi við forsendur starfsáætlunar.

  3. 3. Stúdentaskipti milli Fjarðabyggðar (Fáskrúðsfjarðar) og Gravelines

    Mál 1706147 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga að útfærslu nemenda- og starfsskipta vinabæjarins Gravelines við Fjarðabyggð. Tillögunni var vísað frá bæjarráði til kynningar í fræðslunefnd. Fræðslunefnd fagnar tillögunni og vonast til að hún eigi eftir að gagnast vel ungmennum í Fjarðabyggð.