Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 114

27. september 2018, kl. 16:00 til 17:20, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
  • Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður
  • Lára Elísabet Eiríksdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 581 liður 12

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 114 frá 27. september 2018 lögð fram til umfjöllunar.

  • Bæjarstjórn, fundur 254 liður 9

    Fundargerðir félagsmálanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 27. september sl. staðfest með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun félagagsmálanefndar 2019

    Mál 1809009 Allur ferill málsins

    Félagsmálastjóri kynnir vinnu við launa- og fjárhagsáætlun. Félagsmálanefnd samþykkir að óska eftir að einu stöðugildi verði bætt við sviðið til að sinna öldrunarmálum, sá málaflokkur fer ört stækkandi og mikilvægt að sinna honum betur.

    Nefndin óskar eftir því að bætt verði við úthlutaðan fjárhagsramma félagsmálanefndar til að mæta kostnaði til að sinna málefnum aldraðra. Þá verður unnið áfram með aðrar tillögur í samstarfi við aðrar nefndir sem tilheyra fjölskyldusviði.

    Frekari vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun frestað til næsta fundar.