Félagsmálanefnd, fundur 115
9. október 2018, kl. 16:00 til 18:10, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
- Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
- Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
- Lára Elísabet Eiríksdóttir, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 584 liður 14
Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 115 frá 9.október 2018, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 255 liður 8
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð félagsmálanefndar frá 9.október sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Lýðheilsa ungs fólks í 8.-10.b. í Fjarðabyggð 2018
Mál 1806041 Allur ferill málsins
Kynntar voru niðurstöður rannsóknar um lýðheilsu ungs fólks í Fjarðabyggð meðal nemenda í 8., 9. og 10. bekk árið 2018. Félagsmálanefnd þakkar Margréti Lilju frá Rannsóknum og Greiningu fyrir áhugaverða og gagnlega kynningu. Félagsmálanefnd felur félagsmálastjóra að útfæra aukna áherslu á forvarnir í starfsáætlun fyrir árið 2019 með hliðsjón af niðurstöðum rannsóknarinnar.
-
2. Staðfesting ráðningar og umboð til úttekta af innlánsreikningi
Mál 1810052 Allur ferill málsins
Fært í trúnaðarbók.
-
3. Staðfesting ráðningar og umboð til úttekta af innlánsreikningi
Mál 1810053 Allur ferill málsins
Félagsmálanefnd staðfestir ráðningu Ragnars Sigurðssonar kt. 081280-3539, sem framkvæmdastjóra hjúkrunarheimilanna Uppsala á Fáskrúðsfirði og Hulduhlíðar á Eskifirði. Jafnframt samþykkir nefndin að fela Ragnari prókúru fyrir Uppsali, dvalarheimili aldraðra kt. 440987-2739 og Hulduhlíð , heimili aldraðra, kt. 660691-2199 frá og með 15. október. 2018. Frá sama tíma er afturkölluð prókúruheimild Grétu Garðarsdóttur kt. 311062-3879 fyrir bæði Uppsali og Hulduhlíð.
-
4. Starfs- og fjárhagsáætlun félagagsmálanefndar 2019
Mál 1809009 Allur ferill málsins
Félagsmálastjóri kynnti yfirstandandi vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun. Vinnan við starfs- og fjárhagsáætlun er komin langt á veg. Félagsmálanefnd felur félagsmálastjóra að halda vinnunni áfram.