Félagsmálanefnd, fundur 113
18. september 2018, kl. 16:00 til 17:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
- Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
- Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
- Valdimar Másson, aðalmaður
Starfsmenn
- Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 580 liður 29
Fundargerð félagsmálanefndar frá 18. september lögð fram til umfjöllunar.
Bæjarstjórn, fundur 254 liður 8
Fundargerðir félagsmálanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð félagsmálanefndar frá 18. september sl. staðfest með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Reglur um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk
Mál 1805161 Allur ferill málsins
Framlagðar eru reglur Fjarðabyggðar um notaendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk til samþykktar í félagsmálanefnd. Félagsmálanefnd samþykkir reglurnar og vísar til samþykktar í bæjarráði.
-
2. Reglur um skammtímavistun fatlaðra
Mál 1805163 Allur ferill málsins
Framlagðar eru reglur um skammtímavistun fatlaðra til samþykktar í félagsmálnefnd. Félagsmálanefnd samþykkir reglurnar og vísar til samþykktar í bæjarráði.
-
3. Reglur um daggæslu í heimahúsum
Mál 1805155 Allur ferill málsins
Framlagðar reglur um daggæslu í heimahúsum til samþykktar í félagsmálanefnd. Félagsmálanefnd samþykkir reglurnar og vísar til staðfestingar bæjarráðs.
-
4. Reglur um félagslega heimaþjónustu
Mál 1805156 Allur ferill málsins
Framlagðar eru reglur Fjarðabyggðar um félagslega heimaþjónustu til samþykktar í félagsmálanefnd. Félagsmálanefnd samþykkir reglurnar og vísar til staðfestingar í bæjarráði.
-
5. Reglur um félagslega liðveislu
Mál 1805157 Allur ferill málsins
Framlagðar eru reglur Fjarðabyggðar um félagslega liðveislu til samþykktar í félagsmálanefnd. Félagsmálanefnd samþykkir reglurnar og vísar til staðfestingar í bæjarráði.
-
6. Álit umboðsmanns vegna húsnæðisvanda utangarðsfólks
Mál 1807056 Allur ferill málsins
Framlagt er álit umboðsmanns Alþingis um húsnæðismál utangarðsfólks, þar sem beint er tilmælum til sveitarfélaga að fara yfir þau mál sem fjallað er um í VI kafla og sveitarfélögin hugi að því hvernig þau rækja þær skyldur sem lög leggja á þau að þessu leyti. Kynnt í félagsmálanefnd.
-
7. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2019
Mál 1808019 Allur ferill málsins
Framlagt er minnisblað fjármálastjóra um tillögu að úthlutun ramma að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2019. Framlögð er einnig starfsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2018 til upplýsinga fyrir félagsmálanefnd.
Fjármálastjóri kynnti tillögu að úthlutun ramma. Félagsmálanefnd vísar áframhaldandi vinnslu til félagsmálastjóra.
-
8. Starfs- og fjárhagsáætlun félagagsmálanefndar 2019
Mál 1809009 Allur ferill málsins
Framlagt er bréf fjármálastjóra um fjárheimildir nefndarinnar árið 2019 ásamt minnisblaði félagsmálastjóra og tillögu að skipulagi félagsþjónustuhluta fjölskyldusviðs.
Félagsmálanefnd hefur áhyggjur af þvi að ekki náist að uppfylla skyldur félagsþjónustu með þeim ramma sem úthlutað hefur verið og felur félagsmálastjóra að kortleggja verkefni félagsþjónustu og meta kostnað við umbætur.
-
9. Starfs- og fjárhagsáætlun barnaverndarnefndar 2019
Mál 1809010 Allur ferill málsins
Framlagt er bréf fjármálastjóra til barnaverndarnefndar um fjárheimildir nefndarinnar í fjárhagsáætlun 2019. Kynnt í félagsmálanefnd.