NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 5
8. október 2018, kl. 16:30 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Magni Þór Harðarson, formaður
- Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
- Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Anna Þórhildur Kristmundsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Pétur Þór Sörensson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 584 liður 12
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 5 frá 8.október 2018, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 255 liður 5
Enginn tók til máls.
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 8.október sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Umsókn um styrk til fornleifarannsókna í Stöð á Stöðvarfirði
Mál 1808092 Allur ferill málsins
Bréf Björgvins Vals Guðmundssonar, f.h. Félags áhugafólks um fornleifarannsóknir á Stöðvarfirði, er varðar beiðni um allt að tíu milljóna kr. styrk til að hægt sé að vinna áfram að og hraða fornleifarannsóknum í Stöð. Vísað til menningar- og nýsköpunarnefndar frá bæjarráði. Menningar- og nýsköpunarnefnd hefur ekki tök á að hækka styrkfjárhæð milli ára, en mun áfram styrkja verkefnið um 1 milljón á næsta ári. Jafnframt er atvinnu- og þróunarstjóra og forstöðumanni menningarstofu, falið að kanna með mögulega styrki og aðstoð í tengslum við verkefnið og aðstoða félag áhugafólks um fornleifarannsóknir við gerð styrkumsókna.
-
2. Málefni Sköpunarmiðstöðvarinnar 2018
Mál 1808065 Allur ferill málsins
Bæjarráð vísaði beiðni Sköpunarmiðstöðvarinnar um fjárframlag á næstu árum til fjárhagsáætlunargerðar 2019. Beint fjárframlag Fjarðabyggðar til Sköpunarmiðstöðvarinnar er í dag tvær milljónir kr., auk styrks í formi fasteignagjalda sem eru ríflega tvær milljónir kr. á árinu 2018. Framlag Fjarðabyggðar er því ríflega fjórar milljónir kr. á ári til Sköpunarmiðstöðvarinnar. Samband sveitarfélaga á Austurlandi hefur sent inn umsókn vegna úthlutunar samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaátlunar fyrir árin 2018 - 2024. Lögð fram viljayfirlýsing Fjarðabyggðar vegna mótframlags í tengslum við umsóknina.
-
3. Fjárhagsáætlun og rekstrarframlög 2019 - Héraðsskjalasafn Austfirðinga
Mál 1808085 Allur ferill málsins
Framlögð yfirlit yfir fjárhagsáætlun Héraðsskjalasafns Austfirðinga og rekstrarframlög til safnsins á árinu 2019. Farið yfir málefni safnsins með forstöðumanni. Menningar- og nýsköpunarnefnd felur forstöðumanni safnastofnunar að kalla eftir nánari upplýsingum frá Héraðsskjalsafni um verkefnastöðu safnsins og hlutverk nýs starfsmanns í tengslum við beiðni um aukið framlag til safnsins á árinu 2019.
-
4. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 2019
Mál 1809013 Allur ferill málsins
Framhaldið vinnu við gerð starfs- og fjárhagsáætlunar 2019. Gert er ráð fyrir að rekstrarniðurstaða málaflokks menningarmála verði um 234 milljónir. Lögð hafa verið fram drög að starfsáætlun ársins 2019 og drög að sundurliðun á fjárhagsramma málaflokksins. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir drög að starfsáætlun og fjárhagsáætlun fyrir árið 2019 og vísar til afgreiðslu bæjarráðs. Nefndin vill þó hafa þann fyrirvara á samþykkt sinni að ekki hefur verið tekin afstaða til beiðni Héraðsskjalasafns Austfirðinga um aukið framlag til safnsins á næsta ári sbr. 3.lið fundargerðar.
-
5. Stúdentaskipti milli Fjarðabyggðar (Fáskrúðsfjarðar) og Gravelines
Mál 1706147 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til kynningar í menningar- og nýsköpunarnefnd, tillögu að útfærslu nemenda- og starfsskipta vinabæjarins Gravelines við Fjarðabyggð. Bæjarráð staðfesti tillögurnar.
-
6. Græn atvinnustarfsemi
Mál 1810030 Allur ferill málsins
Umræða um græna atvinnustarfsemi og valkosti sem geta fallið að nýsköpun í samfélaginu og atvinnulífinu í Fjarðabyggð. Formaður gerði grein fyrir hugmyndum. Menningar- og nýsköpunarnefnd óskar eftir að atvinnu- og þróunarfulltrúi taki saman minnisblað sem tekið verði fyrir á næsta fundi.