Fjárhagsáætlun og rekstrarframlög 2019 - Héraðsskjalasafn Austfirðinga
Mál 1808085 Fyrst á dagskrá 8. október 2018, síðast 13. desember 2018. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Menningar- og nýsköpunarnefnd.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2018
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 5 liður 3
Framlögð yfirlit yfir fjárhagsáætlun Héraðsskjalasafns Austfirðinga og rekstrarframlög til safnsins á árinu 2019. Farið yfir málefni safnsins með forstöðumanni. Menningar- og nýsköpunarnefnd felur forstöðumanni safnastofnunar að kalla eftir nánari upplýsingum frá Héraðsskjalsafni um verkefnastöðu safnsins og hlutverk nýs starfsmanns í tengslum við beiðni um aukið framlag til safnsins á árinu 2019.
-
Bæjarstjórn, fundur 255 liður 5.3
Fundargerðin „Menningar- og nýsköpunarnefnd - 5“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 592 liður 12
Bréf forstöðumanns Héraðsskjalasafns Austfirðinga þar sem óskað er eftir að bæjarráð endurskoði ákvörðun um framlag til safnsins á árinu 2019. Bæjarráð stendur við fyrri ákvörðun sína.
-
Bæjarstjórn, fundur 259 liður 2.12
Fundargerðin „Bæjarráð - 592“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.