Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 592

10. desember 2018, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jens Garðar Helgason, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 259 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 591 og nr. 592 teknar til afgreiðslu saman. Til máls tóku Eydís Áabjörnsdóttir, Jens Garðar Helgason, Sigurður Ólafsson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, Einar Már Sigurðarson og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 592 frá 10.desember 2018, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2018 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1805053 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri lagði fram málaflokkayfirlit yfir rekstur og fjárfestingar janúar - október 2018, skatttekjur og launakostnað fyrir janúar - nóvember 2018.

  2. 2. Fjárhagsstaða Uppsala 2018

    Mál 1811186 Allur ferill málsins

    Uppsalir hafa fengið 30 m.kr. að láni frá bæjarsjóði vegna hallarekstrar. Ljóst er að heimilið þarf um 5 m.kr. til viðbótar á þessu ári. Verulegur árangur hefur náðst í lækkun rekstrarkostnaðar og hækkun tekna og eru líkur til að óbreyttu geti heimilið staðið undir reglubundnum útgjöldum á næsta ári. Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna hefur samþykkt að óska eftir viðbótarfjárframlagi frá bæjarsjóði. Bæjarráð samþykkir 5 milljóna framlag til Uppsala. Jafnframt vísað til kynningar í félagsmálanefnd.

  3. 3. Lundargata 1 Reyðarfirði - sala

    Mál 1811199 Allur ferill málsins

    Framlagður kaupsamningur um fasteignina Lundargötu 1 á Reyðarfirði - Félagslundur. Bæjarráð samþykkir kaupsamnning og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.

  4. 4. Eignfærsla viðbyggingar við leikskólann Lyngholt

    Mál 1810209 Allur ferill málsins

    Framlagður húsaleigusamningur milli Fjarðabyggðar og Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf., um stækkun leikskólans Lyngholts, ásamt gögnum vegna umsóknar um skráningu stækkunarinnar, fyrir frjálsa og sértaka skráningu eigna á virðisaukaskattsskrá. Bæjarráð samþykkir húsaleigusamning og frjálsa og sérstaka skráningu, sbr. framlögð gögn.

  5. 5. Fjárhagsáætlun 2018 - viðauki 6

    Mál 1812022 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri leggur fram viðauka nr. 6 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2018, um tilfærslur milli Eignasjóð og Eignarhaldsfélagsins Hrauns, úthlutun símenntunarpotts 2018, ákvörðun hreppsnefndar Breiðdalshrepps, framlag til hjúkrunarheimilisins Uppsala og leigusamning við Minjavernd. Handbært fé Aðalsjóðs mun lækka um 36 milljónir króna á árinu 2018 með samþykkt þessa viðauka og nema 153.156 þúsund króna í árslok 2018. Bæjarráð samþykkir viðauka nr. 6 og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.

  6. 6. Ný reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga í samráðsgátt til umsagnar

    Mál 1811044 Allur ferill málsins

    Lagður fram til kynningar útreikningur fjármálastjóra á áhrifum breytingar á skerðingarmörkum framlaga Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga samkvæmt drögum að nýrri reglugerð um sjóðinn.

  7. 7. Beiðni um styrkveitingu vegna ársins 2019

    Mál 1812023 Allur ferill málsins

    Beiðni Neytendasamtakanna um 25.000 kr. styrk á árinu 2019. Bæjarráð samþykkir að veita styrk.

  8. 8. Stefna í ferðamálum 2018 - 2025

    Mál 1811077 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar minnisblað upplýsinga- og kynningarfulltrúa um stefnumótunarvinnu í ferðaþjónustu og stefnumótunarþing sem haldið verður miðvikudaginn 12. desember. Bæjarfulltrúar eru hvattir til að sækja þingið.

  9. 9. 740 Naustahvammur 46 - umsókn um lóð

    Mál 1811158 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Rarik ohf, dagsett 23. nóvember 2018, þar sem sótt er um lóð við Naustahvamm á Norðfirði undir spennistöð.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Nefndin samþykkti jafnframt að lóðin verði númer 46 við Naustahvamm og að fengnu samþykki bæjarráðs á lóðarúthlutun verði óveruleg breyting gerð á deiliskipulagi Naust 1 þar sem gert verði ráð fyrir lóðinni. Bæjarráð samþykkir úthlutun.

  10. 10. 735 Hafnargata 5 - umsókn um lóð

    Mál 1811100 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Rarik ohf, dagsett 23. nóvember 2018, þar sem sótt er um lóð við Hafnargötu á Eskifirði undir spennistöð.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Lóðin er við Hafnargötu 10 samkvæmt tillögu að deiliskipulagi Leiru 1. Bæjarráð samþykkir úthlutun.

  11. 11. 730 Austurvegur 65 - umsókn um stækun lóðar

    Mál 1811201 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Björns Óskars Einarssonar, dagsett 30. nóvember 2018, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings og stækkun lóðar hans að Austurvegi 65 á Reyðarfirði. Samþykki nágranna liggur fyrir.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, stækkun lóðar og að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður. Endanlegri afgreiðslu vegna stækkunar lóðar er vísað til bæjarráðs. Bæjarráð samþykkir stækkun lóðar með því skilyrði að heimreið að húsinu sé innan lóðar.

  12. 12. Fjárhagsáætlun og rekstrarframlög 2019 - Héraðsskjalasafn Austfirðinga

    Mál 1808085 Allur ferill málsins

    Bréf forstöðumanns Héraðsskjalasafns Austfirðinga þar sem óskað er eftir að bæjarráð endurskoði ákvörðun um framlag til safnsins á árinu 2019. Bæjarráð stendur við fyrri ákvörðun sína.

  13. 13. Aukaaðalfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga 14. desember kl. 13

    Mál 1812041 Allur ferill málsins

    Aukaaðalfundur verður haldinn föstudaginn 14. desember kl. 13:00. Karl Óttar Pétursson bæjarstjóri mun sækja fundinn.

  14. 14. Búnaður til útvarpssendinga í veggöngum

    Mál 1712062 Allur ferill málsins

    Erindi Samgöngufélagsins frá 5.desember sl. þar sem vakin er athygli á að ekki verði séð að gert sé ráð fyrir fjármagni til uppsetningar á búnaði til útsendinga útvarps í eldri veggöngum hérlendis, né sé vitað til að vinna sé í gangi til undirbúnings uppsetningu slíks búnaðar. Bæjarráð tekur undir efni bréfsins og vísar því til upplýsingafulltrúa til skoðunar.

  15. 15. Snjallsímanotkun í grunnskólum Fjarðabyggðar

    Mál 1806053 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur tillaga starfshóps þar sem lagt er mat á snjalltækjaþörf grunnskólanna í Fjarðabyggð og sett fram tillaga að reglum um snjalltæki í grunnskólum. Einnig liggur fyrir ályktun frá kennurum á unglingastigi Nesskóla og yfirlýsing frá ungmennaráði Fjarðabyggðar. Fræðslunefnd hefur farið yfir fyrirliggjandi álit og tillögur. Í samræmi við tillögu starfshóps sem skipuð var skólastjórum grunnskólanna og fræðslustjóra, er lagt til að kaupa þar til greindan fjölda snjalltækja og taka upp þær reglur sem þar eru tilgreindar í kjölfar kynningar í skólunum og hjá ungmennaráði. Þessu skal lokið fyrir 31. janúar 2019. Lagt er til að reglurnar taki gildi 1. febrúar 2019 og nefndin leggur til að reglurnar verði skoðaðar að nýju í janúar 2020. Bæjarráð samþykkir að reglurnar taki gildi 1.febrúar 2019.

  16. 16. Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð

    Mál 1808078 Allur ferill málsins

    Í starfsáætlun fræðslunefndar og íþrótta- og tómstundanefndar er gert ráð fyrir endurskoðun á fræðslu- og frístundastefnu Fjarðabyggðar sem samþykkt var árð 2009. Fyrir liggur minnisblað fræðslustjóra þar sem sett er fram tillaga að samsetningu á fjölskipuðum hópi fólks sem ynni að endurskoðun núverandi stefnu ásamt því að útbúa þriggja ára aðgerðaráætlun. Einnig er sett fram tillaga að erindisbréfi þar sem verkefnið er nánar skilgreint. Gert er ráð fyrir að hópurinn skili af sér í maí 2019. Bæjaráð samþykkir tillögu í minnisblaði og vísir málinu til vinnslu fræðslustjóra.

  17. 17. Læsisstefna Fjarðabyggðar

    Mál 1803047 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur tillaga frá starfshóp um gerð læsisstefnu, um hvernig skuli kynna og fylgja eftir stefnunni. Starfshópurinn hafði áður lagt til að læsisstefnan "Læsi er lykillinn" yrði tekin upp sem læsisstefna Fjarðabyggðar og var það samþykkt í fræðslunefnd og góðfúslegt leyfi fengið frá Akureyrarbæ og Miðstöð skólaþróunar Háskólans á Akureyri, höfundum stefnunnar. Bæjarráð samþykkir tillögu og vísar málinu til vinnslu hjá fræðslustjóra.

  18. 18. Sumarleyfi leikskólanna í Fjarðabyggð 2019

    Mál 1811144 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur tillaga fræðslustjóra að sumarleyfi leikskólanna í Fjarðabyggð sumarið 2019. Tillagan byggir á starfsáætlun í fræðslumálum fyrir 2019, þar sem gert er ráð fyrir sumarlokunin í 4 vikur, 20 virka daga. Sumarlokun skólanna spannar tvo mánuði. Tillaga að sumarlokun 2018 er sem hér segir:

    Dalborg Eskifirði 19.06 - 16.07 báðir dagar meðtaldir

    Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli 01.07 - 26.07 báðir dagar meðtaldir

    Kæribær Fáskrúðsfirði 01.07 - 26.07 báðir dagar meðtaldir

    Lyngholt Reyðarfirði 10.07 - 07.08 báðir dagar meðtaldir

    Eyrarvellir Norðfirði 19.07 - 16.08 báðir dagar meðtaldir

    Þá geta foreldrar boðið börnum sínum upp á fjögurra, sex eða átta vikna samfellt sumarleyfi. Leikskólagjöld falla niður í einn mánuð, einn og hálfan mánuð eða tvo mánuði eftir lengd sumarleyfis. Í minnisblaði fræðslustjóra kemur eftirfarandi fram: "Í starfsáætlun í fræðslumálum fyrir árið 2019 segir að opnunartími leikskóla yfir sumartímann verði endurskoðaður samhliða vinnu við endurskoðun fræðslu- og frístundastefnu sveitarfélagsins. Umræða og ákvarðanataka verður því að bíða til vorannar 2019." Bæjarráð samþykkir tillögu og vísar málinu til vinnslu hjá fræðslustjóra.

  19. 19. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 221

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 221 frá 4.desember 2018, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 19.1 Endurskoðun fjallskilasamþykktar Múlasýslna1805068
    2. 19.2 Framkvæmdaáætlun vegna hreinsunar í hverfum1811147
    3. 19.3 Aðalskipulag Seyðisfjarðarkaupstaðar tillaga um breytingu á skilmálum og landnotkun í Lönguhlíð ásamt breytingu á deiliskipulagi fyrir Lönguhlíð1811146
    4. 19.4 Deiliskipulag Leira 1, iðnaðar- og hafnarsvæði sunnan Strandgötu - breyting, stækkuna hafnarsvæðis1701100
    5. 19.5 740 Naustahvammur 46 - umsókn um lóð1811158
    6. 19.6 735 Hafnargata 5 - umsókn um lóð1811100
    7. 19.7 740 Egilsbraut 19 - Endurnýjun lóðarleigusamnings1811161
    8. 19.8 735 Strandgata 104 - endurnýjun lóðarleigusamnings1811173
    9. 19.9 740 Strandgata 2 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi1810167
    10. 19.10 730 Austurvegur 65 - umsókn um stækun lóðar1811201
    11. 19.11 730 Heiðarvegur 5 - byggingarleyfi, viðbygging leikskóla1809157
    12. 19.12 735 Strandgata 12a - fyrirspurn um breytta notkun1811169
    13. 19.13 750 Skólavegur 12 Byggingarleyfi sólpallur og skjólveggur1606082
    14. 19.14 735 Eskifjarðarhöfn - framkvæmdaleyfi, trébryggj1811202
    15. 19.15 735 Hafnargata - Beiðni um lögn rafstrengja1811165
    16. 19.16 740 Naustahvammur - Beiðni um lögn rafstrengja1811164
    17. 19.17 730 Mjóeyrarhöfn - umsókn um stöðuleyfi, starfsmannaaðstaða Eimskips1710105
    18. 19.18 755 Heyklif, landamerki1809150
    19. 19.19 Umsagnir vegnar Fiskeldi Austfjarða á allt að 20.800 tonn í Beru- og Fáskrúðsfirði1811208
  20. 20. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 8

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 8 frá 3.desember 2018, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 20.1 Stefna í ferðamálum 2018 - 20251811077
    2. 20.2 Græn atvinnustarfsemi1810030
    3. 20.3 Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar1805211
    4. 20.4 740 Afnotasamingur fyrir Egilsbraut 21808028
    5. 20.5 Aðalfundur Tónlistarmiðstöðvar Austurlands 20181811166
    6. 20.6 Minningarskjöldur um Richard Long (1783-1837)1810185
    7. 20.7 Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austurlands 20181805082
    8. 20.8 Aðalfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga bs. 19. nóvember1811037
    9. 20.9 Efling Egilsstaðaflugvallar og framtíð flugvallarverkefnisins1811137
    10. 20.10 Safnanefnd - 51811007F
  21. 21. Fræðslunefnd - 64

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 64 frá 5.desember 2018, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 21.1 Starfsáætlanir og skólanámskrár leik- og grunnskóla1810149
    2. 21.2 Snjallsímanotkun í grunnskólum Fjarðabyggðar1806053
    3. 21.3 Ytra mat á leikskólum 20181711014
    4. 21.4 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð1808078
    5. 21.5 Læsisstefna Fjarðabyggðar1803047
    6. 21.6 Niðurstöður úr Skólavoginni1311034
    7. 21.7 Aðalfundur Skólaskrifstofu 20181811134
    8. 21.8 Sumarleyfi leikskólanna í Fjarðabyggð 20191811144
  22. 22. Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 9

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna, nr. 9 frá 4.desember 2018, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 22.1 Aukinn fjöldi hjúkrunarrýma á Uppsölum
    2. 22.2 Fjárhagsstaða Uppsala 2018
    3. 22.3 Fjárhagsáætlun hjúkrunarheimila
    4. 22.4 Rekstur Uppsala til framtíðar
    5. 22.5 Staða hjúkrunarheimila í Fjarðabyggð
    6. 22.6 Nýtt hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð
  23. 23. Hafnarstjórn - 208

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 208 frá 4.desember 2018, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 23.1 Undanþága frá hafnsöguskyldu á Pollux og Perseus1811205
    2. 23.2 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20181801005
    3. 23.3 Stefna í ferðamálum 2018 - 20251811077
    4. 23.4 Áætlun hafnaryfirvalda um móttöku úrgangs og farmleifa frá skipum1806167
    5. 23.5 Umsagnir vegnar Fiskeldi Austfjarða á allt að 20.800 tonn í Beru- og Fáskrúðsfirði1811208
    6. 23.6 735 Hafnarsvæði Eskifirði - hugmyndavinna1603089