Hafnarstjórn, fundur 208
4. desember 2018, kl. 16:30 til 18:15, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Hákon Ásgrímsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Hákon Ásgrímsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 592 liður 23
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 208 frá 4.desember 2018, lögð fram til umfjöllunar.
Bæjarstjórn, fundur 259 liður 4
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 208 frá 4.desember 2018, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Undanþága frá hafnsöguskyldu á Pollux og Perseus
Mál 1811205 Allur ferill málsins
Rúnar Gunnarsson vék af fundi við afgreiðslu þessa liðar.
Erindi frá Eimskip hf dags 30. nóvember 2018 þar sem óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir tvo skipstjóra á skipum félagsins. Hafnarstjórn samþykkir að veita undanþáguna.
-
2. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2018
Mál 1801005 Allur ferill málsins
Fundargerð þings Hafnasambands Íslands, ásamt fundargerð stjórnar sambandsins nr 408, ályktun hafnasambandsþings um öryggi í höfnum og minnisblaðs Faxaflóahafna um rafmagnstengingar í höfnum lögð fram til kynningar.
-
3. Stefna í ferðamálum 2018 - 2025
Mál 1811077 Allur ferill málsins
Minnisblað upplýsinga- og kynningarfulltrúa um stefnumótun Fjarðabyggðar í ferðaþjónustumálum lagt fram til kynningar.
-
4. Áætlun hafnaryfirvalda um móttöku úrgangs og farmleifa frá skipum
Mál 1806167 Allur ferill málsins
Áætlun um mótttöku og meðhöndlun úrgangs fyrir hafnir Fjarðabyggðar lögð fram. Hafnarstjórn samþykkir áætlanirnar og felur framkvæmdastjóra að gera breytingar í samræmi við umræður á fundinum og senda þær Umhverfisstofnun til staðfestingar.
-
5. Umsagnir vegnar Fiskeldi Austfjarða á allt að 20.800 tonn í Beru- og Fáskrúðsfirði
Mál 1811208 Allur ferill málsins
Valgeir Ægir Ingólfsson, atvinnu- og þróunarstjóri sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Beiðni hefur borist frá Matvælastofnun um umsögn vegna fiskeldis í Fáskrúðsfirði. Drög að minnisblaði kynnt á fundinum. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra í samvinnu við aðra embættismenn að bæta við athugasemdum í samræmi við umræður á fundinum og visar málinu til bæjarráðs.
-
6. 735 Hafnarsvæði Eskifirði - hugmyndavinna
Mál 1603089 Allur ferill málsins
Lögð var fram til umfjöllunar í hafnarstjórn tillaga að skipulagi fyrir hafnarsvæði á Eskifirði. Vísað til Eigna- Skipulags- og Umhverfisnefndar til afgreiðslu með athugasemdum.