Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 209

18. desember 2018, kl. 16:00 til 17:15, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Hákon Ásgrímsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Hákon Ásgrímsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 594 liður 16

    Fundargerð hafnarnefndar, nr. 209 frá 18.desember 2018, lögð fram til umsagnar.

  • Bæjarstjórn, fundur 260 liður 4

    Til máls tók: Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 209 frá 18.desember 2018, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Öryggismál við framkvæmdir á hafnarsvæði

    Mál 1812138 Allur ferill málsins

    Sviðstjóri framkvæmdasviðs fór yfir fyrirkomulag öryggismála við framkvæmdir við hafnir. Í gildi er öryggisstefna Fjarðabyggðahafna, framkvæmdastjóra hafna falið að fara yfir öryggisstefnuna, sérstaklega með tilliti til hafnarverndar og aðgangs að höfnum.

    Sviðstjóri frarmkvæmdasviðs sat fundinn undir þessum fundarlið.

  2. 2. 740 Viðhaldsmál Egilsbraut 2

    Mál 1812137 Allur ferill málsins

    Framkvæmdastjóri hafna fór yfir mál sem tengjast viðhaldsmál á Egilsbraut 2 Neskaupstað.

    Sviðstjóri framkvæmdasviðs sat fundinn undir þessum fundarlið.

  3. 3. Stefnumótun vegna skemmtiferðaskipa 2018

    Mál 1807064 Allur ferill málsins

    Framkvæmdastjóri hafna fór yfir umræður á fundi um ferðamál í Fjarðabyggð 12. desember. Hafnarstjórn mun taka málið til umræðu á nýju ári.

  4. 4. Seatrade Miami 2019

    Mál 1812139 Allur ferill málsins

    Seatrade Cruise sýning verður haldin í Miami 3. - 8. apríl 2019. Hafnarstjórn samþykkir að taka þátt með sameiginlegum fulltrúa frá Cruise Iceland.

  5. 5. Lengingu á stálþili við Egersund á Eskifirði

    Mál 1504173 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn samþykkir að bjóða út framkvæmdir vegna hafnarkants og þekju við Egersund í upphafi árs 2019.