Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 210

7. janúar 2019, kl. 16:00 til 17:10, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Hákon Ásgrímsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Hákon Ásgrímsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Undanþága frá hafnsöguskyldu á Pollux og Perseus

    Mál 1811205 Allur ferill málsins

    Rúnar Gunnarsson vék af fundi við afgreiðslu þessa liðar.

    Erindi frá Eimskip hf dags 18. desember 2018 þar sem óskað er eftir undanþágu frá hafnsöguskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir skipstjóra á skipi félagsins. Hafnarstjórn samþykkir að veita undanþáguna.

  2. 2. Aðstaða skipafélaga í Fjarðabyggð

    Mál 1801145 Allur ferill málsins

    Rúnar Gunnarsson vék af fundi við afgreiðslu þessa liðar.

    Bæjarstjóri og framkvæmdastjóri Fjarðabyggðahafna funduðu með fulltrúum Samskipa í desember þar sem farið var yfir þeirra erindi vegna aðstöðu í Fjarðabyggð.

    Framkvæmdastjóra hafna falið að svara Samskip í samræmi við umræður á fundinum.

  3. 3. Leyfi til töku malar og sands af hafsbotni út af Eyri í Reyðarfirði

    Mál 1802006 Allur ferill málsins

    Formleg leyfisumsókn vegna leyfis til efnistöku á hafsbotni við Eyri hefur verið send út til Orkustofnunar.

    Hafnarstjórn átelur mjög vinnubrögð Orkustofnunar við ferli málsins og fer fram á að umsóknin verði afgreidd án tafar.