Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 594

7. janúar 2019, kl. 08:30 til 10:15, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Jens Garðar Helgason, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 260 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 593 og nr. 594 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Rúnar Már Gunnarsson, Heimir Snær Gylfason, og Einar Már Sigurðarson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 594 frá 7.janúar 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Bleiksárhlíð 56 - sala (gamla Hulduhlíð)

    Mál 1702215 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að afsali vegna kaupa á eignarhlut ríkisins í Bleiksárhlið 56. Bæjarráð samþykkir kaupin og vísar málinu til fjármálastjóra til gerðar viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun ársins 2019. Málinu jafnframt vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.

  2. 2. Snjallsímanotkun í grunnskólum Fjarðabyggðar

    Mál 1806053 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað fræðslustjóra er varðar snjalltækjavæðingu í grunnskólum. Bæjarráð vísar málinu til fjármálastjóra til gerðar viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun ársins 2019. Málinu jafnframt vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.

  3. 3. Umsagnir vegnar Fiskeldi Austfjarða á allt að 20.800 tonn í Beru- og Fáskrúðsfirði

    Mál 1811208 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsögn, vegna beiðni Matvælastofnunar, um allt að 20.800 tonna framleiðslu Fiskeldis Austfjarða á laxi í Berufirði og Fáskrúðsfirði. Bæjarráð tekur undir efni minnisblaðs þar sem fram kemur að mikilvægt sé að vandað eftirlit verði haft með niðursetningu sjókvía og öðrum framkvæmdum tengdum fiskeldi í sjó. Eins og fram kemur í athugasemdum sveitarfélagsins og annarra aðila, eru miklir hagsmunir til staðar tengdir siglingaleiðum og því verður að tryggja eftirlit með raunverulegri staðsetningu mannvirkja í sjó svo siglingaleiðum sé ekki ógnað. Þá minnir bæjarráð á að lítið sem ekkert eftirlit er með starfsemi fiskeldis á Austfjörðum og bendir bæjarráðs í því sambandi á að Heilbrigðiseftirlit Austurlands er vel til þess fallið að annast eftirlitið. Vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.

  4. 4. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2018/2019

    Mál 1810049 Allur ferill málsins

    Bæjarráð felur atvinnu- og þróunarstjóra að samræma reglur sveitarfélagsins um byggðakvóta og skila þeim til ráðuneytisins.

  5. 5. Umboð til kjarasamningsgerðar

    Mál 1812151 Allur ferill málsins

    Framlagt uppfært kjarasamningsumboð Fjarðabyggðar og stofnana við Samband íslenskra sveitarfélaga vegna komandi kjaraviðræðna.

    Bæjarráð samþykkir kjarasamningsumboðið og vísar því til staðfestingar bæjarstjórnar. Jafnframt er bæjarstjóra falið að staðfesta umboðið.

  6. 6. Auglýsing um skrá yfir störf hjá Fjarðabyggð sem eru undanskilin verkfallsheimild

    Mál 1811156 Allur ferill málsins

    Framlagður uppfærður listi starfa sem undanþegin eru verkfallsrétti sbr. 19. gr. laga 94/1986. Samráðsferli með hlutaðeigandi stéttarfélögum er lokið og er listinn lagður fram til afgreiðslu.

    Bæjarráð samþykkir listann fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.

  7. 7. Afnot af íþróttahúsi Neskaupstaðar vegna þorrablóts 2.febrúar 2019

    Mál 1812155 Allur ferill málsins

    Kommablótið verður haldið 2. febrúar 2019. Óskað er eftir sambærilegum afnotum af húsinu og á síðasta ári. Bæjarráð samþykkir afnot af húsinu með sama hætti og á síðasta ári.

  8. 8. 740 Krikjubólseyrar - umsókn um lóð - frístundahús, fjárhús

    Mál 1812047 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Valgeirs Kristjáns Guðmundssonar, dagsett 6. desember 2018, þar sem sótt er um lóðina við Kirkjubólseyri 2 á Norðfirði undir frístundabúskap. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar og minnir á skipulagsskilmála.

  9. 9. Tæknidagur Fjölskyldunnar 2019

    Mál 1811131 Allur ferill málsins

    Stefnt er að því að halda Tæknidag fjölskyldunnar í sjöunda sinn laugardaginn 5. október 2019 í Íþróttahúsinu í Neskaupstað.

    Verkmenntaskóli Austurlands óskar eftir að fá afnot af íþróttahúsinu í Neskaupstað 4. og 5. október og styrk sem nemur leigu og ræstingarkostnaði. Bæjarráð samþykkir afnot með sama fyrirkomulagi og á síðasta ári.

  10. 10. Ósk um fulltrúa í vatnsvæðanefnd

    Mál 1812171 Allur ferill málsins

    Óskað er eftir tilnefningu í vatnasvæðanefnd fyrir 14. janúar nk. Bæjarráð tilnefnir Karl Óttar Pétursson til setu í vatnasvæðanefnd.

  11. 11. Starfshópur um endurskoðun kosningalag tekur til starfa - óskað athugasemda

    Mál 1812188 Allur ferill málsins

    Forseti Alþingis hefur skipað starfshóp um endurskoðun kosningalaga. Við upphaf vinnunnar óskar starfshópurinn eftir athugasemdum við þær hugmyndir sem nú þegar liggja fyrir, m.a. tillögur vinnuhóps um endurskoðun kosningalaga frá 2016 og hugmyndir um að sett verði heildarlöggjöf um framkvæmd kosninga. Frestur til athugasemda er til 22.janúar nk. Á síðari stigum verður aftur óskað eftir athugasemdum við frumvarpsdrög starfshópsins. Vísað til skoðunar bæjarstjóra.

  12. 12. Erindi um öldrunarmál

    Mál 1901033 Allur ferill málsins

    Bréf hjúkrunarfræðings á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað er varðar öldrunarmál í sveitarfélaginu. Bæjarráð þakkar bréfið og tekur undir áhyggjur bréfritara. Áhersla verður lögð á málefni aldraðra á kjörtímabilinu og m.a. hefur þegar verið samþykkt að bæta við stöðugildi öldrunarmála á félagsþjónustusviði. Þá hefur sveitarfélagið átt í viðræðum við ríkisvaldið um uppbyggingu hjúkrunarheimila í Fjarðabyggð og vonandi fara þær viðræður að skila árangri.

    Erindi vísað til framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna og félagsmálanefndar til umfjöllunar og afgreiðslu.

  13. 13. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2018

    Mál 1802079 Allur ferill málsins

    Fundargerð 145. fundar stjórnar Heilbrigðisnefndar Austurlands frá 13.desember 2018, lögð fram til kynningar.

  14. 14. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2018

    Mál 1802007 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar sambandsins frá 14.desember 2018, lögð fram til kynningar.

  15. 15. Fundargerðir upplýsingaöryggisnefndar

    Mál 1805262 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar sem trúnaðarmál, fundargerð 6. fundar upplýsingaöryggisnefndar.

  16. 16. Hafnarstjórn - 209

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarnefndar, nr. 209 frá 18.desember 2018, lögð fram til umsagnar.

    1. 16.1 Öryggismál við framkvæmdir á hafnarsvæði1812138
    2. 16.2 740 Viðhaldsmál Egilsbraut 21812137
    3. 16.3 Stefnumótun vegna skemmtiferðaskipa 20181807064
    4. 16.4 Seatrade Miami 20191812139
    5. 16.5 Lengingu á stálþili við Egersund á Eskifirði1504173
  17. 17. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 222

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 222 frá 17.desember 2018, lögð fram til umsagnar.

    1. 17.1 730 Hraun 1, byggingarleyfispakki # 1 - lóð1704024
    2. 17.2 740 Krikjubólseyrar - umsókn um lóð - frístundahús, fjárhús1812047
    3. 17.3 735 Eskifjörður 1 - byggingarleyfi - vinnubúðir, skrifstofur og skemmur á athafnasvæði Eskifirði1812046
    4. 17.4 740 Fannadalur 1 - byggingarleyfi - skemmur við gangamuna Fannardal1812045
    5. 17.5 740 Kirkjuból 1 - byggingarleyfi - vinnubúðir1812044
    6. 17.6 730 Hraun 1 - Byggingarleyfi, þak á spennubás1812106
    7. 17.7 Deiliskipulag Leira 1, iðnaðar- og hafnarsvæði sunnan Strandgötu - breyting, stækkuna hafnarsvæðis1701100
    8. 17.8 Eftirlitsmyndavélar í Fjarðabyggð1808136
    9. 17.9 Búnaður til útvarpssendinga í veggöngum1712062
    10. 17.10 760 Sorplosun á Breiðdalsvík1808050
    11. 17.11 Garnaveiki á Þrándarstöðum1812071
    12. 17.12 Heyrúlluplastsöfnun í Fjarðabyggð1811153
    13. 17.13 Raforkukaup Rafveitu Reyðarfjarðar 20191811174
    14. 17.14 Strandgata 62 Neskaupstað1812084
  18. 18. Barnaverndarfundagerðir 2018

    Mál 1801097 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnarnverndarnefndar, nr. 93 frá 20.desember 2018, lögð fram til umsagnar.