Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 260

10. janúar 2019, kl. 16:00 til 16:55, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Dagskrá

Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.

  1. 1. Bæjarráð - 593

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:01:24

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 593 og nr. 594 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Rúnar Már Gunnarsson, Heimir Snær Gylfason, og Einar Már Sigurðarson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 593 frá 17.desember 2018, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 1.1 Útboð vátrygginga 20180:01:52
    2. 1.2 Reglur um afskriftir krafna
    3. 1.3 Laun í námsleyfi
    4. 1.4 Strandgata 62 Neskaupstað0:20:04
    5. 1.5 Umsagnir vegna Fiskeldis Austfjarða um allt að 20.800 tonn í Beru- og Fáskrúðsfirði0:02:48
    6. 1.6 417.mál til umsagnar frumvarp til laga um samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs
    7. 1.7 Fundagerð - samtök orkusveitarfélaga 2018
    8. 1.8 Starfsemi Krónunnar0:04:40
    9. 1.9 Íþrótta- og tómstundanefnd - 55
  2. 2. Bæjarráð - 594

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:05:08

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 593 og nr. 594 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Rúnar Már Gunnarsson, Heimir Snær Gylfason, og Einar Már Sigurðarson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 594 frá 7.janúar 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Bleiksárhlíð 56 - sala (gamla Hulduhlíð)1702215
    2. 2.2 Snjallsímanotkun í grunnskólum Fjarðabyggðar1806053
    3. 2.3 Umsagnir vegnar Fiskeldi Austfjarða á allt að 20.800 tonn í Beru- og Fáskrúðsfirði1811208
    4. 2.4 Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2018/20191810049
    5. 2.5 Umboð til kjarasamningsgerðar18121510:05:08
    6. 2.6 Auglýsing um skrá yfir störf hjá Fjarðabyggð sem eru undanskilin verkfallsheimild1811156
    7. 2.7 Afnot af íþróttahúsi Neskaupstaðar vegna þorrablóts 2.febrúar 20191812155
    8. 2.8 740 Krikjubólseyrar - umsókn um lóð - frístundahús, fjárhús1812047
    9. 2.9 Tæknidagur Fjölskyldunnar 20191811131
    10. 2.10 Ósk um fulltrúa í vatnsvæðanefnd1812171
    11. 2.11 Starfshópur um endurskoðun kosningalag tekur til starfa - óskað athugasemda1812188
    12. 2.12 Erindi um öldrunarmál19010330:05:36
    13. 2.13 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20181802079
    14. 2.14 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 20181802007
    15. 2.15 Fundargerðir upplýsingaöryggisnefndar1805262
    16. 2.16 Hafnarstjórn - 2091812007F
    17. 2.17 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 2221812005F
    18. 2.18 Barnaverndarfundagerðir 20181801097
  3. 3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 222

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:36:24

    Engin tók til máls.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 222 frá 17.desember 2018, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 730 Hraun 1, byggingarleyfispakki # 1 - lóð1704024
    2. 3.2 740 Krikjubólseyrar - umsókn um lóð - frístundahús, fjárhús1812047
    3. 3.3 735 Eskifjörður 1 - byggingarleyfi - vinnubúðir, skrifstofur og skemmur á athafnasvæði Eskifirði1812046
    4. 3.4 740 Fannadalur 1 - byggingarleyfi - skemmur við gangamuna Fannardal1812045
    5. 3.5 740 Kirkjuból 1 - byggingarleyfi - vinnubúðir1812044
    6. 3.6 730 Hraun 1 - Byggingarleyfi, þak á spennubás1812106
    7. 3.7 Deiliskipulag Leira 1, iðnaðar- og hafnarsvæði sunnan Strandgötu - breyting, stækkuna hafnarsvæðis1701100
    8. 3.8 Eftirlitsmyndavélar í Fjarðabyggð1808136
    9. 3.9 Búnaður til útvarpssendinga í veggöngum1712062
    10. 3.10 760 Sorplosun á Breiðdalsvík1808050
    11. 3.11 Garnaveiki á Þrándarstöðum1812071
    12. 3.12 Heyrúlluplastsöfnun í Fjarðabyggð1811153
    13. 3.13 Raforkukaup Rafveitu Reyðarfjarðar 20191811174
    14. 3.14 Strandgata 62 Neskaupstað1812084
  4. 4. Hafnarstjórn - 209

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:36:52

    Til máls tók: Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 209 frá 18.desember 2018, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 Öryggismál við framkvæmdir á hafnarsvæði18121380:36:52
    2. 4.2 740 Viðhaldsmál Egilsbraut 21812137
    3. 4.3 Stefnumótun vegna skemmtiferðaskipa 201818070640:37:48
    4. 4.4 Seatrade Miami 20191812139
    5. 4.5 Lengingu á stálþili við Egersund á Eskifirði1504173
  5. 5. Íþrótta- og tómstundanefnd - 55

    Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:38:44

    Til máls tók: Pálína Margeirsdóttir.

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 55 frá 11.desember 2018, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 5.1 Ferðasumarið 2018 - Skýrsla
    2. 5.2 Forvarnaráætlun 20190:38:44
    3. 5.3 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð0:40:08
    4. 5.4 Íþróttamaður Fjarðabyggðar 20180:41:04
  6. 6. Barnaverndarfundagerðir 2018

    Mál 1801097 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:42:28

    Enginn tók til máls

    Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 93 frá 20. desember 2018, samþykkt með 9 atkvæðum.

  7. 7. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2019 - viðauki 1

    Mál 1901026 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:42:56

    Karl Óttar Pétursso, bæjarstjóri mælti fyrir viðaukanum.

    Enginn tók til máls.

    Framlagður viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2019. Viðaukinn er framlagður vegna samþykkta um kaup á fasteignakaupa og tölvuvæðingar í grunnskólum Fjarðabyggðar.

    Samkvæmt viðaukanum aukast fjárfestingar Eignasjóðs um 27,8 m.kr., fjárfestingar Tækjamiðstöðvar aukast um 24,4 m.kr. og rekstrarkostnaður í málaflokki 04 lækkar um 4,5 m.kr. Þessi breyting er fjármögnuð af handbæru fé og lækkar það um 52,2 m.kr. með samþykkt þessa viðauka. Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 1 með 9 atkvæðum.

  8. 8. Umsagnir vegnar Fiskeldi Austfjarða á allt að 20.800 tonn í Beru- og Fáskrúðsfirði

    Mál 1811208 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:08:24

    Forseti mælti fyrir erindinu.

    Enginn tók til máls.

    Lögð fram umsögn, vegna beiðni Matvælastofnunar, um allt að 20.800 tonna framleiðslu Fiskeldis Austfjarða á laxi í Berufirði og Fáskrúðsfirði. Bæjarráð hefur tekið undir efni minnisblaðs þar sem fram kemur að mikilvægt sé að vandað eftirlit verði haft með niðursetningu sjókvía og öðrum framkvæmdum tengdum fiskeldi í sjó. Eins og fram kemur í athugasemdum sveitarfélagsins og annarra aðila, eru miklir hagsmunir til staðar tengdir siglingaleiðum og því verður að tryggja eftirlit með raunverulegri staðsetningu mannvirkja í sjó svo siglingaleiðum sé ekki ógnað. Þá minnir bæjarráð á að lítið sem ekkert eftirlit er með starfsemi fiskeldis á Austfjörðum og bendir bæjarráðs í því sambandi á að Heilbrigðiseftirlit Austurlands er vel til þess fallið að annast eftirlitið. Bæjarstjórn samþykkir umsögn með 9 atkvæðum.

  9. 9. Umboð til kjarasamningsgerðar

    Mál 1812151 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:14:28

    Forseti mælti fyrir erindi.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarráð hefur samþykkt uppfært kjarasamningsumboð Fjarðabyggðar og stofnana við Samband íslenskra sveitarfélaga vegna komandi kjaraviðræðna og vísar því til staðfestingar bæjarstjórnar. Bæjarstjórn samþykkir kjarasamningsumboð Fjarðabyggðar og stofnana með 9 atkvæðum.

  10. 10. Auglýsing um skrá yfir störf hjá Fjarðabyggð sem eru undanskilin verkfallsheimild

    Mál 1811156 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:46:40

    Forseti mælti fyrir erindi.

    Ragnar Sigurðsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.

    Enginn tók til máls.

    Framlagður uppfærður listi starfa sem undanþegin eru verkfallsrétti sbr. 19. gr. laga 94/1986. Samráðsferli með hlutaðeigandi stéttarfélögum er lokið og er listinn lagður fram til afgreiðslu. Bæjarráð hefur samþykkt listann fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar. Bæjarstjórn samþykkir undanþágulista með 8 atkvæðum.

  11. 11. Reglur um afskriftir krafna

    Mál 1805150 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:47:36

    Forseti mælti fyrir erindi.

    Enginn tók til máls.

    Framlagðar endurskoðaðar reglur um afskriftir og innheimtu krafna Fjarðabyggðar, með tillögu fjármálastjóra um breytingar, ásamt minnisblaði. Bæjarráð hefur samþykkt reglurnar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

    Bæjarstjórn samþykkir reglur með 9 atkvæðum.

  12. 12. Deiliskipulag Leira 1, iðnaðar- og hafnarsvæði sunnan Strandgötu - breyting, stækkuna hafnarsvæðis

    Mál 1701100 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:48:04

    Forseti mælti fyrir erindi.

    Enginn tók til máls.

    Lögð fram tillaga á deiliskipulagi Leiru 1, iðnaðar- og hafnarsvæði sunnan Strandgötu á Eskifirði, breyting vegna stækkunar hafnarsvæðis, ásamt umhverfisskýrslu. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, deiliskipulag Leiru 1 í auglýsingu, skipulagsuppdráttur, greinargerð og umhverfisskýrsla, dagsett 17. desember 2018. Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar. Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum, að auglýsa deiliskipulag Leiru 1, iðnaðar- og hafnarsvæði sunnan Strandgötu á Eskifirði.