Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 222

17. desember 2018, kl. 16:00 til 16:45, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Einar Már Sigurðarson, formaður
  • Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, varaformaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Ívar Dan Arnarson, aðalmaður
  • Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður
  • Marinó Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 594 liður 17

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 222 frá 17.desember 2018, lögð fram til umsagnar.

  • Bæjarstjórn, fundur 260 liður 3

    Engin tók til máls.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 222 frá 17.desember 2018, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. 730 Hraun 1, byggingarleyfispakki # 1 - lóð

    Mál 1704024 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Jóns Ólafs Ólafssonar hjá TBL architects fh. Alcoa Fjarðaál sf, dagsett 14. nóvember 2018, þar sem sótt er um samþykki reyndarteikninga fyrir skipulag og yfirbragð lóðar fyrirtækisins að Hrauni 1 á Reyðarfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingaráformin og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um afgreiðslu nefndarinnar.

  2. 2. 740 Krikjubólseyrar - umsókn um lóð - frístundahús, fjárhús

    Mál 1812047 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Valgeirs Kristjáns Guðmundssonar, dagsett 6. desember 2018, þar sem sótt er um lóðina við Kirkjubólseyri 2 á Norðfirði undir frístundabúskap.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

  3. 3. 735 Eskifjörður 1 - byggingarleyfi - vinnubúðir, skrifstofur og skemmur á athafnasvæði Eskifirði

    Mál 1812046 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Suðurverks hf, dagsett 6. desember 2018, þar sem óskað er eftir afskráningu vinnubúða, skrifstofa og skemma fyrirtækisins við gangamunna Norðfjarðarganga á Eskifirði. Búðirnar hafa þegar verið fjarlægðar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um ákvörðun nefndarinnar.

  4. 4. 740 Fannadalur 1 - byggingarleyfi - skemmur við gangamuna Fannardal

    Mál 1812045 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Suðurverks hf, dagsett 6. desember 2018, þar sem óskað er eftir afskráningu skemma fyrirtækisins við gangamunna Norðfjarðarganga í Fannardal. Búðirnar hafa þegar verið fjarlægðar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um ákvörðun nefndarinnar.

  5. 5. 740 Kirkjuból 1 - byggingarleyfi - vinnubúðir

    Mál 1812044 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Suðurverks hf, dagsett 6. desember 2018, þar sem óskað er eftir afskráningu vinnubúða fyrirtækisins við Kirkjuból í Norðfirði. Búðirnar hafa þegar verið fjarlægðar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um ákvörðun nefndarinnar.

  6. 6. 730 Hraun 1 - Byggingarleyfi, þak á spennubás

    Mál 1812106 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Alcoa Fjarðaál sf, dagsett 12. desember 2018, þar sem sótt er um leyfi til uppsetningar á þaki yfir núverandi spennubás við háspennu. Hönnunargögn eru frá Verkís, hönnuður er Björn Sveinsson.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um ákvörðun nefndarinnar.

  7. 7. Deiliskipulag Leira 1, iðnaðar- og hafnarsvæði sunnan Strandgötu - breyting, stækkuna hafnarsvæðis

    Mál 1701100 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Leiru 1, iðnaðar- og hafnarsvæði sunnan Strandgötu á Eskifirði, breyting vegna stækkunar hafnarsvæðis, ásamt umhverfisskýrslu.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti deiliskipulag Leiru 1 í auglýsingu, skipulagsuppdráttur, greinargerð og umhverfisskýrsla, dagsett 17. desember 2018.

    Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga.

    Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.

  8. 8. Eftirlitsmyndavélar í Fjarðabyggð

    Mál 1808136 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað Óskars Þórs Guðmundssonar lögreglumanns sem tekið er saman í framhaldi af fundi hans með bæjarráði 27.nóvember er lagt fram til kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd og til bæjarstjóra til nánari útfærslu.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir tillögur um eftirlitsmyndavélar í Fjarðabyggð og telur eðlilegt að málið verði tekið upp við Vegagerðina.

  9. 9. Búnaður til útvarpssendinga í veggöngum

    Mál 1712062 Allur ferill málsins

    Erindi um Búnaður til útvarpssendinga í veggöngum lagt fram til kynningar

  10. 10. 760 Sorplosun á Breiðdalsvík

    Mál 1808050 Allur ferill málsins

    Verkefnastjóri umhverfismála leggur fram tillögu að fyrirkomulagi sorphirðu í Breiðdal.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu og setur í hendur verkefnastjóra umhverfismála að vinna áfram með málið.

  11. 11. Garnaveiki á Þrándarstöðum

    Mál 1812071 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar málinu til kynningar í landbúnaðarnefnd.

  12. 12. Heyrúlluplastsöfnun í Fjarðabyggð

    Mál 1811153 Allur ferill málsins

    Verkefnastjóri umhverfismála felur nefndinni að taka ákvörðun um að fara í söfnun á heyrúlluplasti í Fjarðabyggð.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur verkefnastjóra umhverfismála að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum um söfnun á landbúnaðarplasti

  13. 13. Raforkukaup Rafveitu Reyðarfjarðar 2019

    Mál 1811174 Allur ferill málsins

    Samningar varðandi orkukaup Rafveitu Reyðarfjarðar lagðir fram til kynningar. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur bæjarstjóra að undirrita samningana.

  14. 14. Strandgata 62 Neskaupstað

    Mál 1812084 Allur ferill málsins

    Minnisblað sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs, er varðar makaskipti á fasteignunum að Strandgötu 62 og Nesbakka 19-21 nr. 102 í Neskaupstað. Vísað til umsagnar eigna- skipulags- og umhverfisnefndar. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að gengið verði að makaskiptunum í samræmi við minnisblað sviðstjóra framkvæmdasviðs