Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd

Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 8

3. desember 2018, kl. 17:00 til 18:40, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Magni Þór Harðarson, formaður
  • Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
  • Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Anna Þórhildur Kristmundsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 592 liður 20

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 8 frá 3.desember 2018, lögð fram til umfjöllunar.

  • Bæjarstjórn, fundur 259 liður 6

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 8 frá 3.desember 2018, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Stefna í ferðamálum 2018 - 2025

    Mál 1811077 Allur ferill málsins

    Upplýsingafulltrúi sat þennan lið fundarins og gerði grein fyrir stefnumótunarþingi sem haldið verður 12. desember nk. kl. 10:00 - 15:00 í Tónlistarmiðstöðinni Eskifirði. Þingið mótar upphaf vinnu við ferðamálastefnu Fjarðabyggðar sem fyrirhugað er að verði tilbúin á vormánuðum 2019. Þingið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á málaflokknum.

  2. 2. Græn atvinnustarfsemi

    Mál 1810030 Allur ferill málsins

    Umhverfisstjóri sat þennan lið fundarins. Umræða um græna atvinnustarfsemi og valkosti sem geta fallið að nýsköpun í samfélaginu og atvinnulífinu í Fjarðabyggð. Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra. Menningar- og nýsköpunarnefnd óskar eftir að eigna- skipulags- og umhverfisnefnd taki til skoðunar gerð umhverfisstefnu fyrir sveitarfélagið.

  3. 3. Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar

    Mál 1805211 Allur ferill málsins

    Nefndin fól forstöðumanni menningarstofu að leggja fyrir nefndina í byrjun desember, tillögur um endurskoðun menningarstefnu. Frestað til næsta fundar.

  4. 4. 740 Afnotasamingur fyrir Egilsbraut 2

    Mál 1808028 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn hefur lagt til að afnotasamningur verði gerður við Safnastofnun Fjarðabyggðar um afnot af Egilsbraut 2, Neskaupstað. Lögð fram drög til kynningar. Menningar- og nýsköpunarnefnd gerir ekki athugasemd við framkomin drög.

  5. 5. Aðalfundur Tónlistarmiðstöðvar Austurlands 2018

    Mál 1811166 Allur ferill málsins

    Fundargerð aðalfundar Tónlistarmiðstöðvar Austurlands lögð fram til kynningar.

  6. 6. Minningarskjöldur um Richard Long (1783-1837)

    Mál 1810185 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Þórs Jakobssonar er varðar uppsetningu á skildi á steini til minningar um Richard Long. Bæjarráð tók vel í erindið og vísaði því til menningar- og nýsköpunarnefndar. Lagt fram álit skipulags- og byggingarfulltrúa á hugmyndum um staðsetningu en fyrir liggur að svæðið er deiliskipulagt fyrir bílastæði sem tengd eru þeirri safnastarfsemi sem skilgreind er neðan Strandgötu. Ekkert er þó því til fyrirstöðu að skildi verði komið fyrir á steininum tímabundið. Forstöðumanni falið að koma niðurstöðu málsins á framfæri við bréfritara.

  7. 7. Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austurlands 2018

    Mál 1805082 Allur ferill málsins

    Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austfirðinga frá 29.október og 12.nóvember 2018, lagðar fram til kynningar.

  8. 8. Aðalfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga bs. 19. nóvember

    Mál 1811037 Allur ferill málsins

    Aukaaðalfundur Héraðsskjalasafnins verður haldinn fyrir 15.desember. Jón Björn Hákonarson mun sækja fundinn.

  9. 9. Efling Egilsstaðaflugvallar og framtíð flugvallarverkefnisins

    Mál 1811137 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar bréf Austurbrúar frá 14.nóvember er varðar framtíð flugvallarverkefnisins og fjármögnun þess. Bæjarráð hefur óskað eftir fundi með bæjarráði Fljótsdalshéraðs vegna málsins.

  10. 10. Safnanefnd - 5

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð 5.fundar safnanefndar lögð fram og samþykkt.

    1. 10.1 Stefnumótun safnastofnunar1811078