NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 9
14. janúar 2019, kl. 17:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Magni Þór Harðarson, formaður
- Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
- Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Anna Þórhildur Kristmundsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
- Kristín Arna Sigurðardóttir, embættismaður
Dagskrá
-
1. Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar
Mál 1805211 Allur ferill málsins
Forstöðumaður menningarstofu fór yfir stöðu vinnu við endurskoðun á menningarstefnu Fjarðabyggðar. Endurskoðun menningarstefnu verður næst tekið fyrir á fundi í febrúar og mun forstöðumaður menningarstofu senda nefndinni drög fyrir þann fund.
-
2. Markaðsetning á Instagram - Samningur við Onwegogo
Mál 1901079 Allur ferill málsins
Lagt fram tilboð frá samfélagsmiðlunar fyrirtækinu Onwegogo um umsjón með Instagram reikningi Fjarðabyggðar til tólf mánaða, auk minnisblaðs frá upplýsinga- og kynningarfulltrúa um verkefnið. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir framlagt tilboð og felur upplýsingafulltrúa að ganga frá samningi við Onwegogo.
-
3. Stefnumótun í ferðaþjónustu
Mál 1811077 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar minnisblað upplýsinga- og kynningarfulltrúa um fagfund með ferðaþjónustuaðilum sem haldinn var á Eskifirði 12. desember 2018.
-
4. Þjóðleikhúsið í leikferð um landið
Mál 1812025 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Þjóðleikhússtjóra frá 8.nóvember 2018, er varðar sýningar á barnaleikritinu "Ég get" á landsbyggðinni. Menningar- og nýsköpunarnefnd fagnar framtakinu og felur forstöðumanni Menningarstofu að vera í sambandi við fulltrúa Þjóðleikhússins.
-
5. Ferðaleikhús fyrir leikskólabörn
Mál 1812185 Allur ferill málsins
Tölvupóstur Júlíönu Kristínar Jónsdóttur er varðar sýningu á leikritum fyrir leikskólabörn í sumar. Menningar- og nýsköpunarnefnd lýst vel á framtakið og hvetur Júlíönu til að sækja um menningarstyrk.
-
6. Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austurlands 2018
Mál 1805082 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar, fundargerð framhaldsaðalfundar Héraðsskjalasafns Austfirðinga auk fundargerðar stjórnar, frá 14.desember 2018.
-
7. Hús frístunda
Mál 1901070 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar minnisblað um útfærslu frístundastarfs í Egilsbúð í Neskaupstað.
-
8. Safnanefnd - 6
Fundargerð safnanefndar nr. 6 frá 18.desember 2018, samþykkt með 5 atkvæðum.
- 8.1 Vettvangsheimsókn í safnið Frakkar á Íslandsmiðum, 2018.1812129
- 8.2 Fyrirhuguð uppbygging Íslenska stríðsárasafnsins.1812130
- 8.3 Málefni Safnanefndar Neskaupstaðar.1812131
- 8.4 Málefni Skjala- og myndasafns Neskaupstaðar.1812132
- 8.5 Stefnumótun Safnanefndar.1812134
- 8.6 Málefni Héraðsskjalasafns.1812135
- 8.7 Vettvangsheimsókn í Templarann, Fáskrúðsfirði.1812133