NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 10
18. febrúar 2019, kl. 17:00 til 18:55, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Magni Þór Harðarson, formaður
- Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
- Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Kristín Arna Sigurðardóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 602 liður 12
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 10 frá 18.febrúar 2019, lögð fram til umfjöllunar.
Dagskrá
-
1. Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar
Mál 1805211 Allur ferill málsins
Tinna Guðmundsdóttir og Karna Sigurðardóttir forstöðumaður menningarstofu sátu þennan lið fundarins og kynntu drög að nýrri menningarstefnu. Menningar- og nýsköpunarnefnd felur forstöðumanni menningarstofu að vinna stefnuna áfram í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
2. Stefnumótun í ferðaþjónustu
Mál 1811077 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað upplýsinga- og kynningafulltrúa vegna stefnumótunar Fjarðabyggðar í ferðamálum. Í minnisblaðinu er lagt til að settur verði saman starfshópur sem vinna mun að mótun stefnunnar. Lagt er til að hópinn skipi formaður menningar- og nýsköpunarnefndar, upplýsinga- og kynningarfulltrúi og atvinnu- og þróunarstjóri. Auk þess er lögð fram tillaga að erindisbréfi starfshópsins. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir skipan hópsins og erindisbréf hans.
-
3. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 1902101 Allur ferill málsins
Umsókn Sinfóníuhljómsveitar Austurlands um menningarstyrk á árinu 2019 vegna tónleika sveitarinnar í lok mars 2019. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja tónleikana um 250.000 kr.
-
4. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 1902100 Allur ferill málsins
Umsókn Eistnaflugs um menningarstyrk á árinu 2019 vegna dagsferðar með erlenda blaðamenn og ljósmyndara í Sköpunarmiðstöðina á Stöðvarfirði. Menningar- og nýsköpunarnefnd þakkar umsóknina en getur því miður ekki orðið við beiðni um styrk.
-
5. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 1902099 Allur ferill málsins
Umsókn Eistnaflugs um menningarstyrk á árinu 2019 vegna verkefnisins Stelpur rokka, litlar rokkbúðir, vinnustofur og sjálfstyrking fyrir börn á Eistnaflugi. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja verkefnið um 120.000 kr.
-
6. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 1902090 Allur ferill málsins
Kristinn Þór Jónasson vék af fundi í tengslum við umfjöllun og afgreiðslu á þessum lið. Umsókn um menningarstyrk á árinu 2019 vegna uppbyggingar æfingahúsnæðis fyrir hljómsveitir á Eskifirði. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja verkefnið um 50.000 kr.
-
7. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 1902089 Allur ferill málsins
Kristinn Þór Jónasson vék af fundi í tengslum við umfjöllun og afgreiðslu á þessum lið. Umsókn um menningarstyrk á árinu 2019 vegna bíósýninga í tengslum við bæjarhátíðina Útsæði - "Leiftur frá liðinni tíð". Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja verkefnið um 50.000 kr.
-
8. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 1902087 Allur ferill málsins
Umsókn um menningarstyrk á árinu 2019 vegna tónleika blásarakvintetts fyrir börn. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja tónleikana um 100.000 kr.
-
9. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 1902085 Allur ferill málsins
Umsókn um menningarstyrk á árinu 2019 vegna uppsetningar á óperunni Koss hrafnsins. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja viðburðinn um 100.000 kr.
-
10. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 1902084 Allur ferill málsins
Umsókn um menningarstyrk á árinu 2019 vegna skráningar muna í Minjasafn Antons Helgasonar á Stöðvarfirði. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja verkefnið um 100.000 kr.
-
11. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 1902081 Allur ferill málsins
Umsókn um menningarstyrk á árinu 2019 vegna pönktónleikaraðarinnar "V-5". Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja verkefnið um 100.000 kr.
-
12. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 1902035 Allur ferill málsins
Umsókn um menningarstyrk á árinu 2019 vegna einleiksins "Skarfur". Menningar- og nýsköpunarnefnd þakkar umsóknina en getur því miður ekki orðið við beiðni um styrk.
-
13. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 1902028 Allur ferill málsins
Umsókn um menningarstyrk á árinu 2019 vegna tónleikaraðarinnar "Silo Sessions" í Sköpunarmiðstöðinni Stöðvarfirði. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja verkefnið um 150.000 kr.
-
14. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 1902025 Allur ferill málsins
Umsókn um menningarstyrk á árinu 2019 vegna bíósýninga í Fjarðabyggð. Menningar- og nýsköpunarnefnd þakkar umsóknina en getur því miður ekki orðið við beiðni um styrk.
-
15. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 1901197 Allur ferill málsins
Umsókn um menningarstyrk á árinu 2019 vegna gerðar heimildamyndar um Sögu Eiðaskóla. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja verkefnið um 100.000 kr.
-
16. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 1901138 Allur ferill málsins
Umsókn um menningarstyrk á árinu 2019 vegna sýninga á örleikritum í leikskólum Fjarðabyggðar. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja verkefnið um 100.000 kr.
-
17. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 1901063 Allur ferill málsins
Umsókn um menningarstyrk á árinu 2019 vegna útgáfu á austfirskri alþýðutónlist. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja verkefnið um 100.000 kr.
-
18. Umsókn um styrki til menningarmála
Mál 1812143 Allur ferill málsins
Umsókn um menningarstyrk á árinu 2019 vegna sýninga Leikhópsins Lottu á leikritinu Rauðhetta. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja verkefnið um 100.000 kr.
-
19. Söngleikur - umsókn um styrk til Menningar-og nýsköpunarnefndar
Mál 1810013 Allur ferill málsins
Umsókn um menningarstyrk á árinu 2019 vegna uppsetningar Djúpsins á söngleiknum Mamma Mía. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að styrkja verkefnið um 100.000 kr.
-
20. Styrkbeiðni vegna sagnfræðirannsóknar
Mál 1901179 Allur ferill málsins
Beiðni Hrafnkels Lárussonar um styrk vegna sagnfræðirannsóknar. Menningar- og nýsköpunarnefnd frestar afgreiðslu málsins.