NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 11
18. mars 2019, kl. 17:00 til 19:16, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Magni Þór Harðarson, formaður
- Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Anna Þórhildur Kristmundsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Kristín Arna Sigurðardóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 606 liður 22
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 11 frá 18.mars 2019, lögð fram til umfjöllunar.
Dagskrá
-
1. Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar
Mál 1805211 Allur ferill málsins
Endurskoðuð drög menningarstefnu lögð fram. Menningar- og nýsköpunarnefnd vísar drögum að menningarstefnu til fastanefnda til kynningar.
-
2. 17. júní 2019
Mál 1902044 Allur ferill málsins
Minnisblað upplýsinga- og kynningarfulltrúa um tilhögun hátiðahalda 17. júní 2019 í Fjarðabyggð. Bæjarráð hefur óskað eftir að menningar- og nýsköpunarnefnd leggi fram tillögu að fyrirkomulagi 17.júní. Menningar- og nýsköpunarnefnd er sammála tillögu í minnisblaði um að hátíðahöldin færist á milli byggðakjarna. Nefndin telur rétt að í samningi bæjarins og framkvæmdaraðila hverju sinni, liggi fyrir kostnaðaráætlun hátíðarinnar og greiðslur og skyldur samningsaðila séu skilgreindar.
-
3. Tendrun jólaljósa 2019
Mál 1902045 Allur ferill málsins
Minnisblað upplýsinga- og kynningarfulltrúa vegna fyrirkomulags viðburða við tendrun jólaljósa 2019. Bæjarráð hefur óskað eftir við menningar- og nýsköpunarnefnd að nefndin leggi fram tillögu að fyrirkomulagi tendrunar jólaljósa 2019. Menningar- og nýsköpunarnefnd er sammála um að leitað verði eftir samstarfi við leik- og grunnskóla um framkvæmd tendrunar ljósa á jólatrjánum. Fræðslustjóra og upplýsinga- og kynningarfulltrúa falið að útfæra og framkvæma tillöguna.
-
4. Tindar og toppar á ensku
Mál 1811102 Allur ferill málsins
Beiðni um styrk vegna þýðingar og útgáfu á bókinni Tindar og Toppar á ensku. Menningar- og nýsköpunarnefnd hefur ekki tök á að veita styrk.
-
5. Styrkbeiðni vegna sagnfræðirannsóknar
Mál 1901179 Allur ferill málsins
Beiðni Hrafnkels Lárussonar um styrk vegna sagnfræðirannsóknar. Menningar- og nýsköpunarnefnd hefur ekki tök á að veita styrk.
-
6. Umhverfisstefna Fjarðabyggðar
Mál 1704067 Allur ferill málsins
Lögð fram að nýju drög að umhverfisstefnu Fjarðabyggðar 2018-2022.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísaði drögum að umhverfisstefnu Fjarðabyggðar 2018-2022 til umfjöllunar menningar- og nýsköpunarnefndar, félagsmálanefndar, fræðslunefndar, hafnarstjórnar, íþrótta- og tómstundanefndar, landbúnaðarnefndar, ungmennaráðs og safnanefndar.
-
7. Fundagerð Héraðsskjalasafns Austurlands 2019
Mál 1903035 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Héraðsskjalasafnsins frá 20.febrúar 2019, lögð fram til kynningar.
-
8. Safnanefnd - 7
Fundargerð safnanefndar nr. 7 lögð fram til umfjöllunar og kynningar. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir fundargerð safnanefndar nr. 7 með 5 atkvæðum.
- 8.1 Hús frístunda1901070
- 8.2 Ritun sögu Fáskrúðsfjarðar 20191802082
- 8.3 740 Afnotasamingur fyrir Egilsbraut 21808028
- 8.4 Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austurlands 20181805082
- 8.5 Málefni Miðstrætis 1 Neskaupstað1902161
- 8.6 Stefnumótun Safnanefndar.1812134
- 8.7 Málefni Safnaráðs Neskaupstaðar.1812131
-
9. Safnanefnd - 8
Fundargerð safnanefndar nr. 8 lögð fram til umfjöllunar og kynningar. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir fundargerð safnanefndar nr. 8 með 5 atkvæðum.