Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 606

25. mars 2019, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 2018

    Mál 1903150 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu vinnslu ársreiknings Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2018.

  2. 2. Sumaropnun leikskóla í Fjarðabyggð árið 2019

    Mál 1903147 Allur ferill málsins

    Rætt um fyrirkomulag sumaropnunar leikskóla í Fjarðabyggð.

  3. 3. Kaup á eign - Egilsbraut 1

    Mál 1903140 Allur ferill málsins

    Framlagður kaupsamningar vegna kaupa á eignarhlut á 1. og 2.hæð Egilsbrautar 1, fastanúmer 222-2487. Um er að ræða makaskipti á eigninni Miðstræti 1, fastanúmer 216-6326.

    Bæjarráð samþykkir kaup á eigninni.

    Fjármögnun vísað til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2019 þegar endanlegur kostnaður liggur fyrir vegna sölu annarra eigna.

  4. 4. Beiðni um samstarf við uppbyggingu á útivistarsvæði

    Mál 1903116 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Skógræktarfélags Neskaupstaðar frá 13.mars, er varðar beiðni um samstarf við uppbyggingu á útivistarsvæði á Norðfirði.

    Bæjarráð líst vel á erindið og felur bæjarstjóra vinnslu þess og ræða við stjórn Skógræktarfélags Neskaupstaðar. Jafnframt er erindi vísað til kynningar eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  5. 5. Reglur um afnot utan opnunartíma Íþróttamiðstöðin í Breiðdal

    Mál 1808159 Allur ferill málsins

    Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til umfjöllunar bæjarráðs reglum um afnot Íþróttahússins í Breiðdal utan opnunartíma. Nefndin hefur samþykkt breytingar á reglunum fyrir sitt leyti og vísar þeim aftur til bæjarráðs. Lagt fram minnisblað íþrótta- og tómstundafulltrúa.

    Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti reglurnar en þær verði endurskoðaðar á næsta ári. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  6. 6. 17. júní 2019

    Mál 1902044 Allur ferill málsins

    Vísað frá menningar- og nýsköpunarnefnd til afgreiðslu bæjarráðs fyrirkomulagi 17. júní hátíðarhalda en nefndin er sammála tillögu í minnisblaði upplýsingafulltrúa frá 6.febrúar sl. um að hátíðahöldin færist á milli byggðakjarna. Nefndin telur rétt að í samningi bæjarins og framkvæmdaraðila hverju sinni, liggi fyrir kostnaðaráætlun hátíðarinnar og greiðslur og skyldur samningsaðila séu skilgreindar.

    Bæjarráð samþykkir tillögu nefndarinnar og felur upplýsingafulltrúa eftirfylgni málsins.

  7. 7. Tendrun jólaljósa 2019

    Mál 1902045 Allur ferill málsins

    Vísað frá menningar- og nýsköpunarnefnd til bæjarráðs tillögu að fyrirkomulagi tendrunar jólaljósa 2019 en nefndin er sammála um að leitað verði eftir samstarfi við leik- og grunnskóla um framkvæmd tendrunar ljósa á jólatrjánum. Nefndin fól fræðslustjóra og upplýsingafulltrúa að útfæra og framkvæma tillöguna.

    Bæjarráð samþykkir tillögu nefndarinnar og felur upplýsingafulltrúa eftirfylgni og innleiðingu hennar í samstarfi með fræðslustjóra.

  8. 8. Ósk um þátttöku í gerð þáttanna Að austan 2019

    Mál 1903154 Allur ferill málsins

    Bréf N4 þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið komi að kostun þáttanna "Að austan" með sambærilegum stuðningi og verið hefur síðustu ár.

    Bæjarráð samþykkir að veitt styrk að fjárhæð 1.000.000 kr. sem er sambærilegur síðasta árs og er þegar ákveðinn í fjárhagsáætlun.

  9. 9. Almennt eftirlit með því að fjármál og fjármálastjórn sveitarfélaga séu í samræmi vð lög og reglur.

    Mál 1903142 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga frá 18.mars 2019. Óskað er upplýsinga um hvernig sveitarfélagið stendur að eftirliti og framkvæmd með fjárfestingum, samkvæmt gildandi fjárhagsáætlun ársins 2019 ásamt viðaukum.

    Vísað til gerðar reglna um fjárhagsáætlun sveitarfélagsins 2020 og til úrvinnslu fjármálastjóra.

  10. 10. Kauptilboð II í Nesbakka 19 2 hæð Neskaupstað

    Mál 1903153 Allur ferill málsins

    Lögð fram tvö kauptilboð frá annars vegar Sigurði Steini Einarssyni og Guðmundi R. Gíslasyni í íbúð á 2.hæð að Nesbakka 19 í Neskaupstað.

    Bæjarráð samþykkir að taka hærra kauptilboði frá Sigurði og felur bæjarstjóra frágang og undirritun samninga vegna kaupanna.

  11. 11. Fækkun opinberra starfa í Fjarðabyggð

    Mál 1903148 Allur ferill málsins

    Farið yfir þróun stöðugilda hjá Heilbrigðistofnun Austurlands og önnur mál tengri þjónustu stofnunarinnar.

  12. 12. 750 Gilsholt 2 - umsókn um lóð

    Mál 1903051 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Sigmars Arnar Harðarsonar, dagsett 11. mars 2019, þar sem sótt er um lóðina við Gilsholt 2 á Fáskrúðsfirði undir íbúðarhúsnæði. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

    Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.

  13. 13. Ársreikningur orkusveitarfélaga 2018 til kynningar

    Mál 1903122 Allur ferill málsins

    Ársreikningur Orkusveitarfélaga 2018 lagður fram til kynningar.

  14. 14. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2019

    Mál 1901217 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar sambandsins frá 15.mars 2019, lögð fram til kynningar.

  15. 15. 710.mál til umsagnar frumvarp til laga um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð

    Mál 1903151 Allur ferill málsins

    Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð, 710. mál. Kynnt umsögn um málið.

    Bæjarráð samþykkir að veitt verði umsögn um málið og felur atvinnu- og þróunarstjóra vinnslu hennar.

  16. 16. 639.mál til umsagnar frumvarp til laga um ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraða fjarskiptaneta

    Mál 1903076 Allur ferill málsins

    Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraða fjarskiptaneta, 639. mál. Lögð fram umsögn bæjarritara.

    Bæjarráð felur bæjarritara að skila umsögn.

  17. 17. 647.mál til umsagnar frumvarp til laga um fiskeldi (áhættumat erfðablöndunar, úthlutun eldissvæða, stjórnvaldssektir o.fl.)

    Mál 1903097 Allur ferill málsins

    Nefndasvið Alþingis óskar umsagnar um frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lagaákvæðum sem tengjast fiskeldi (áhættumat erfðablöndunar, úthlutun eldissvæða, stjórnvaldssektir).

    Bæjarráð samþykkir að veitt verði umsögn um málið og felur atvinnu- og þróunarstjóra vinnslu hennar.

  18. 18. Endurskoðun samnings um útvistun rekstrar Skíðasvæðisins í Oddsskarði 2019

    Mál 1902144 Allur ferill málsins

    Fjallað um efni fundargerðar stýrihóps en hún er trúnaðarmál.

  19. 19. Erindisbréf eigna-,skipulags- og umhverfisnefndar

    Mál 1805115 Allur ferill málsins

    Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til bæjarráðs endurskoðuðu erindisbréfi sem hefur verið uppfært með tilliti til skipulagsbreytinga sem bæjarstjórn staðfest1 21. febrúar sl. ásamt leiðréttingu starfsheita frá fyrri breytingum. Nefndin leggur til að við fullnaðarafgreiðslur nefndarinnar verði bætt umfjöllun um grenndarkynningu sbr. 44. gr. skipulagslaga nr.123/2010 og vegna meðmæla við stofnun lóða samkvæmt 13. gr. jarðalaga nr. 81/2004.

    Bæjarráð vísar tillögum nefndarinnar til skoðunar bæjarritara.

  20. 20. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 228

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 228 frá 18.mars 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 20.3 Búfjárhald og búfjársamþykkt1811014
    2. 20.4 Efnistökusvæði í Fjarðabyggð1702159
    3. 20.5 Framkvæmdir 2019 - yfirlit frá framkvæmdasviði1902078
    4. 20.6 Ályktun sameiginlegs fundar vegna Skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði1903057
    5. 20.7 Erindisbréf eigna-,skipulags- og umhverfisnefndar1805115
    6. 20.8 750 Gilsholt 2 - umsókn um lóð1903051
    7. 20.9 700 Breyting á ASK Fljótdalshéraði, Geitdalsvirkjun1903087
    8. 20.10 Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-20271810136
  21. 21. Íþrótta- og tómstundanefnd - 58

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 58 frá 18.mars 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 21.1 Ástand húsnæða í félagsmiðstöðvum Fjarðabyggðar
    2. 21.2 Reglur um afnot utan opnunartíma Íþróttamiðstöðin í Breiðdal
    3. 21.3 Umhverfisstefna Fjarðabyggðar
    4. 21.4 Úthlutun Íþróttastyrkja 2019
    5. 21.5 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð
  22. 22. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 11

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 11 frá 18.mars 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 22.1 Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar1805211
    2. 22.2 17. júní 20191902044
    3. 22.3 Tendrun jólaljósa 20191902045
    4. 22.4 Tindar og toppar á ensku1811102
    5. 22.5 Styrkbeiðni vegna sagnfræðirannsóknar1901179
    6. 22.6 Umhverfisstefna Fjarðabyggðar1704067
    7. 22.7 Fundagerð Héraðsskjalasafns Austurlands 20191903035
    8. 22.8 Safnanefnd - 71902009F
    9. 22.9 Safnanefnd - 81903005F
  23. 23. Safnanefnd - 7

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð safnanefndar, nr. 7 frá 26.febrúar 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 23.1 Hús frístunda1901070
    2. 23.2 Ritun sögu Fáskrúðsfjarðar 20191802082
    3. 23.3 740 Afnotasamingur fyrir Egilsbraut 21808028
    4. 23.4 Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austurlands 20181805082
    5. 23.5 Málefni Miðstrætis 1 Neskaupstað1902161
    6. 23.6 Stefnumótun Safnanefndar.1812134
    7. 23.7 Málefni Safnaráðs Neskaupstaðar.1812131
  24. 24. Safnanefnd - 8

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð safnanefndar, nr. 8 frá 12.mars 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 24.1 8. fundur safnanefndar, þriðjudaginn 12. mars, kl.15:00. Vettvangsheimsókn á Stöðvarfjörð og í Breiðdal.1903037