Bæjarráð, fundur 607
1. apríl 2019, kl. 10:00 til 12:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Dagskrá
-
1. Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 2018 TRÚNAÐARMÁL
Mál 1903150 Allur ferill málsins
Endurskoðandi Fjarðabyggðar gerði grein fyrir vinnu við ársreikning Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2018.
Ársreikningur verður lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn 11. apríl nk.
-
2. Ársreikningur Hulduhlíðar 2018
Mál 1903145 Allur ferill málsins
Vísað frá félagsálanefnd til afgreiðslu bæjarráðs ársreikningi Hulduhlíðar fyrir árið 2018. Einnig lögð fram endurskoðunarskýrsla Deloitte um ársreikninginn. Endurskoðandi hefur kynnt ársreikninginn í félagsmálanefnd sem samþykkti ársreikninginn á fundi 26.mars sl.
Bæjarráð vísar ársreikningi til ársreikningagerðar sveitarfélagsins 2018.
-
3. Ársreikningur Uppsala 2018
Mál 1903146 Allur ferill málsins
Vísað frá félagmálanefnd til afgreiðslu bæjarráðs ársreikningi Uppsala fyrir árið 2018. Einnig lögð fram endurskoðunarskýrsla Deloitte um ársreikninginn. Endurskoðandi hefur kynnt ársreikninginn í félagsmálanefnd sem samþykkti ársreikning á fundi 26.mars sl.
Bæjarráð vísar ársreikningi til ársreikningagerð sveitarfélagsins 2018.
-
4. 750 Vantstankur - Umsókn um lóð
Mál 1903013 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd lóðarumsókn Fjarðabyggðar, dagsett 4. mars 2019, þar sem sótt er um lóð undir vatnstank ofan við byggðina á Fáskrúðsfirði, þar sem bráðabirgðatankur vatnsveitu er nú staðsettur. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt að úthluta lóðinni. Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar.
-
5. Endurheimtur á votlendi
Mál 1709071 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd staðfestingu á uppfærðri tillögu að endurheimt votlendissvæða á Hólmum og Kollaleiru en hafnarstjórn hefur jafnframt fjallað um tillöguna.
Bæjarráð vísar til fyrri samþykktar sinnar en bæjarstjóra hefur þegar verið falið að ganga frá samningi við Landgræðsluna.
-
6. Uppbygging ferðamannastaða í Fjarðabyggð
Mál 1804020 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu framkvæmda við uppbyggingu ferðamannastaða í Fjarðabyggð en á árinu verður lokið við Söxu, Hólmanes og Geithúsárgil. Framkvæmdir við fólkvanginn á Norðfirði hefjast á árinu.
-
7. Hafnarstjórn - 217
Fundargerð hafnarstjórnar, frá 25.mars 2019, lögð fram til umfjöllunar.
- 7.1 Skýrsla um ástand Norðfjarðarár1903090
- 7.2 Veiðar á göngusilungi1903149
- 7.3 Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar1805211
- 7.4 Skemmtiferðaskipakomur 20191705073
- 7.5 Beiðni um undanþágu frá hafnsöguskyldu Frigg W1902105
-
8. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 229
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 229 frá 25.mars 2019, lögð fram til umfjöllunar.
- 8.1 Endurskoðuð fjallskilasamþykkt1903139
- 8.2 Gönguleið upp með Bleiksá1903110
- 8.3 Skýrsla um ástand Norðfjarðarár1903090
- 8.4 Landsskipulagsstefna 2015-20261903130
- 8.5 760 Breiðdalsá - Framkvæmdaleyfi, efnistaka og brúargerð1903131
- 8.6 735 Lambeyrarbraut 3 - umsókn um stöðuleyfi1903133
- 8.7 740 Hafnarbraut 52 - umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi1902212
- 8.8 750 Vantstankur - Umsókn um lóð1903013
- 8.9 715 Fjörður 1 - Kæra til ÚUA1801001
- 8.10 Beiðni um framlengingu á stöðuleyfi starfsmannabúða að Haga 2018-20191811025
- 8.11 Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar1805211
- 8.12 Endurheimtur á votlendi1709071
-
9. Félagsmálanefnd - 121
Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 121 frá 26.mars 2019, lögð fram til umfjöllunar.
- 9.1 Ársreikningur Hulduhlíðar 20181903145
- 9.2 Ársreikningur Uppsala 20181903146
- 9.3 Garðsláttur1806144
- 9.4 Fyrirspurn vegna ábendingar um misbrest í þjónustu sveitarfélagsins við fatlaða einstaklinga1903050
- 9.5 Fyrirspurn um notendaráð fatlaðs fólks1902107
- 9.6 Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar1805211
- 9.7 Umhverfisstefna Fjarðabyggðar1704067
- 9.8 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð1808078
- 9.9 PLACE-EE1709179