Félagsmálanefnd, fundur 121
22. mars 2019, kl. 15:00 til 17:05, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
- Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
- Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
- Valdimar Másson, aðalmaður
- Lára Elísabet Eiríksdóttir, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 607 liður 9
Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 121 frá 26.mars 2019, lögð fram til umfjöllunar.
Dagskrá
-
1. Ársreikningur Hulduhlíðar 2018
Mál 1903145 Allur ferill málsins
Framlagður ársreikningur Hulduhlíðar fyrir árið 2018 og efnahagsreikningur í lok árs 2018. Einnig lögð fram endurskoðunarskýrsla Deloitte um ársreikninginn. Sigurður endurskoðandi kynnti ársreikninginn.
Félagsmálanefnd samþykkir ársreikning Hulduhlíðar fyrir árið 2018 og vísar honum til bæjarráðs.
-
2. Ársreikningur Uppsala 2018
Mál 1903146 Allur ferill málsins
Framlagður ársreikningur Uppsala fyrir árið 2018 og efnahagsreikningi í lok árs 2018. Einnig lögð fram endurskoðunarskýrsla Deloitte um ársreikninginn. Sigurður endurskoðandi kynnir ársreikninginn. Félagsmálanefnd samþykkir ársreikning Uppsala fyrir árið 2018 og vísar til bæjarráðs.
-
3. Garðsláttur
Mál 1806144 Allur ferill málsins
Framlögð eru endurbætt drög að reglum um snjómokstur þar sem athugasemdir nefndar frá síðasta fundi eru teknar til greina.
Félagsmálanefnd samþykkir drög að reglum um snjómokstur og vísar til bæjarráðs.
-
4. Fyrirspurn vegna ábendingar um misbrest í þjónustu sveitarfélagsins við fatlaða einstaklinga
Mál 1903050 Allur ferill málsins
Fært í trúnaðarbók.
-
5. Fyrirspurn um notendaráð fatlaðs fólks
Mál 1902107 Allur ferill málsins
Framlögð er fyrirspurn Öryrkjabandalags Íslands er varðar notendaráð fatlaðs fólks. Félagsmálastjórar Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs svöruðu bréfinu þar sem um sameiginlegt notendaráð er að ræða. Kynnt í félagsmálanefnd.
-
6. Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar
Mál 1805211 Allur ferill málsins
Menningar- og nýsköpunarnefnd vísar drögum að menningarstefnu til fastanefnda til kynningar og umfjöllunar. Kynnt í félagsamálanefnd.
-
7. Umhverfisstefna Fjarðabyggðar
Mál 1704067 Allur ferill málsins
Lögð fram að nýju drög að umhverfisstefnu Fjarðabyggðar 2018-2022.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar drögum að umhverfisstefnu Fjarðabyggðar 2018-2022 til umfjöllunar í menningar- og nýsköpunarnefnd, félagsmálanefnd, fræðslunefnd, hafnarstjórn, íþrótta- og tómstundanefnd, landbúnaðarnefnd, ungmennaráð og safnanefnd. Kynnt í félagsmálanefnd.
-
8. Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð
Mál 1808078 Allur ferill málsins
Formaður og félagsmálastjóri greina frá hugmyndafundum vegna endurskoðunar á stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð. Næsti fundur í stefnumörkunarvinnu er 27. mars og þá verður farið yfir afrakstur hugmyndafundanna.
-
9. PLACE-EE
Mál 1709179 Allur ferill málsins
Félagsmálastjóri greinir frá stöðu Place-ee verkefnisins og áframhaldandi vinnu við það.