Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 122

7. maí 2019, kl. 16:00 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður
  • Lára Elísabet Eiríksdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2020 - 2023

    Mál 1904128 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að reglum um gerð fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2020 - 2023.

    Reglunum vísað til kynningar í nefndum sveitarfélagsins og til framkvæmdar hjá sviðsstjórum.

    Kynnt í félagsmálanefnd.

  2. 2. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2020

    Mál 1904135 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri mætir á fundinn og fylgir úr hlaði vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2020.

    Félagsmálanefnd vísar vinnu við fjárhagsáætlun til félagsmálastjóra.

  3. 3. Breyting á bankaviðskiptum

    Mál 1904014 Allur ferill málsins

  4. 4. Niðurstöður Rannsóknar og greiningar á notkun vímuefna í 8-10 bekk

    Mál 1904142 Allur ferill málsins

    Niðurstöður Rannsóknar og greiningar á notkun vímuefna í 8.-10. bekk lögð fram til kynningar.

  5. 5. Beiðni um afhendingu á jafréttisáætlun ásamt framkvæmdaáætlun

    Mál 1903123 Allur ferill málsins

    Jafnréttisstofa hefur móttekið og yfirfarið jafnréttisstefnu Fjarðabyggðar og metur það svo að stefnan uppfylli ekki kröfur 12. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.

    Félagsmálastjóra falið að gera endurbætur á jafnréttisstefnunni.

  6. 6. 771.mál til umsagnar tillöga til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar 2019-2022

    Mál 1905015 Allur ferill málsins

    Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun á

    sviði barnaverndar 20192022,771. mál.

    Kynnt í félagsmálanefnd.

  7. 7. Invitation to Nordic Research Project

    Mál 1905020 Allur ferill málsins

    Framlagt er bréf frá Nordregio varðandi þátttöku Fjarðabyggðar í rannsókn á stafrænum lausnum í velferðarþjónustu.

    Félagsmálanefnd samþykkir þátttöku Fjarðabyggðar í verkefninu.

  8. 8. Aksturþjónusta fyrir fatlað fólk 2019

    Mál 1904034 Allur ferill málsins

    Framlagt er bréf frá Samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneyti til kynningar í félagsmálanefnd. Í nýrri reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga kemur inn nýtt viðmið sem ætlað er að koma til móts við kostnað vegna akstursþjónustu fatlaðs fólks úr dreifbýli.

    Kynnt í félagsmálanefnd.

  9. 9. Bréf NPA miðstöðvarinnar til sveitarfélaga

    Mál 1904061 Allur ferill málsins

    Framlögð eru bréf og minnisblað NPA miðstöðvarinnar til sveitarfélaga ásamt svari sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd sveitarfélaganna til kynningar í félagsmálanefnd. Kynnt í félagsmálanefnd.

  10. 10. Heilsuefling 65 ára og eldri í Fjarðabyggð

    Mál 1802096 Allur ferill málsins

    Á fundi bæjarráðs 8.apríl var farið yfir verkefni í heilsueflingu eldri aldusrshópa á Íslandi og þjónustu henni tengdri til heilsueflingar, aukinna lífsgæða og bættri nýtingu fjármagns. Vísað til félagsmálanefndar og íþrótta- og tómstundanefndar til kynningar. Málinu vísað til íþrótta- og tómstundafulltrúa til áframhaldandi vinnslu. Kynnt í félagsmálanefnd.

  11. 11. Reglur um garðslátt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega

    Mál 1806144 Allur ferill málsins

    Bæjarráð hefur samþykkt reglur um garðslátt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega með breytingum og vísar þeim til kynningar í félagsmálanefnd og eigna- skipulags- og umhverfisnefnd. Kynnt í félagsmálanefnd.

  12. 12. Reglur um snjómokstur fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega

    Mál 1904081 Allur ferill málsins

    Bæjarráð hefur samþykkt reglur um snjómokstur fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega með breytingum og vísar þeim til kynningar í félagsmálanefnd og eigna- skipulags- og umhverfisnefnd. Kynnt í félagsmálanefnd.

  13. 13. 711.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni (neyslurými),

    Mál 1903169 Allur ferill málsins

    Framlagt er frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni til umsagnar. Umsagnarfrestur er liðinn og því er frumvarpið lagt til kynningar í félagsmálanefnd. Kynnt í félagsmálanefnd.

  14. 14. Öldungaráð - 1

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð öldungaráðs lögð fram til kynningar.

    1. 14.1 Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2018 - 20221806029
    2. 14.2 Erindisbréf öldungaráðs1805131
    3. 14.3 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð1808078
    4. 14.4 Öldungaráð 2018 - ný og breytt ákvæði1806076