Niðurstöður Rannsóknar og greiningar á notkun vímuefna í 8-10 bekk
Mál 1904142 Fyrst á dagskrá 7. maí 2019, síðast 8. maí 2019. 2 færslur í fundargerðum hjá: Fræðslunefnd, Félagsmálanefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2019
Félagsmálanefnd, fundur 122 liður 4
Niðurstöður Rannsóknar og greiningar á notkun vímuefna í 8.-10. bekk lögð fram til kynningar.
-
Fræðslunefnd, fundur 69 liður 5
Fyrir liggja niðurstöður Rannsóknar og greiningar úr vímuefnakönnun meðal nemenda í 8. til 10. bekk frá í febrúar 2019. Staðan á landsvísu er svipuð og undanfarin ár og ekki er aukningu í ölvunardrykkju né marijúananeyslu nemenda í 10. bekk yfir landið. Hins vegar eru tæplega 40% nemenda í 10. bekk sem hafa notað rafrettur/veipað og um 9% tíundubekkinga sem eru daglegir notendur og hátt hlutfall er bæði yfir landið og í Fjarðabyggð. Fræðslunefnd lýsir áhyggjum yfir stöðunni. Forvarnarfræðsla er í gangi hjá Fjarðabyggð, allir í 10. bekk fengu fræðslu í mars og framundan er fræðsla fyrir nemendur í 7.-10. bekk. Mikilvægt er að vera í góðu samstarfi við foreldra og veita þeim fræðslu.