Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 123

20. maí 2019, kl. 16:00 til 18:15, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
  • Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður
  • Lára Elísabet Eiríksdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 616 liður 15

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 123 frá 20.maí 2019, lögð fram til umfjöllunar.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsaðstoð - Vegna tryggingar húsnæðis

    Mál 1905084 Allur ferill málsins

    Fært í trúnaðarbók.

  2. 2. Breyting á bankaviðskiptum

    Mál 1904014 Allur ferill málsins

    Sameining bankaviðskipti hjúkrunarheimilanna. Lögð fram gögn til undirritunar af stjórn til að veita framkvæmdastjóra heimild til að færa bankaviðskipti Hulduhlíðar.

  3. 3. Málefni fatlaðra barna

    Mál 1905090 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd tekur undir mikilvægar ábendingar varðandi snemmtæka íhlutun og felur félagsmálastjóra áframhaldandi vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun.

  4. 4. Snemmtæk íhlutun og starfsumhverfi í félagsþjónustu

    Mál 1905093 Allur ferill málsins

    Áframhaldandi vinna við starfs- og fjárhagsáætlun.

  5. 5. Tómstundir eldri borgara

    Mál 1905092 Allur ferill málsins

    Vísað til fræðslunefndar og íþrótta- og tómstundanefndar til frekari umfjöllunar.

  6. 6. Dagdvöl aldraðra

    Mál 1905089 Allur ferill málsins

    Félagsmálastjóra falið að meta þörf fyrir dagdvalarrými.

  7. 7. Reglur um fjárhagsaðstoð 2019

    Mál 1905091 Allur ferill málsins

    Framlagt er minnisblað félagsmálastjóra með tillögum að breytingum á reglum um fjárhagsaðstoð. Félagsmálanefnd samþykkir breytingarnar og felur félagsmálastjóra að uppfæra reglur um fjárhagsaðstoð.

  8. 8. Beiðni um afhendingu á jafréttisáætlun ásamt framkvæmdaáætlun

    Mál 1903123 Allur ferill málsins

    Jafnréttisstofa fór yfir jafnréttisáætlun Fjarðabyggðar og mat það svo að hún uppfylli ekki kröfur 12. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Félagsmálastjóra var falið að gera endurbætur á áætluninni. Framlagt er minnisblað félagsmálastjóra með tillögu að breytingu á framkvæmdaráætlun jafnréttisáætlunar Fjarðabyggðar. Félagsmálanefnd samþykkir breytingar á framkvæmdaáætlun og vísar til staðfestingar bæjarráðs.