Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 124

20. ágúst 2019, kl. 16:00 til 17:15, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður
  • Lára Elísabet Eiríksdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Þóroddur Helgason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 627 liður 10

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 124 lögð fram til umfjöllunar.

  • Bæjarstjórn, fundur 273 liður 3

    Til máls tóku: Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 20. ágúst sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Könnun á tómstundariðkun barna í Fjarðabyggð

    Mál 1906023 Allur ferill málsins

    Íþrótta- og tómstundafulltrúi kannaði vorið 2019 tómstundaiðkun barna í 5.-10. bekk grunnskólanna í Fjarðabyggð. Frumniðurstöðum er vísað til kynningar í íþrótta- og tómstundanefnd, fræðslunefnd, félagsmálanefnd og menningar- og nýsköpunarnefnd. Félagsmálanefnd lýsir ánægju sinni með framtakið. Lagt fram til kynningar.

  2. 2. 825.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um hagsmunafulltrúa aldraðra

    Mál 1905103 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar þingsályktunartillaga um hagsmunafulltrúa aldraðra.

  3. 3. Velferð barna - Unicef á íslandi

    Mál 1905105 Allur ferill málsins

    Vísað til kynningar í félagsmálanefnd áskorun frá UNICEF á Íslandi. UNICEF hvetur öll sveitarfélög til að setja sér heildstætt og samræmt verklag, ef upp kemur grunur um ofbeldi og vanrækslu hjá stofnunum sem starfa með börnum. Félagsmálanefnd tekur undir erindi UNICEF og vísar því til úrvinnslu sviðstjóra fjölskyldusviðs.

  4. 4. Iþróttasambandi fatlaðra vegna heimsóknar á Austurland 2019

    Mál 1907042 Allur ferill málsins

    Íþróttasamband fatlaðra mun heimsækja Austurland haustið 2019 þar sem staða íþróttamála verður skoðuð nánar. Rætt verður við fulltrúa UÍA og íþróttahreyfingarinnar en jafnframt óskað eftir fundi með lykilfólki í stjórnsýslu sem starfa að málefnum fatlaðra. Félagsmálanefnd þakkar sambandinu fyrir frumkvæðið og vonast til að ferðin verði árangursrík. Fjölskyldusvið hefur þegið boðið og fulltrúar þess munu mæta til fundarins, sem haldinn verður á Egilsstöðum mánudaginn 26. ágúst.

  5. 5. Landsfundur um jafnréttismál sveitarfélaga 4.-5. september 2019

    Mál 1907031 Allur ferill málsins

    Boðað hefur verið til landsfundar um jafnréttismál sveitarfélaga dagana 4. og 5. september í Garðabæ. Félagsmálanefnd mun senda einn fulltrúa úr félagsmálanefnd til fundarins.

  6. 6. Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 10

    Fundargerðin í heild

    Tíunda fundargerð framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð lögð fram til staðfestingar. Félagsmálanefnd staðfestir fundargerðina.

    1. 6.1 Lyfjaherbergi og lyfjamál á Uppsölum
    2. 6.2 Rekstur Uppsala 2019
    3. 6.3 Rekstur Hulduhlíðar 2019
    4. 6.4 Erindi um öldrunarmál
    5. 6.5 Staða samningamála fyrir þjónustu hjúkrunarheimila
  7. 7. Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 11

    Fundargerðin í heild

    Ellefta fundargerð framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð lögð fram til staðfestingar. Félagsmálanefnd staðfestir fundargerðina.

    1. 7.1 Endurnýjun húsnæðis Uppsala
    2. 7.2 Rekstur Uppsala 2019
    3. 7.3 Rekstur Hulduhlíðar 2019
    4. 7.4 Starfs- og fjárhagsáætlun hjúkrunarheimila 2020
    5. 7.5 Breyting á bankaviðskiptum
    6. 7.6 Staða samningamála fyrir þjónustu hjúkrunarheimila
    7. 7.7 Aukinn fjöldi hjúkrunarrýma á Uppsölum
  8. 8. Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 12

    Fundargerðin í heild

    Tólfta fundargerð framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð lögð fram til staðfestingar. Félagsmálanefnd staðfestir fundargerðina.

    1. 8.1 Rekstur hjúkrunarheimila 2019
    2. 8.2 Endurnýjun húsnæðis Uppsala
    3. 8.3 Niðurstöður þarfagreiningar fyrir hjúkrunarrými landsins
    4. 8.4 Lögmæti breytinga á rammasamningi hjúkrunarheimila
  9. 9. Framtíðarþing um farsæla öldrun - Beiðni um styrk

    Mál 1908055 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur bréf frá félagi eldri borgara á Fljótsdalshéraði þar sem óskað er eftir styrk til þess að halda málþing um farsæla öldrun. Málþingið verður haldið á Egilsstöðum 10. október í samráði við Öldrunarráð Íslands og Landssamband eldri borgara. Félagsmálanefnd samþykkir að veita 100.000 kr. styrk og hvetur jafnframt eldri borgara í Fjarðabyggð til þess að taka þátt í málþinginu.