Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 627

26. ágúst 2019, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 273 liður 1

    Til máls tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir, Dýrunn Pála Skaftadóttir

    Fundargerð bæjarráðs frá 26. ágúst sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2020 - 2023

    Mál 1904128 Allur ferill málsins

    Farið yfir drög að rammaúthlutun vegna fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020.

    Framlögð greining fjármálastjóra um sjóðsstöðu og rekstur ársins 2019.

    Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlunargerð 2020 og tekið fyrir á næsta fundi bæjarráðs.

  2. 2. Ósk um aukið framlag til barnaverndarmála

    Mál 1908075 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni barnaverndarnefndar um 14 milljóna kr. aukið framlag til barnaverndarmála á árinu 2019 vegna aukins kostnaðar.

    Bæjarráð samþykkir að veita aukið framlag til barnaverndarmála og vísar beiðninni til fjármálastjóra til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2019.

  3. 3. Ósk um kaup á Þinghólsvegi 9 Mjóafirði

    Mál 1908058 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Jóhönnu Lárusdóttur þar sem óskað er eftir viðræðum um kaup á Þinghólsvegi 9 í Mjóafirði.

    Eignin er ekki á sölulista eigna og verður ekki seld að svo komnu máli. Bæjarstjóra falið að ræða við bréfritara um leigu eignarinnar og framtíðarnot hennar.

  4. 4. Nóri - Þjónustusamningur við GML (Greiðslumiðlun, Motus og Lögheimtunnar)

    Mál 1908071 Allur ferill málsins

    Starfshópur um endurskoðun fræðslu- og frístundastefnu leggur til að Fjarðabyggð taki upp kerfið Nóra. Nóri er upplýsinga-, þjónustu og innheimtukerfi fyrir íþróttafélög, félagasamtök, fyrirtæki og sveitarfélög. Fyrir liggur drög að samningi við Greiðslumiðlun ehf. o.fl. vegna samnings um Nóra kerfið. Kostnaður við kerfið rúmast innan fjárhagsáætlunar.

    Bæjarráð samþykkir samninga vegna kerfisins og felur bæjarstjóra undirritun þeirra.

  5. 5. Sumarnámskeið 2019

    Mál 1903029 Allur ferill málsins

    Minnisblað íþrótta- og tómstundafulltrúa um framkvæmd og uppgjör tilraunarverkefnisins Sumarfrístund á Reyðarfirði. Samkvæmt niðurstöðum könnunar sem send var til foreldra barna sem tóku þátt var mikil ánægja með verkefnið.

    Bæjarráð fagnar því að tilraunaverkefnið hefur borið jafn góðan árangur og raun ber vitni. Minnisblaði er vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2020 og lagt til að verkefnið, Sumarfrístund, verði útfært í öðrum bæjarkjörnum á árinu 2020.

  6. 6. Evrópuvika svæða og borga 7.-10. október 2019

    Mál 1908073 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar tölvupóstur Sambands íslenskra sveitarfélaga um Evrópuviku svæða og borga 7.-10. október 2019.

  7. 7. Heimsókn til Gavelines í september

    Mál 1901157 Allur ferill málsins

    Boð frá Gravelines á hina árlegu Íslandshátíð sem haldin verður 27. - 29. september nk.

    Fulltrúar Fjarðabyggðar verða bæjarstjóri og forseti bæjarstjórnar á Íslandsdögunum.

  8. 8. Aðalfundur í stjórn Breiðdalsseturs 2019

    Mál 1907108 Allur ferill málsins

    Aðalfundur Breiðdalsseturs verður haldinn 7. september nk. Tilnefna þarf einn fulltrúa og annan til vara í stjórn setursins. Bæjarráð tilnefndir Karl Óttar Pétursson bæjarstjóra sem aðalmann og Önnu Margréti Birgisdóttur sem varamann í stjórn Breiðdalsseturs.

  9. 9. Fræðslunefnd - 72

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar nr. 72 lögð fram til umfjöllunar.

    1. 9.1 Könnun á tómstundariðkun barna í Fjarðabyggð1906023
    2. 9.2 Undirskriftarlisti vegna frestunar á stækkun húsnæðis skólans1906040
    3. 9.3 Málefni Sköpunarmiðstöðvarinnar 2018 og 20191808065
    4. 9.4 Samningur um skólaakstur í Breiðdal1808108
    5. 9.5 Göngum í skólann 20191908041
    6. 9.6 Sundlaug Íþróttamiðstöðvar Reyðarfjarðar1908022
    7. 9.7 TALIS skýrsla Starfshættir og viðhorf kennara og skólastjóra á unglingastigi grunnskóla1906094
    8. 9.8 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð1808078
  10. 10. Félagsmálanefnd - 124

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 124 lögð fram til umfjöllunar.

    1. 10.1 Könnun á tómstundariðkun barna í Fjarðabyggð1906023
    2. 10.2 825.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um hagsmunafulltrúa aldraðra1905103
    3. 10.3 Velferð barna - Unicef á íslandi1905105
    4. 10.4 Iþróttasambandi fatlaðra vegna heimsóknar á Austurland 20191907042
    5. 10.5 Landsfundur um jafnréttismál sveitarfélaga 4.-5. september 20191907031
    6. 10.6 Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 101902001F
    7. 10.7 Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 111905012F
    8. 10.8 Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 121906018F
    9. 10.9 Framtíðarþing um farsæla öldrun - Beiðni um styrk1908055
  11. 11. Barnaverndarfundargerðir 2019

    Mál 1902124 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 103, 104 og 106 lagðar fram til umfjöllunar.