Göngum í skólann 2019
Mál 1908041 Fyrst á dagskrá 21. ágúst 2019, síðast 29. ágúst 2019. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: SamgöngurSkólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2019
Fræðslunefnd, fundur 72 liður 5
Fyrir liggur bréf frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands þar sem vakin er athygli á verkefninu Göngum í skólann (www.iwalktoschool.org) sem verður sett í tólfta sinn 4. september næstkomandi og lýkur formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum miðvikudaginn 2. október. Markmið verkefnisins er að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Í bréfinu er óskað eftir liðsinni sveitarfélaga til að hvetja alla skóla innan sveitarfélagsins til þátttöku og auðvelda foreldrum og börnum að velja virkan ferðamáta. Fræðslunefnd tekur vel í erindið og hvetur skólastjórnendur, starfsfólk og foreldra til þátttöku.
-
Bæjarráð, fundur 627 liður 9.5
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 72“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 273 liður 2.5
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 72“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.