Bæjarráð, fundur 626
15. ágúst 2019, kl. 09:00 til 10:59, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 272 liður 5
Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu. Bæjarráð afgreiddi mál fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Dagskrá
-
1. Rekstur málaflokka 2019 TRÚNAÐARMÁL
Mál 1904033 Allur ferill málsins
Framlagt yfirlit yfir rekstur málaflokka og fjárfestingar janúar - júní 2019 og skatttekjur og launakostnað janúar - júlí 2019.
-
2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2020 - 2023
Mál 1904128 Allur ferill málsins
Lögð fram umfjöllun og tillögur fjármálastjóra um forsendur tekju- og gjaldaliða fyrir fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2020 og 3ja ára áætlun fyrir árin 2021 - 2023. Jafnframt fylgir þjóðhagsspá Hagstofu Íslands og bréf frá hagdeild Sambands íslenskra sveitarfélaga er varðar forsendur fyrir vinnslu fjárheimilda fyrir árið 2020.
-
3. Kauptilboð í Hrauntún 6 Breiðdalsvík
Mál 1908027 Allur ferill málsins
Framlagt gagntilboð kaupanda við gagntilboði Fjarðabyggðar vegna Hrauntúns 6 á Breiðdalsvík. Fjármálstjóri leggur til að gagntilboði kaupanda verði tekið. Bæjarráð samþykkir að ganga að gagntilboði kaupanda.
-
4. Kauptilboð í hesthús að Símonartúni
Mál 1908038 Allur ferill málsins
Kauptilboð frá Guðmundi Péturssyni í hesthús að Símonartúni á Eskifirði. Kaupandi mun kosta niðurrif og brottflutning hússins en ekki verður um aðrar greiðslur að ræða. Sviðsstjóri framkvæmdasviðs mælir með töku tilboðsins. Bæjarráð samþykkir kauptilboð og felur fjármálastjóra að ganga frá samkomulagi við kaupanda um að gengið verði vel frá svæðinu af hans hálfu.
-
5. Sundlaug Íþróttamiðstöðvar Reyðarfjarðar
Mál 1908022 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað um framkvæmd sundkennslu á Reyðarfirði og ástand sundlaugar íþróttahússins. Bæjarráð felur framkvæmdasviði að fá fagaðila til að greina betur raunkostnað og framkvæmd við viðgerð á sundlaug íþróttahússins á Reyðarfirði. Jafnframt er fræðslustjóra, í samráði við skólastjórnendur, falið að finna lausn á sundkennslu fyrir nemendur í Grunnskóla Reyðarfjarðar, ef ekki tekst að koma sundlauginni í nothæft ástand á komandi haustönn 2019.
-
6. Verkaefnalisti fyrir Skíðamiðstöðina í Oddskarði
Mál 1710048 Allur ferill málsins
Atvinnu- og þróunarstjóri, íþrótta- og tómstundafulltrúi og sviðsstjóri framkvæmdasviðs hafa forgangsraðað verkefnum og metið kostnað framkvæmdaliða vegna endurbóta á skíðasvæðinu í Oddsskarði. Bæjarráð staðfestir forgangsröðun eins og hún er sett fram í minnisblaði og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að halda utan um verkefnið og kostnað vegna þess. Vísað til kynningar í íþrótta- og tómstundanefnd og eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.
-
7. Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun ríkisins í málefnum sveitarfélaga
Mál 1908034 Allur ferill málsins
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 206/2019 - Tillaga til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun ríkisins í málefnum sveitarfélaga. Umsagnarfrestur er til og með 10.september.
-
8. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 239
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 239 lögð fram til umfjöllunar.
- 8.1 Samráð - Stefna í úrgangsmálum1907063
- 8.2 Ensk nöfn á íslenskum stöðum1907079
- 8.3 Beiðni um umsögn vegna strenglagningar í Austdal við Seyðisfjörð1907071
- 8.4 Lagning ökutækja við Strandgötu Eskifirði1907057
- 8.5 735 Strandgata 2 - umsókn um stöðuleyfi1907097
- 8.6 735 Strandgata 4 - umsókn um stöðuleyfi1907098
- 8.7 760 Sæberg 8 - Umsókn um stöðuleyfi1907085
- 8.8 730 - Búðareyri 11-13 - Umsókn um stöðuleyfi við biktank Vegagerðar á Reyðarfirði1908002
- 8.9 755 Deiliskipulag Heyklif1904069
- 8.10 Staða úthlutaðra óbyggðra lóða1907076
- 8.11 735 Dalbraut 4 - Stjórnsýslukæra vegna samþykktar byggingaráforma1908026
- 8.12 750 Skólavegur 12 og 14 - Kæra vegna sólpalls og skjólveggs á lóðamörkum1907106
- 8.13 730 Árgata - Afturköllun á hundaleyfi1904054