Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 625

1. ágúst 2019, kl. 08:30 til 09:50, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 272 liður 4

    Fundargerðir bæjarráðs eru lagðar fram sameiginlega til kynningar og umræðu. Bæjarráð afgreiddi mál fullnaðarafgreiðslu í sumarleyfi bæjarstjórnar.

Dagskrá

  1. 1. Almenningssamgöngur í Fjarðabyggð

    Mál 1904072 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað um störf starfshóps um almenningssamgöngur í Fjarðabyggð, ásamt fundargerðum starfshópsins frá 24.apríl og 27.júní sl. Lögð fram tilboð ViaPlan og Eflu í mat á verkefninu. Upplýsingafulltrúa falið að yfirfara forsendur í báðum tilboðum og semja við ViaPlan að því gefnu að allar forsendur séu fyrir hendi í þeirra tilboði. Upplýsingafulltrúa er jafnframt falið að halda utan um framgang verkefnisins.

  2. 2. Umsókn um lán frá Ofanflóðasjóði 2019

    Mál 1905074 Allur ferill málsins

    Framlagt skuldabréf frá Ofanflóðasjóði vegna framkvæmda við ofanflóðavarnir, á árinu 2018 í Fjarðabyggð að upphæð 18,2 milljónir kr. Áður á dagskrá bæjarráðs 20. maí 2019.

    Bæjarráð staðfestir lántöku og felur bæjarstjóra undirritun skuldabréfsins.

  3. 3. 730 Brekkugata 3 - umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

    Mál 1804128 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Þorvaldar Aðalsteinssonar er varðar lóðarsamning Brekkugötu 3 á Reyðarfirði og skipulagsmál miðbæjar Reyðarfjarðar. Vísað til sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs til úrvinnslu og að því búnu til afgreiðslu í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.

  4. 4. Náttúrusvæði í Fjarðabyggð

    Mál 1607034 Allur ferill málsins

    Umræða um friðlýsingu og möguleika á verndun eyðifjarða Gerpissvæðisins. Lögð fram drög að yfirlýsingu bæjarráðs vegna skoðunar á mögulegri friðlýsingu Gerpissvæðisins. Bæjarstjóra falið að ganga frá yfirlýsingu og senda umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.

  5. 5. Hernámsdagur - endurvakin

    Mál 1907082 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Íbúasamtaka Reyðarfjarðar er varðar Hernámsdaginn á Reyðarfirði. Bæjarráði lýst vel á að Íbúasamtökin taki daginn að sér og felur forstöðumanni menningarstofu að vera í sambandi við samtökin um málið. Vísað til kynningar í menningar- og nýsköpunarnefnd.

  6. 6. Malarvinnsla við Mjóeyrarhöfn

    Mál 1907094 Allur ferill málsins

    Fyrirtækið GYG minerals óskar eftir athafnasvæði við Mjóeyrarhöfn auk leyfis til grjótnáms á svæði fyrir ofan Reyðarfjörð.

    Bæjarráð samþykkir að fela atvinnu- og þróunarstjóra að funda með bréfritara og fá nánari upplýsingar um starfsemina. Þeim hluta erindisins er snýr að hafnarstarfsemi er vísað til hafnarstjórnar.

  7. 7. Aðalfundur í stjórn Breiðdalsseturs 2019

    Mál 1907108 Allur ferill málsins

    Aðalfundur Breiðdalsseturs verður haldinn 31.ágúst nk. Tilnefna þarf einn fulltrúa og annan til vara í stjórn setursins. Bæjarstjóra falið að ræða við núverandi fulltrúa í Breiðdalssetri. Tekið fyrir á næsta fundi.

  8. 8. Barnaverndarfundargerðir 2019

    Mál 1902124 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar, nr. 105 frá 24.júlí 2019, samþykkt samhljóða í umboði bæjarstjórnar.