Kauptilboð í hesthús að Símonartúni
Mál 1908038 Fyrst á dagskrá 15. ágúst 2019, síðast 24. október 2019. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2019
Bæjarstjórn, fundur 272 liður 5.4
Fundargerðin „Bæjarráð - 626“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 626 liður 4
Kauptilboð frá Guðmundi Péturssyni í hesthús að Símonartúni á Eskifirði. Kaupandi mun kosta niðurrif og brottflutning hússins en ekki verður um aðrar greiðslur að ræða. Sviðsstjóri framkvæmdasviðs mælir með töku tilboðsins. Bæjarráð samþykkir kauptilboð og felur fjármálastjóra að ganga frá samkomulagi við kaupanda um að gengið verði vel frá svæðinu af hans hálfu.
-
Bæjarráð, fundur 635 liður 12
Kaupandi að hesthúsi að Símonartúni hefur óskað eftir að falla frá samþykktu tilboði sínu, sem bæjarráð samþykkti á fundi 15.ágúst sl., þar sem húsið fer á milli sauðfjárveikivarnalínu og kostnaður og umstang við sótthreinsun er of mikill. Bæjarráð fellst á ósk kaupanda.
-
Bæjarstjórn, fundur 277 liður 1.12
Fundargerðin „Bæjarráð - 635“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.