Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 635

21. október 2019, kl. 08:30 til 11:43, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 277 liður 1

    Til máls tóku Eydís Ásbjörnsdóttir og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 635 frá 21.október 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2020 - 2023

    Mál 1904128 Allur ferill málsins

    Lögð fram drög að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir 2020 - 2023.

    Bæjarráð felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs og fræðslustjóra, ásamt starfsfólki leikskólans Dalborgar, að gera þarfa- og kostnaðargreiningu á hvernig útfærsla á færanlegu rými nýtist best við leikskólann Dalborg. Finna þarf lausn til að brúa bilið þar til sveitarfélagið fer í varanlega stækkun á leikskólanum. Einnig að greina og leggja fyrir eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og fræðslunefnd, tillögu um hvort farið verði í að leigja eða kaupa færanlegt rými. Tillögu og greiningu skal lokið fyrir síðari umræðu í bæjarstjórn um fjárhagsáætlun áranna 2020-2023. Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun 2020 til áframhaldandi vinnu.

  2. 2. Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar í A hluta 2020

    Mál 1904130 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt fjárhagsáætlun og framkvæmdaáætlun 2020, fyrir sitt leyti og vísar þeim til umfjöllunar í bæjarráði.

    Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs vegna fjárhagsáætlunar og framkvæmdaáætlanir sviðsstjóra framkvæmdasviðs.

    Bæjarráð vísar starfs- og fjárhagsáætlun málaflokksins til fjárhagsáætlunarvinnu.

  3. 3. Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar fyrir B hluta stofnanir

    Mál 1904131 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt áætlun fyrir sitt leyti og vísar henni til umfjöllunar í bæjarráði.

    Lögð fram framkvæmdaáætlun framkvæmdasviðs fyrir B-hluta stofnanir.

    Bæjarráð vísar starfs- og fjárhagsáætlun málaflokksins til fjárhagsáætlunarvinnu.

  4. 4. Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 2020

    Mál 1904137 Allur ferill málsins

    Fjárfestingaráætlun og launaáætlun Fjarðabyggðarhafna lögð fram til afgreiðslu bæjarráðs. Bæjarráð vísar starfs- og fjárhagsáætlun málaflokksins til frekari vinnslu í hafnarstjórn.

  5. 5. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2020 fyrir málaflokka 21, 13, 07 og 03

    Mál 1904138 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað slökkviliðsstjóra. Bæjarráð vísar starfs- og fjárhagsáætlun málaflokksins til fjárhagsáætlunarvinnu.

  6. 6. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2020

    Mál 1904133 Allur ferill málsins

    Lokið er yfirferð fræðslunefndar á fjárhagsáætlun 2020 og einnig er lokið fundi formanns fræðslunefndar og fræðslustjóra með bæjarráði og bæjarstjóra. Fræðslunefnd hefur samþykkt fyrirliggjandi starfs- og fjárhagsáætlun og vísar henni til bæjarráðs. Bæjarráð vísar starfs- og fjárhagsáætlun málaflokksins til fjárhagsáætlunarvinnu.

  7. 7. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2019

    Mál 1809009 Allur ferill málsins

    Lokið er yfirferð á fjárhagsáætlun 2020 og fundi formanns félagsmálanefndar og félagsmálastjóra með bæjarráði og bæjarstjóra. Félagsmálanefnd hefur samþykkt fjárhagsáætlun vegna ársins 2020 og felur félagsmálastjóra áframhaldandi vinnslu við starfsáætlun. Bæjarráð vísar starfs- og fjárhagsáætlun málaflokksins til fjárhagsáætlunarvinnu.

  8. 8. Starfs- og fjárhagsáætlun hjúkrunarheimila 2020

    Mál 1905070 Allur ferill málsins

    Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna hefur samþykkt fjárhagsáætlun hjúkrunarheimilanna fyrir árið 2020 og vísað henni til bæjarráðs. Bæjarráð vísar starfs- og fjárhagsáætlun málaflokksins til fjárhagsáætlunarvinnu.

  9. 9. Starfs- og fjárhagsáætlun barnaverndarnefndar 2020

    Mál 1904134 Allur ferill málsins

    Barnaverndarnefnd Fjarðabyggðar hefur samþykkt starfs - og fjárhagsramma barnaverndarnefndar 2020 og vísar honum til bæjarráðs. Bæjarráð vísar starfs- og fjárhagsáætlun málaflokksins til fjárhagsáætlunarvinnu.

  10. 10. Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 2020

    Mál 1909173 Allur ferill málsins

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 2020, hækki um 2.5% 1.janúar 2020. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um boðaðan urðunarskatt í gjaldskrá. Tekið fyrir á næsta fundi.

  11. 11. Rekstur málaflokka 2019 TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1904033 Allur ferill málsins

    Lagt fram yfirlit yfir rekstur málaflokka og fjárfestingar fyrir janúar - ágúst 2020, launakostnað og skatttekjur fyrir janúar - september 2019.

  12. 12. Kauptilboð í hesthús að Símonartúni

    Mál 1908038 Allur ferill málsins

    Kaupandi að hesthúsi að Símonartúni hefur óskað eftir að falla frá samþykktu tilboði sínu, sem bæjarráð samþykkti á fundi 15.ágúst sl., þar sem húsið fer á milli sauðfjárveikivarnalínu og kostnaður og umstang við sótthreinsun er of mikill. Bæjarráð fellst á ósk kaupanda.

  13. 13. Lækkun skulda Breiðdalshrepps við Íbúðalánasjóð

    Mál 1906071 Allur ferill málsins

    Framlagt svar Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga, vegna skulda Breiðdalshrepps við Íbúðalánasjóð. Bæjarráð er ósammála niðurstöðu eftirlitsnefndarinnar og felur bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar að fylgja málinu eftir.

  14. 14. Heilsuefling 65 ára og eldri í Fjarðabyggð

    Mál 1802096 Allur ferill málsins

    Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til við bæjarráð að farið verði í tveggja ára samstarf við Janus Heilsueflingu ehf. um heilsueflingu eldri borgara á árinu 2020. Bæjarráð samþykkir að fara í verkefnið og felur íþrótta- og tómstundafulltrúa ábyrgð á framhaldi verkefnisins. Vísað til fjárhagsáætlunarvinnu 2020.

  15. 15. Bréf frá leikskólastjórum á Austurlandi

    Mál 1910069 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur bréf frá leikskólastjórum á Austurlandi sem sent er til allra sveitar- og bæjarstjórna á Austurlandi. Erindið hefur fengið ítarlega umfjöllun í fræðslunefnd. Bæjarráð þakkar erindið og tekur undir að leikskólastigið er mikilvægur hlekkur í skólastarfi landsins.

  16. 16. Endurnýjun á rekstrar- og uppbyggingarsamningum við íþróttafélög í Fjarðabyggð sem reka eigin íþróttaaðstöðu 2020-2022

    Mál 1908079 Allur ferill málsins

    Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að gerður verði nýr þriggja ára samningur við íþróttafélög í Fjarðabyggð sem reka eigin íþróttaaðstöðu. Skipting rekstrar- og uppbyggingarstyrkja til næstu þriggja ára verði með sama sniði og verið hefur frá árinu 2014 og hækki styrkir um 2,5% milli ára. Greiðsla og upphæð styrkjanna er háð því að íþróttafélögin efni sinn hluta samninganna. Vísað til bæjarráðs til staðfestingar. Bæjarráð er sammála að hækka styrkfjárhæðir um 2,5% frá 1.janúar 2020.

  17. 17. Jafnréttisstefna 2019-2023

    Mál 1910037 Allur ferill málsins

    Framlögð er endurskoðuð jafnréttisstefna Fjarðabyggðar 2019-2023 til umfjöllunar og samþykktar félagmálanefndar. Félagsmálanefnd hefur samþykkt jafnréttisstefnu 2019-2023 fyrir sitt leyti og vísar henni til bæjarráðs. Bæjarráð óskar eftir samantekt félagsmálastjóra um endurskoðun jafnréttisstefnu. Bæjarráð vísar jafnréttisstefnu til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  18. 18. Ágóðahlutagreiðsla 2019

    Mál 1910066 Allur ferill málsins

    Bréf Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands er varðar ágóðahlutagreiðslu á árinu 2019. Hlutdeild Fjarðabyggðar í Sameignarsjóði eignarhaldsfélagsins er 5,226% og greiðsla ársins er kr. 2.613.000.-

  19. 19. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2018 - 2022

    Mál 1806029 Allur ferill málsins

    Kristinn Þór Jónasson tekur sæti varamanns Sjálfstæðisflokks í safnanefnd í stað Jens Garðars Helgasonar.

  20. 20. Aðalfundarboð 2019 - Heilbrigðiseftirlit Austurlands

    Mál 1910047 Allur ferill málsins

    Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Austurlands verður haldinn 30.október kl. 13:30 á Hótel Bláfelli í Breiðdal. Bæjarstjóri mun sækja fundinn fyrir hönd bæjarins.

  21. 21. 148.mál til umsagnar tillögu um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2019-2033 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2019-2023,

    Mál 1910094 Allur ferill málsins

    Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2019-2033 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2019-2023. Umsagnarfrestur er til 5.nóvember. Bæjarstjóra falið að yfirfara áætlunina og gera athugasemdir ef þörf er á.

  22. 22. Fræðslunefnd - 75

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 75 frá 14.október 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 22.1 Gjaldskrá skólamats í grunnskólum 20201909170
    2. 22.2 Gjaldskrá tónlistarskóla 20201909175
    3. 22.3 Gjaldskrá leikskóla 20201909165
    4. 22.4 Gjaldskrá grunnskóla 20201909159
    5. 22.5 Gjaldskrá skóladagheimila 20201909169
    6. 22.6 Bréf frá leikskólastjórum á Austurlandi1910069
    7. 22.7 Tvöföld skólavist1910056
    8. 22.8 Sumarlokun leikskóla 20201910070
    9. 22.9 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 20201904133
  23. 23. Íþrótta- og tómstundanefnd - 65

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 65 frá 9.október 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 23.1 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð
    2. 23.2 Aðstöðuleysi til íþróttaiðkunar á Eskifirði
    3. 23.3 Vottun gervigrass í Fjarðabyggðarhöllinni
    4. 23.4 Heilsuefling 65 ára og eldri í Fjarðabyggð
    5. 23.5 Endurnýjun á rekstrar- og uppbyggingarsamningum við íþróttafélög í Fjarðabyggð sem reka eigin íþróttaaðstöðu 2020-2022
    6. 23.6 Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 2019
    7. 23.7 Gjaldskrá íþróttahúsa Fjarðabyggðar 2020
    8. 23.8 Gjaldskrá sundlauga Fjarðabyggðar 2020
    9. 23.9 Starfs- og fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundanefndar 2020
  24. 24. Hafnarstjórn - 229

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 229 frá 14.október 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 24.1 Beiðni um styrk til endurbóta á bryggju1910044
    2. 24.2 Nýtt leiðarkerfi Eimskips1910072
    3. 24.3 Smábátahöfn Stöðvarfirði - stækkun1704061
    4. 24.4 Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 20201909177
    5. 24.5 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20191901001
    6. 24.6 Verkefni hafnarsjóðs1908100
    7. 24.7 730 Mjóeyrarhöfn - umsókn um stöðuleyfi, starfsmannaaðstaða Eimskips1710105
    8. 24.8 Endurbygging/endurnýjun stálþila vegna tæringar1710016
  25. 25. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 244

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 244 frá 14.október 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 25.1 Áskorun til þín - lok á sorptunnur1909182
    2. 25.2 Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 20201909173
    3. 25.3 Gjaldskrá fjarvarmaveitu 20201909156
    4. 25.4 Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 20201909160
    5. 25.5 Gjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar sala 20201909168
    6. 25.6 Gjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar dreifing 20201909167
    7. 25.7 Gjaldskrá félagsheimila 20201909154
    8. 25.8 Gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Fjarðabyggð 20201909162
    9. 25.9 Gjaldskrá vatnsveitu Fjarðabyggðar 20201909176
    10. 25.10 Gjaldskrá fráveitu Fjarðabyggðar 20201909157
    11. 25.11 Gjaldskrá skipulags- og byggingarmála 20201909152
    12. 25.12 Gjaldskrá gatnagerðagjalda í Fjarðabyggð 20201909158
    13. 25.13 Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar í A hluta 20201904130
    14. 25.14 Starfs- og fjárhagsáætlun ESU nefndar fyrir B hluta stofnanir1904131
    15. 25.15 735 - Útivistarsvæði við Norðfjarðargöng1910028
    16. 25.16 Tré lífsins - minningagarðar1909128
    17. 25.17 Aðstöðuleysi til íþróttaiðkunar á Eskifirði1909105
    18. 25.18 750 Skólavegur 51 - Umsókn um endurnýjun á lóðarleigusamningi1908062
    19. 25.19 740 Efri-Miðbær - Efnistaka úr Norðfjarðará1805226
    20. 25.20 750 Dalsá - Beiðni um framkvæmdaleyfi vegna malarvinnslu1910075
  26. 26. Félagsmálanefnd - 127

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 127 frá 15.október 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 26.1 Gjaldskrá félagslegrar heimþjónustu 20201909155
    2. 26.2 Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 20201909151
    3. 26.3 Reglur um snjómokstur fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega1904081
    4. 26.4 Gjaldskrá snjómokstur fyrir öryrkja og eldri borgara1909179
    5. 26.5 Gjaldskrá garðsláttur fyrir öryrkja og eldriborgara1909178
    6. 26.6 Reglur um garðslátt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega1806144
    7. 26.7 Gjaldskrá Fjölskyldusviðs 2020 vegna stuðningsfjölskyldna við fötluð börn1909174
    8. 26.8 Umsókn um styrk til Bergsins headspace vegna 20201910060
    9. 26.9 Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 20191809009
    10. 26.10 Jafnréttisstefna 2019-20231910037
  27. 27. Barnaverndarfundargerðir 2019

    Mál 1902124 Allur ferill málsins

    Fundargerðir barnaverndarnefndar nr. 107 og nr. 109, lagðar fram til umfjöllunar.