Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 229

14. október 2019, kl. 08:30 til 10:15, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
  • Kristinn Grétar Rögnvarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 635 liður 24

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 229 frá 14.október 2019, lögð fram til umfjöllunar.

  • Bæjarstjórn, fundur 277 liður 4

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 229 frá 14.október 2019, samþykkt með 9 atkvæðum

Dagskrá

  1. 1. Beiðni um styrk til endurbóta á bryggju

    Mál 1910044 Allur ferill málsins

    Gullþúfa ehf., eigandi sjóhúss að Strandgötu 19 í Neskaupstað, óskar eftir styrk úr hafnarsjóði til endurbóta og styrkingar á bryggjunni við sjóhúsið. Hafnarstjórn samþykkir að koma að málinu í gegnum reglur um endurgerð gamalla bryggja og felur hafnarstjóra að vinna málið og leggja fyrir að nýju.

  2. 2. Nýtt leiðarkerfi Eimskips

    Mál 1910072 Allur ferill málsins

    Rúnar Gunnarsson vék af fundi undir þessum lið.

    Lögð fram sem trúnaðarmál kynning Eimskips á nýju leiðarkerfi. Verkefnastjóra hafna falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir að nýju.

  3. 3. Smábátahöfn Stöðvarfirði - stækkun

    Mál 1704061 Allur ferill málsins

    Farið yfir ýmsar tillögur Stöðvarfjarðarhafnar eftir umræður á síðasta fundi og samtöl við starfmann hafnarsjóðs á Stöðvarfirði. Hafnarstjórn samþykkir að fara í útfærslu Guðmundar Guðlaugssonar á viðlegukanti og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs jafnframt að fara yfir frekari tillögur að framtíð Stöðvarfjarðarhafnar.

  4. 4. Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2020

    Mál 1909177 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn samþykkir að fela verkefnastjóra hafna að fara frekar yfir forsendur gjaldskrár og leggja fyrir að nýju.

  5. 5. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2019

    Mál 1901001 Allur ferill málsins

    Fundargerð Hafnasambands Íslands frá 26.september 2019 lögð fram til kynningar.

  6. 6. Verkefni hafnarsjóðs

    Mál 1908100 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar minnisblað um heimsókn til Akureyrarhafnar og Faxaflóahafna og rætt efni þess.

  7. 7. 730 Mjóeyrarhöfn - umsókn um stöðuleyfi, starfsmannaaðstaða Eimskips

    Mál 1710105 Allur ferill málsins

    Rúnar Gunnarsson vék af fundi undir þessum lið.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 221 (3.12.2018) - 730 Mjóeyrarhöfn - umsókn um stöðuleyfi, starfsmannaaðstaða Eimskips

    Lögð fram stöðuleyfisumsókn Ara Benediktssonar/Mannvits hf fh. Eimskips, dagsett 21. nóvember 2018, þar sem sótt er um endurnýjun stöðuleyfis fyrir starfsmannaaðstöðu Eimskips í gámaeiningum innan hafnarsvæðis Mjóeyrarhafnar. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir endur útgáfu stöðuleyfis til tólf mánaða, en óskar eftir að hafnarstjórn noti árið til að skipuleggja í samráði við hagsmunaraðila á svæðinu framtíðarlausn að aðstöðu fyrir starfsmenn á hafnarsvæðinu við Mjóeyrarhöfn, hvort sem um er að ræða verktaka eða starfsmenn hafnarinnar.

    Hafnarstjórn telur að rétt sé að taka afstöðu til erindis ESU þegar niðurstöður viðræðna við Eimskip um breytingar á leiðarkerfi og umfangs starfsemi þess liggur fyrir. Því frestar hafnarstjórn að taka afstöðu til þess nú.

  8. 8. Endurbygging/endurnýjun stálþila vegna tæringar

    Mál 1710016 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar minnisblað EFLU um ástand stálþila með viðaukum. Hafnarstjórn samþykkir að fara eftir forgangsröð í minnisblaði og fyrst verður horft til hafskipakants á Eskifirði. Sviðsstjóra framkvæmdasviðs falið að skoða forsendur og leggja fyrir nefndina að nýju.