Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 230

28. október 2019, kl. 11:30 til 13:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
  • Kristinn Grétar Rögnvarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 637 liður 13

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 230 frá 28.október 2019, lögð fram til umfjöllunar.

  • Bæjarstjórn, fundur 279 liður 5

    Fundargerðir hafnarstjórnar nr. 230 og nr. 231 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tók Jón Björn Hákonarsson.

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 230 frá 28. október 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 2020

    Mál 1904137 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn fór yfir fjárfestingaráætlun ársins 2020 og samþykkir að senda hana til fyrri umræðu fjárhagsáætlunar í bæjarstjórn.

  2. 2. Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2020

    Mál 1909177 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn fór yfir breytingar á gjaldskrá, samþykkir þær og gjaldskrána í heild en um er að ræða verðlagsbreytingar að mestu. Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna frágang hennar. Gjaldskrá vísað til bæjarstjórnar.

  3. 3. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2019

    Mál 1901001 Allur ferill málsins

    Fundargerð Hafnasambands Íslands frá 18. október 2019 lögð fram til kynningar.

  4. 4. Klappir PortMaster hugbúnaður fyrir hafnir

    Mál 1909148 Allur ferill málsins

    Verkefnastjóri hafna hefur skoðað með upptöku PortMaster og leggur til að hugbúnaðurinn verði tekinn upp við Fjarðabyggðarhafnir. Hafnarstjórn staðfestir þá tillögu verkefnastjóra.

  5. 5. Strandbúnaður 2020, 19.-20.mars á Grand Hótel

    Mál 1910155 Allur ferill málsins

    Strandbúnaður 2020 verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík 19.-20.mars. Hafnarstjórn samþykkir að senda fulltrúa á ráðstefnuna.

  6. 6. Laxar Fiskeldi ehf ný hafnaraðstaða

    Mál 1910162 Allur ferill málsins

    Erindi frá Löxum Fiskeldi ehf. er varðar hafnaraðstöðu við norðanverðan Reyðarfjörð. Hafnarstjórn samþykkir að fá Jens Garðar Helgason framkvæmdastjóra Laxa á næsta fund stjórnarinnar.