Bæjarstjórn, fundur 279
14. nóvember 2019, kl. 16:00 til 17:15, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
- Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
- Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Dagskrá
Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2020 - 2023
Mál 1904128 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:01:24
Síðari umræða um tillögu að fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana 2020 - 2023.
Bæjarstjóri mælti fyrir fjárhagsáætlun til seinni umræðu.
Til máls tóku Jón Björn Hákonarsson, Rúnar Már Gunnarsson og Eydís Ásbjörnsdóttir.
Bókun Framsóknarflokks, Fjarðalista og Miðflokks við síðari umræðu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020 og til þriggja ára. Nú þegar síðari umræða um fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2020, og til þriggja ára, er lokið þá vilja bæjarfulltrúar áðurnefndra framboða lýsa ánægju sinni með niðurstöður áætlunarinnar. Í forgrunni eru breytingar á Fjölskyldusviði Fjarðabyggðar sem nú koma til fullrar virkni í upphafi árs 2020 þar sem megináherslan er lögð á innleiðingu Austurlandslíkansins með snemmtæka íhlutun að leiðarljósi og gildi öflugra forvarna. Þar er meðal annars áhersla á barnavernd og stöðugildi aukin í þeim málaflokki. Þannig mun sveitarfélagið halda utan um íbúa sína enn betur. Þá eru málefni fjölskyldunnar í forgrunni eins og áður. Gjöld vegna leik- og skóladagheimila, ásamt tónskólagjöldum, eru með þeim lægri á landinu og afslættir virkir á milli þessara skólastiga. Stigið verður næsta skref í þeirri stefnu að gera skólamáltíðir gjaldfrjálsar með lækkun um helming, á núverandi gjaldskrá, frá 1.ágúst 2020 og mun þá hver skólamáltíð kosta 150 kr. Rétt er að minna á að Fjarðabyggð er heilsueflandi samfélag, matseðlar í leik- og grunnskólum eru hannaðir af næringarfræðingi sem byggir á ráðleggingum um mataræði frá Embætti landlæknis og með því tryggjum við að börnin fái hollt og næringarríkt mataræði. Þetta eru mikilvæg mál fyrir barnafjölskyldur og gera Fjarðabyggð að enn betri stað til að búa á. Áfram er staðinn vörður um gott skólastarf í leik-grunn- og tónskólum Fjarðabyggðar og sérstaklega er sett aukið fé til leikskólanna til að bæta starfsumhverfi starfsfólks þess ásamt auknu fé til menningarmála til að auðga mannlífið enn frekar til framtíðar.
Þá verður sett fjármagn til heilsuátaks eldri borgara með innleiðingu Janusarverkefnisins til að auka lífsgæði þeirra. Afnot íbúa af bókasöfnum sveitarfélagsins verða gerð gjaldfrjáls og þannig lagt til þjóðarátaks um læsi og safnastarfsemi sett í forgang og horft þar sérstaklega til Stríðsárasafnsins á Reyðarfirði á næsta ári ásamt uppbyggingu á framtíðar skjalaaðstöðu fyrir sveitarfélagið
Í fjárfestingum er áfram horft til þeirra sem eru hvað nauðsynlegastar með fjölgun íbúa og hag sterks atvinnulífs í huga. Meginfjárfesting A hluta verður áfram í stækkun leikskóla á Reyðarfirði ásamt því að unnið er nú að kostnaðar- og þarfagreiningu fyrir stækkun leikskóla á Eskifirði með það fyrir augum að ráðast í hönnun vegna þessa á árinu 2020. Þá er einnig unnið að kostnaðargreiningu á framkvæmdum við Fjarðabyggðarhöllina til undirbúnings framkvæmdum við hana á kjörtímabilinu. Meginfjárfestingar Hafnarsjóðs á komandi ári verða í uppbyggingu á nýrri hafnaraðstöðu við fiskiðjuver Eskju á Eskifirði og stækkun Mjóeyrarhafnar á Reyðarfirði ásamt viðlegukanti á Stöðvarfirði. Sjávarútvegur og iðnaður eru burðarásar sveitarfélagsins og áfram verður framkvæmt til að standa við bakið á atvinnulífinu. Án öflugs atvinnulífs er engin velferð og að því leyti erum við heppinn hér í Fjarðabyggð. Þá verður að hlúa að öðrum vaxtarsprotum í atvinnu eins og ferðaþjónustu. Þá mun verða áfram unnið að innviðauppbyggingu í Breiðdal eins og samið var um í tengslum við sameininguna á árinu 2018.
Megin niðurstaða fjárhagsáætlunar er að rekstrarniðurstaða á A-hluta skilar afgangi upp á 101 milljón króna og í samstæðu A og B hluta er afkoman 460 milljónir króna. Stefnir í að skuldaviðmið sveitarsjóðs Fjarðabyggðar verði um 78% í árslok 2020.
Við, bæjarfulltrúar Framsóknarflokks, Fjarðalista og Miðflokksins erum ánægð með fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2020 enda teljum við hana endurspegla vel fjárhagslegan styrk sveitarfélagsins og getu þess til að þjónusta íbúa sína sem best og skapa þannig samfélag sem hefur jafnrétti og jöfnuð að leiðarljósi sem stendur í fremstu röð sveitarfélaga
Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana 2020 - 2023, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá.
-
2. Bæjarráð - 637
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:31:44
Fundargerðir bæjarráðs nr. 637, nr. 638 og nr. 639 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Eydís Ásbjörnsdóttir og Jón Björn Hákonarson.
Jón Björn Hákonarson vék af fundi við afgreiðslu liðar 2.3. og tók Eydís Ásbjörnsdóttir við stjórn fundarins.
Fundargerð bæjarráðs nr. 637 frá 4. nóvember 2019, utan liðar 2.3. samþykkt með 9 atkvæðum.
Liður 2.3. samþykktur með 8 atkvæðum.
- 2.1 Beiðni um aukafjárveitingu til bókasafnanna í Fjarðabyggð19101860:33:08
- 2.2 Tæknidagur Fjölskyldunnar 20201910090
- 2.3 740 Bakkavegur 5 - umsókn um stækkun lóðar19081190:31:44
- 2.4 740 Fólkvangur - Framkvæmdaleyfi, vegur, stígar og bílastæði1910167
- 2.5 Útgáfa Sveita og jarða1910188
- 2.6 Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 20191911010
- 2.7 Orkufundur 2019 - 7. nóvember1910171
- 2.8 Kynning skólameistara á starfsemi Verkmenntaskólans á Austurlandi fyrir bæjarráði19110080:33:36
- 2.9 Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2019/20201910191
- 2.10 Sóknaráætlun Austurlands 2020 - 20241911009
- 2.11 Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 20191901217
- 2.12 Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 20201909177
- 2.13 Hafnarstjórn - 2301910024F
- 2.14 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 2461910025F
-
3. Bæjarráð - 638
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:35:00
Fundargerðir bæjarráðs nr. 637, nr. 638 og nr. 639 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Eydís Ásbjörnsdóttir og Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráðs nr. 638 frá 4. nóvember 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 3.1 Sorpmál í Fjarðabyggð19090990:35:00
- 3.2 Ljósleiðaravæðing 2020 - umsóknir19110030:35:28
- 3.3 Fundur forstjóra Fjarðaáls með bæjarráði17091460:36:24
- 3.4 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2020 - 20231904128
- 3.5 Reglur um kjör starfsmanna1805184
- 3.6 Jafnlaunakerfi1812054
- 3.7 Þorrablót Reyðfirðinga 2020 - afnot af íþróttahúsi1911038
- 3.8 Framkvæmdir 2019 - yfirlit frá framkvæmdasviði1902078
- 3.9 Staða löglærðs fulltrúa við embætti Sýslumannsins á Austurlandi á Eskfirði19110480:36:52
- 3.10 Beiðni um styrk vegna Jólamarkaðar í Dalahöllinni1911051
- 3.11 66.mál til umsagnar frumvarp til laga um um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn),1911020
- 3.12 Fræðslunefnd - 761910028F
- 3.13 Íþrótta- og tómstundanefnd - 661911003F
-
4. Bæjarráð - 639
Fundargerðir bæjarráðs nr. 637, nr. 638 og nr. 639 teknar til afgreiðslu saman.
Enginn tók til máls.
Fundargerð bæjarráðs nr. 639 frá 12. nóvember 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 4.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2020 - 20231904128
- 4.2 Hafnarstjórn - 2311911007F
-
5. Hafnarstjórn - 230
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:50:52
Fundargerðir hafnarstjórnar nr. 230 og nr. 231 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tók Jón Björn Hákonarsson.
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 230 frá 28. október 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 5.1 Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 20201904137
- 5.2 Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 20201909177
- 5.3 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20191901001
- 5.4 Klappir PortMaster hugbúnaður fyrir hafnir1909148
- 5.5 Strandbúnaður 2020, 19.-20.mars á Grand Hótel1910155
- 5.6 Laxar Fiskeldi ehf ný hafnaraðstaða1910162
-
6. Hafnarstjórn - 231
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:51:20
Fundargerðir hafnarstjórnar nr. 230 og nr. 231 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tók Jón Björn Hákonarsson.
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 231 frá 11. nóvember 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 6.1 Laxar Fiskeldi ehf ný hafnaraðstaða19101620:51:20
- 6.2 Umsókn Laxa Fiskeldis um Hjálmeyri19061210:51:48
- 6.3 Nýtt leiðarkerfi Eimskip1910072
- 6.4 Skjónulækur1704006
- 6.5 Stálþil - Viðhald og viðgerðir19040890:52:44
- 6.6 Veðurstöðvar á Fjarðabyggðarhöfnum1911045
- 6.7 Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 20201904137
-
7. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 246
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:55:04
Enginn tók til máls.
Fundargerð eigna-, skipulags-, og umhverfisnefndar nr. 246 frá 28. október 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 7.1 Landshlutaáætlanir í skógrækt og lykilhlutverk sveitarfélaga í loftslagsmálum1906106
- 7.2 755 Heyklif - breyting á aðalskipulagi, ferðaþjónusta1909021
- 7.3 730 Búðareyri 25 - Umsókn um byggingarleyfi, tröppur1910151
- 7.4 Meindýraeyðing í Nípunni1805032
- 7.5 Aðalfundarboð 2019 - Heilbrigðiseftirlit Austurlands1910047
-
8. Íþrótta- og tómstundanefnd - 66
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:55:32
Til máls tók Pálína Margeirsdóttir.
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar nr. 66 frá 6. nóvember 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 8.1 Heimsókn í íþrótta- og tómstundamannvirki á Eskifirði
- 8.2 Ástand húsnæða í félagsmiðstöðvum Fjarðabyggðar0:55:32
- 8.3 Endurskoðun samnings um útvistun rekstrar Skíðasvæðisins í Oddsskarði 2019
- 8.4 Íþróttaakstur
-
9. Fræðslunefnd - 76
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar nr. 76 frá 6. nóvember 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.
- 9.1 Ungt fólk 5.-7. bekkur Fjarðabyggð1910160
- 9.2 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 20201904133
- 9.3 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð1808078
- 9.4 Tvöföld skólavist1910056
- 9.5 Hvatning til sveitarstjórna í tengslum við Skólaþing sveitarfélaga 20191909106
-
10. Útsvar 2020
Mál 1910061 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:58:48
Bæjarstjóri mælti fyrir tillögu að útsvari á árinu 2020. Lagt er til að álagningarhlutfall útsvars á árinu 2020 verði hámarksútsvar, þ.e. 14,52% af útsvarsstofni í Fjarðabyggð. Tillaga þessi er í samræmi við 24.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að álagningarhlutfall útsvars verði hámarksútsvar, þ.e. 14,52% af útsvarsstofni í Fjarðabyggð.
-
11. Gjaldskrá fasteignagjalda 2020
Mál 1909153 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:01:08
Lögð fram tillaga að álagningu fasteignagjalda á árinu 2020 ásamt reglum um afslátt fasteignagjalda fyrir elli- og örorkulífeyrisþega samhliða minnisblaði fjármálastjóra um álagninguna.
Bæjarstjóri mælti fyrir tillögu að álagningu fasteignagjalda.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum tillögu að álagningu fasteignagjalda á árinu 2020 og reglur um afslátt fyrir elli- og örorkulífeyrisþega.
-
12. Reglur um kjör starfsmanna
Mál 1805184 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:02:32
Framlagðar endurskoðaðar reglur um kjör starfsmanna sem byggðar eru á innleiðingu jafnlaunastefnu og jafnlaunakerfis.
Forseti mælti fyrir reglum.
Enginn tók til máls.
Reglur um kjör starfsmanna samþykktar með 9 atkvæðum.
-
13. 755 Heyklif - breyting á aðalskipulagi, ferðaþjónusta
Mál 1909021 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:03:28
Lögð fram skipulags- og matslýsing varðandi breytingu á aðalskipulagi vegna uppbyggingar á ferðaþjónustu við Heyklif við sunnanverðan Stöðvarfjörð.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt skipulags- og matslýsingu fyrir sitt leyti.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að breyta Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 vegna uppbyggingar á ferðaþjónustu við Heyklif, jafnframt er samþykkt skipulags- og matslýsing vegna breytingarinnar.