Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 637

4. nóvember 2019, kl. 08:30 til 10:02, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 279 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 637, nr. 638 og nr. 639 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Eydís Ásbjörnsdóttir og Jón Björn Hákonarson.

    Jón Björn Hákonarson vék af fundi við afgreiðslu liðar 2.3. og tók Eydís Ásbjörnsdóttir við stjórn fundarins.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 637 frá 4. nóvember 2019, utan liðar 2.3. samþykkt með 9 atkvæðum.

    Liður 2.3. samþykktur með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Beiðni um aukafjárveitingu til bókasafnanna í Fjarðabyggð

    Mál 1910186 Allur ferill málsins

    Beiðni starfsmanna bókasafna í Fjarðabyggð um 360.000 kr. aukafjárveitingu til safnanna á árinu 2019. Bæjarráð samþykkir beiðni sem takist af liðnum óráðstafað. Vísað til kynningar í menningar- og nýsköpunarnefnd.

  2. 2. Tæknidagur Fjölskyldunnar 2020

    Mál 1910090 Allur ferill málsins

    Stefnt er að því að halda Tæknidag fjölskyldunnar í áttunda sinn laugardaginn 3. október 2020 í Íþróttahúsinu í Neskaupstað. Verkmenntaskóli Austurlands óskar eftir að fá afnot af íþróttahúsinu og styrk sem nemur leigu og ræstingarkostnaði. Bæjarráð samþykkir beiðni.

  3. 3. 740 Bakkavegur 5 - umsókn um stækkun lóðar

    Mál 1908119 Allur ferill málsins

    Jón Björn Hákonarson vék af fundi. Lögð fram að nýju eftir grenndarkynningu lóðarumsókn SÚN, dagsett 30. ágúst 2019, þar sem sótt er um stækkun lóðarinnar við Bakkaveg 5 á Norðfirði til vesturs að göngustíg samsíða Bakkalæk. Gert er ráð fyrir að stækkun verði nýtt fyrir viðbyggingu við núverandi húsnæði á lóðinni. Leiksvæði á umræddu svæði hefur verið aflagt. Sjö athugasemdir bárust vegna grenndarkynningar. Lögð fram umsögn sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs vegna athugasemda, dagsett 19. október 2019.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur athugasemdir ekki þess eðlis að hafna beri umsókn um stækkun lóðar. Bæjarstjórn hefur staðfest niðurstöðu grenndarkynningar og bæjarráð er sammála um að úthluta lóð.

  4. 4. 740 Fólkvangur - Framkvæmdaleyfi, vegur, stígar og bílastæði

    Mál 1910167 Allur ferill málsins

    Fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokks er varðar stíg og bílastæði við Norðfjarðarvita.

    * Hver var kostnaður Fjarðabyggðar á árinu 2019 við framkvæmd bílastæða og stígs ?

    * Hvenær var sú ákvörðun tekin að fara í þessa framkvæmd og í hverju var sú ákvörðun fólgin þ.e.a.s. umfang framkvæmda ?

    * Lá fyrir kostnaðarmat við framkvæmdina og var gert ráð fyrir henni í fjárhagsáætlun fyrir 2019 ?

    Lögð fram svör bæjarstjóra og sviðsstjóra framkvæmdasviðs við fyrirspurn.

  5. 5. Útgáfa Sveita og jarða

    Mál 1910188 Allur ferill málsins

    Stjórn Búnaðarsambands Austurlands óskar eftir styrk vegna útgáfu á ritröðinni Sveitir og jarðir í Múlaþingi. Bæjarráð mun taka erindið til skoðunar fyrir lok árs og felur upplýsingafulltrúa að yfirfara erindið.

  6. 6. Aðalfundur Skólaskrifstofu Austurlands 2019

    Mál 1911010 Allur ferill málsins

    Á fundi framkvæmdastjórnar Skólaskrifstofu Austurlands 1. nóvember, var ákveðið að halda aðalfund Skólaskrifstofu Austurlands á Djúpavogi þann 8. nóvember nk. Fyrir aðalfundinn verður að venju haldinn stjórnarfundur og byrjar hann kl. 16:00. Bæjarstjóri mun sækja fundinn með fullt og ótakmarkað umboð bæjarins.

  7. 7. Orkufundur 2019 - 7. nóvember

    Mál 1910171 Allur ferill málsins

    Orkufundur 2019 - fundur sem haldinn er annað hvert ár - verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 7. nóvember kl. 13:00. Fulltrúi bæjarráðs mun sækja fundinn.

  8. 8. Kynning skólameistara á starfsemi Verkmenntaskólans á Austurlandi fyrir bæjarráði

    Mál 1911008 Allur ferill málsins

    Lilja Guðný Jóhannesdóttir skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands sat þennan lið fundarins og kynnti starfsemi og stöðu skólans. Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir yfir ánægju með fjölgun nemenda í Verkmenntaskóla Austurlands. Það er gríðarlegur styrkur fyrir Austurland að hafa starfs- og verknámsskóla á svæðinu enda mikil þörf fyrir iðnmenntað fólk hér sem og á landinu öllu. Því tekur bæjarráð undir áhyggjur Verkmenntaskóla Austurlands að fjármögnun skólans frá hinu opinbera sé ábótavant. Bæjarráð skorar á fjárveitingavaldið, menntamálayfirvöld og þingmenn kjördæmisins að tryggja fjármagn til reksturs Verkmenntaskóla Austurlands til framtíðar.

  9. 9. Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2019/2020

    Mál 1910191 Allur ferill málsins

    Atvinnu- og þróunarstjóri kynnti stöðu umsóknar til byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2019 - 2020. Atvinnu- og þróunarstjóri mun ganga frá umsókn fyrir tilskilinn umsóknarfrest sem er 15.nóvember.

  10. 10. Sóknaráætlun Austurlands 2020 - 2024

    Mál 1911009 Allur ferill málsins

    Atvinnu- og þróunarstjóri kynnti drög að Sóknaráætlun Austurlands 2020 - 2024 sem er til umsagnar á samráðsgátt til 8.nóvember 2019.

  11. 11. Fundargerðir Samband Íslenskra sveitarfélaga 2019

    Mál 1901217 Allur ferill málsins

    Fundargerð 875. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 25. október, lögð fram til kynningar.

  12. 12. Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2020

    Mál 1909177 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn hefur yfirfarið breytingar á gjaldskrá, samþykkt þær og gjaldskrána í heild, en um er að ræða verðlagsbreytingar að mestu. Bæjarráð samþykkir hækkun á gjaldskrá.

  13. 13. Hafnarstjórn - 230

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 230 frá 28.október 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 13.1 Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 20201904137
    2. 13.2 Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 20201909177
    3. 13.3 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20191901001
    4. 13.4 Klappir PortMaster hugbúnaður fyrir hafnir1909148
    5. 13.5 Strandbúnaður 2020, 19.-20.mars á Grand Hótel1910155
    6. 13.6 Laxar Fiskeldi ehf ný hafnaraðstaða1910162
  14. 14. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 246

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 246 frá 28.október 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 14.1 Landshlutaáætlanir í skógrækt og lykilhlutverk sveitarfélaga í loftslagsmálum1906106
    2. 14.2 755 Heyklif - breyting á aðalskipulagi, ferðaþjónusta1909021
    3. 14.3 730 Búðareyri 25 - Umsókn um byggingarleyfi, tröppur1910151
    4. 14.4 Meindýraeyðing í Nípunni1805032
    5. 14.5 Aðalfundarboð 2019 - Heilbrigðiseftirlit Austurlands1910047