Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 638

11. nóvember 2019, kl. 08:30 til 11:10, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 279 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 637, nr. 638 og nr. 639 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Eydís Ásbjörnsdóttir og Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 638 frá 4. nóvember 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Sorpmál í Fjarðabyggð

    Mál 1909099 Allur ferill málsins

    Íris Dögg Aradóttir verkefnastjóri umhverfismála sat þennan lið fundarins og ræddi helstu verkefni og áskoranir í sorpmálum.

  2. 2. Ljósleiðaravæðing 2020 - umsóknir

    Mál 1911003 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað um stöðu lagningar ljósleiðara í dreifbýli í Fjarðabyggð ásamt yfirliti yfir verkefni sem eftir er að ljúka undir formerkjum verkefnisins "Ísland ljóstengt". Bæjarráð samþykkir að sótt verði um styrk til þriggja verkáfanga og felur bæjarritara afgreiðslu málsins. Vísað jafnframt til kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.

  3. 3. Fundur forstjóra Fjarðaáls með bæjarráði

    Mál 1709146 Allur ferill málsins

    Tor Arne Berg forstjóri Fjarðaáls og Dagmar Ýr Stefánsdóttir upplýsingafulltrúi sátu þennan lið fundarins og ræddu málefni fyrirtækisins.

  4. 4. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2020 - 2023

    Mál 1904128 Allur ferill málsins

    Framlögð breyting á fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar, fyrir árin 2020 - 2023 ásamt útgönguspá fyrir árið 2019, lögð fram í bæjarráði fyrir seinni umræðu í bæjarstjórn.

    Ljóst er að þörf er fyrir endurbætur og stækkun á húsnæði leikskólans Dalborgar á Eskifirði, til að koma til móts við fjölda barna og aðstöðu starfsmanna til að mæta nútíma kröfum. Bæjarstjórn hafði áður samþykkt að farið yrði í kostnaðar- og þarfagreiningu með slíkt í huga milli umræðna um fjárhagsáætlun 2020. Þá yrði jafnframt farið í að skoða lausnir til að brúa bil fram að byggingaframkvæmdum en horft yrði til að ráðast í hönnun á næsta ári. Skipaður hefur verið starfshópur til þessara verka en ljóst er að vinna við umrædda greiningu og lausnir er umfangsmeiri en svo að henni ljúki milli umræðna. Því mun bæjarstjórn taka málið fyrir að nýju um leið og þeirri vinnu lýkur í upphafi ársins 2020 og gera viðauka við fjárhagsáætlun vegna niðurstöðu þeirrar vinnu.

    Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun 2020-2023 til síðari umræðu í bæjarstjórn.

  5. 5. Reglur um kjör starfsmanna

    Mál 1805184 Allur ferill málsins

    Framlagðar endurskoðaðar reglur um kjör starfsmanna sem byggðar eru á innleiðingu jafnlaunastefnu og jafnlaunakerfis.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  6. 6. Jafnlaunakerfi

    Mál 1812054 Allur ferill málsins

    Sem hluti af jafnlaunakerfi Fjarðabyggðar eru lagðar fram til staðfestingar bæjarráðs ellefu verklagsreglur. Verklagsreglur gera grein fyrir ferlum og aðferðum sem beitt er við hlítingu jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012 og jafnlaunavottun sveitarfélagsins.

    Bæjarráð staðfestir verklagsreglur jafnlaunakerfis.

  7. 7. Þorrablót Reyðfirðinga 2020 - afnot af íþróttahúsi

    Mál 1911038 Allur ferill málsins

    Beiðni Þorrablótsnefndar Reyðarfjarðar um sömu afnot af íþróttahúsinu á Reyðarfirði fyrir þorrablót í janúar 2020 og verið hefur undanfarin ár. Bæjarráð heimilar afnot.

  8. 8. Framkvæmdir 2019 - yfirlit frá framkvæmdasviði

    Mál 1902078 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað varðandi sölu á núverandi áhaldahúsi í Breiðdal, niðurlagning núverandi móttökustöðvar fyrir úrgang, kaup á eign og að allri starfsemi verði fyrirkomið á einum stað, þ.e. áhaldahús, aðstaða hafnarvarðar og móttaka á úrgangi. Bæjarráð samþykkir það fyrirkomulag sem lagt er til í minnisblaði og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs framkvæmd. Kostnaður rúmast innan fjárheimilda. Vísað til kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.

  9. 9. Staða löglærðs fulltrúa við embætti Sýslumannsins á Austurlandi á Eskfirði

    Mál 1911048 Allur ferill málsins

    Vakin hefur verið athygli bæjarráðs Fjarðabyggðar á því að til standi að leggja niður stöðu löglærðs fulltrúa á Sýsluskrifstofunni á Eskifirði. Því vill bæjarráð árétta við Sýslumanninn á Austurlandi að í reglugerð um umdæmi Sýslumannanna sem sett var árið 2014 í kjölfar breytinga á embættunum er kveðið á um að á Eskifirði eigi að vera sýsluskrifstofa. Ljóst er að á sýsluskrifstofu hljóti að eiga að starfa löglærður fulltrúi til að fylgja eftir þeim málum sem þar eru til vinnslu, ásamt því að veita almenningi lögfræðilega þjónustu. Þar sem starfssvæði Sýslumannsins á Austurlandi er landfræðilega mjög stórt er nauðsynlegt að aðgangur að þjónustu sé með þeim hætti að hægt sé að sækja hana á fleiri en einum stað í umdæminu. Því hafnar bæjarráð Fjarðabyggðar því með öllu að Sýslumaðurinn á Austurlandi leggi niður stöðu löglærðs fulltrúa á sýsluskrifstofunni á Eskifirði og mun ekki sætta sig við slík vinnubrögð. Enda væri það ankannalegt að í Fjarðabyggð starfaði engin slíkur fulltrúi en í hinu nýsameinaða sveitarfélagi Fljótsdalshéraðs, Seyðisfjarðar, Borgarfjarðar og Djúpavogs séu bæði aðalskrifstofa og sýsluskrifstofa embættisins með tveimur fulltrúm og Sýslumanni. Þá verður að horfa til þess að í Fjarðabyggð eru m.a. flestar þinglýsingar og mestar tekjur af starfsemi hjá sýslumanninum á Austurlandi. Ef það reynist satt að leggja eigi niður starf löglærðs fulltrúa í Fjarðabyggð er þetta óásættanleg stjórnun embættisins.

    Bæjarráð felur forstöðumanni stjórnsýslu að senda bréf til dómsmálaráðherra, þingmanna Norðausturlands og sýslumannsins á Austurlandi.

  10. 10. Beiðni um styrk vegna Jólamarkaðar í Dalahöllinni

    Mál 1911051 Allur ferill málsins

    Hestamannafélagið Blær óskar eftir styrk vegna jólamarkaðar sem haldinn verður í Dalahöllinni 16. nóvember. Bæjarráð hefur ekki tök á að veita styrk.

  11. 11. 66.mál til umsagnar frumvarp til laga um um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn),

    Mál 1911020 Allur ferill málsins

    Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn), 66. mál. Lagt fram til kynningar.

  12. 12. Fræðslunefnd - 76

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar nr. 76 frá 6.nóvember 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 12.1 Ungt fólk 5.-7. bekkur Fjarðabyggð1910160
    2. 12.2 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 20201904133
    3. 12.3 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð1808078
    4. 12.4 Tvöföld skólavist1910056
    5. 12.5 Hvatning til sveitarstjórna í tengslum við Skólaþing sveitarfélaga 20191909106
  13. 13. Íþrótta- og tómstundanefnd - 66

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar nr. 66 frá 6.nóvember 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 13.1 Heimsókn í íþrótta- og tómstundamannvirki á Eskifirði
    2. 13.2 Ástand húsnæða í félagsmiðstöðvum Fjarðabyggðar
    3. 13.3 Endurskoðun samnings um útvistun rekstrar Skíðasvæðisins í Oddsskarði 2019
    4. 13.4 Íþróttaakstur