Fræðslunefnd, fundur 76
6. nóvember 2019, kl. 16:30 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
- Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
- Alma Sigurbjörnsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Þóroddur Helgason, embættismaður
- Ásta Stefanía Svavarsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 638 liður 12
Fundargerð fræðslunefndar nr. 76 frá 6.nóvember 2019, lögð fram til umfjöllunar.
Bæjarstjórn, fundur 279 liður 9
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar nr. 76 frá 6. nóvember 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Ungt fólk 5.-7. bekkur Fjarðabyggð
Mál 1910160 Allur ferill málsins
Skýrsla Rannsóknar og Greiningar um ungt fólk, nemendur í 5. - 7. bekk, í Fjarðabyggð lögð fram til kynningar. Skýrslan byggir á niðurstöðu könnunar sem lögð var fyrir alla nemendur á Íslandi í febrúar 2019. Nemendur voru spurðir um samband við foreldra, fjölskyldu og vini, líðan og stríðni, nám og skóla, íþrótta- og tómstundastarf, frítímann og barnasáttmálann. Fræðslunefnd vonast til þess að efni skýrslunnar nýtist hlutaðeigandi aðilum sem allra best.
-
2. Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslunefndar 2020
Mál 1904133 Allur ferill málsins
Fjallað var um tillögu að starfs- og fjárhagsáætlun sem tekin hefur verið til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Á milli fyrri og síðari umræðu verður farið í kostnaðar- og þarfagreiningu á stækkun leikskóla á Eskifirði með það fyrir augum að ráðast í hönnun húsnæðis á árinu 2020. Formaður fræðslunefndar verður fulltrúi fræðslunefndar í þeirri vinnu.
-
3. Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð
Mál 1808078 Allur ferill málsins
Fræðslu- og frístundastefna Fjarðabyggðar og áherslur til næstu þriggja ára hafa verið gefnar út og verður á næstunni dreift á öll heimili í Fjarðabyggð. Fræðslunefnd lýsir ánægju sinni með útgáfuna og þakkar öllum þeim sem að útgáfunni komu fyrir vel unnin störf. Nú er unnið að þýðingu efnisins yfir á ensku og pólsku og fyrirhugaðir eru kynningafundir í nóvember mánuði.
-
4. Tvöföld skólavist
Mál 1910056 Allur ferill málsins
Til umræðu var leiðbeinandi álit Sambands íslenskra sveitarfélaga um tvöfalda skólavist. Í álitinu er fjallað ítarlega um tvöfalda skólavist og vitnað í lög, s.s. barnalög og lög um leik- og grunnskóla. Í lok álitsins hvetur Samband íslenskra sveitarfélaga sveitarfélög til þess að hafna tvöfaldri skólavist í bæði leik- og grunnskóla, þar sem tvöföld skólavist samræmist ekki ákvæðum laga. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra að semja drög að reglum sem taka mið af áliti Sambandsins og leggja fyrir næsta fund fræðslunefndar.
-
5. Hvatning til sveitarstjórna í tengslum við Skólaþing sveitarfélaga 2019
Mál 1909106 Allur ferill málsins
Formaður fræðslunefndar og fræðslustjóri gerðu grein fyrir nýafstöðnu skólamálþingi sem þeir sátu ásamt fulltrúa ungmennaráðs Fjarðabyggðar.