Fræðslunefnd, fundur 77
4. desember 2019, kl. 16:30 til 18:40, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
- Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Þóroddur Helgason, embættismaður
- Ásta Ásgeirsdóttir, áheyrnarfulltrúi
- Gerður Ósk Oddsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 643 liður 17
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 77 frá 4.desember 2019, lögð fram til umfjöllunar.
Bæjarstjórn, fundur 281 liður 6
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 77 frá 4.desember 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Tvöföld skólavist
Mál 1910056 Allur ferill málsins
Á síðasta fundi fræðslunefndar var fræðslustjóra falið að semja drög að reglum sem taka mið af áliti Sambandsins um tvöfalda skólavist. Í áliti Sambandsins eru sveitarfélög hvött til þess að hafna tvöfaldri skólavist í bæði leik- og grunnskóla, þar sem tvöföld skólavist samræmdist ekki ákvæðum laga. Fyrir fundinum liggja drög að reglum sjá næsta mál á dagskrá, Reglur um skólahverfi, umsóknir og innritun í grunnskóla Fjarðabyggðar, en þar er fjallað um tvöfalda skólavist auk þess sem tekið er á fleiri þáttum er varðar innritun í grunnskóla.
-
2. Reglur um skólahverfi, umsóknir og innritun í grunnskóla Fjarðabyggðar
Mál 1911162 Allur ferill málsins
Fyrir liggja drög að reglum um skólahverfi, umsóknir og innritun í grunnskóla Fjarðabyggðar. Í reglunum er kveðið á um skiptingu skólahverfa í Fjarðabyggð, fjallað um umsóknir og innritun í grunnskóla Fjarðabyggðar, nám utan lögheimilissveitarfélags og tvöfaldri skólavist. Fræðslunefnd fór yfir fyrirliggjandi drög. Fræðslunefnd óskar eftir áliti grunnskólastjóra og frestar afgreiðslu til næsta fundar.
-
3. Snjalltækjavæðing og reglur um snjalltæki í grunnskólum Fjarðabyggðar
Mál 1806053 Allur ferill málsins
Til umræðu eru drög að viðhorfakönnun þar sem leitað er eftir viðhorfum nemenda í 5.-10. bekk grunnskóla, viðhorfum foreldra/forráðamanna nemenda í 5.-10. bekk og starfsmanna grunnskóla, til reglna um snjalltæki í grunnskólum Fjarðabyggðar. Reglurnar tóku gildi 1. febrúar 2019 og þá var ákveðið að endurskoða þær að ári liðnu. Viðhorfakannanirnar eru liður í þeirri endurskoðun. Fræðslunefnd fór yfir könnunina og felur fræðslustjóra að leggja hana fyrir í desember.
-
4. Niðurstöður úr Skólavoginni
Mál 1311034 Allur ferill málsins
Fyrir liggja upplýsingar úr skólavoginni um niðurstöður nemendakönnunar 6. - 10. bekkjar grunnskóla sem lögð var fyrir í október 2019. Hver grunnskóli fer yfir og vinnur úr niðurstöðum.