Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 281

12. desember 2019, kl. 16:00 til 17:56, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Sigurður Ólafsson, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Bæjarráð - 642

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 642 og nr. 643 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tók Eydís Ásbjörnsdóttir

    Sævar Guðjónsson vék af fundi við afgreiðslu liðar 1.1.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 642 frá 2. desember 2019, utan liðar 1.1. samþykkt með 9 atkvæðum.

    Liður 1.1. samþykktur með 8 atkvæðum.

    1. 1.1 Húsnæði í hesthúsabyggð á Símonartúni1910163
    2. 1.2 Reglur um endurgerð gamalla bryggja1910182
    3. 1.3 Klæðning samkomuhússins á Stöðvarfirði1911173
    4. 1.4 Beiðni um styrk vegna jólasjóðsins 20191911193
    5. 1.5 Erindi Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar1908107
    6. 1.6 Hafnarstjórn - 2321911016F
  2. 2. Bæjarráð - 643

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 642 og nr. 643 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson

    Einar Már Sigurðarson vék af fundi við afgreiðslu liðar 2.7.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 643 frá 9. desember 2019, utan liðar 2.7. samþykkt með 9 atkvæðum.

    Liður 2.7. samþykktur með 8 atkvæðum.

    1. 2.1 Rafveita Reyðarfjarðar - TRÚNAÐARMÁL1911121
    2. 2.2 Rekstur málaflokka 2019 TRÚNAÐARMÁL1904033
    3. 2.3 Fjárhagsáætlun 2019 - viðauki 61912031
    4. 2.4 Lántaka 100 m.kr. á árinu 20191912037
    5. 2.5 Búðareyri 2 Reyðarfirði, kaupsamningur1911157
    6. 2.6 Kauptilboð í Hrauntún 6 Breiðdalsvík1908027
    7. 2.7 Kauptilboð í Bleiksárhlíð 2-4, 3ja herb.1.h frá Uxavogi ehf..1912062
    8. 2.8 Kauptilboð í hesthús við Símonartún1912020
    9. 2.9 Húsnæði í hesthúsabyggð á Símonartúni1910163
    10. 2.10 Endurnýjun á björgunarklippum1912052
    11. 2.11 Landsmót UMFÍ 50 árið 2019 í Neskaupstað1706128
    12. 2.12 391.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga og sveitarstjórnarlögum (forsendur úthlutana úr Jöfnunarsjóði)1912011
    13. 2.13 Drög að reglum um meðferð, varðveislu og eyðingu á tölvupóstum afhendingarskyldra aðila1912038
    14. 2.14 Ósk um stuðning - Náttúruverndarsamtök Austurlands 50 ára1911097
    15. 2.15 Starfsemi Krabbameinsfélags Austfjarða1912063
    16. 2.16 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 2481911024F
    17. 2.17 Fræðslunefnd - 771911022F
    18. 2.18 Íþrótta- og tómstundanefnd - 671912001F
  3. 3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 248

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku Einar Már Sigurðarson og Sævar Guðjónsson.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 248 frá 2.desember 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 Breyting á opnunartíma söfnunarstöðva sorps á Fásk og Stöð1911089
    2. 3.2 319. mál til umsagnar frumvarp til laga um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun1911080
    3. 3.3 Verkefnis- og matslýsing Kerfisáætlunar 2020-20291911139
    4. 3.4 Ósk um stuðning - Náttúruverndarsamtök Austurlands 50 ára1911097
    5. 3.5 735 Strandgata 53 - bílastæði við húseign1911161
    6. 3.6 Umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar1805134
    7. 3.7 Kvöð um aldursmörk Melgerði 13 Reyðarfirði1911030
    8. 3.8 730 Brekkugata 5 - Endurnýjun á lóðaleigusamningi1911040
    9. 3.9 740 Fólkvangur - Framkvæmdaleyfi, vegur, stígar og bílastæði1910167
    10. 3.10 740 Skjónulækur - Umsókn um framkvæmdaleyfi, færsla á læk1911072
    11. 3.11 735, 740 Dreifbýli - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Neskaupstaðarlína 21911105
    12. 3.12 Breiðtorg - Breiðdal1809004
    13. 3.13 Húsnæði í hesthúsabyggð á Símonartúni1910163
  4. 4. Hafnarstjórn - 232

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Sævar Guðjónsson.

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 232 frá 25.nóvember 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 Erindi varðandi Breiðdalsvíkurhöfn1911086
    2. 4.2 Endurnýjun dráttarbáts1911119
    3. 4.3 Hafnarkantur við nýja netaverkstæðið að Naustahvammi 91911123
    4. 4.4 Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskimjölsverksmiðju1911085
    5. 4.5 Listi yfir undanþágu frá Hafnsöguréttindum1901127
    6. 4.6 Veðurstöðvar á Fjarðabyggðarhöfnum1911045
    7. 4.7 Seatrade Cruise Global sýningin í Miami 20201911070
    8. 4.8 Reglur um endurgerð gamalla bryggja1910182
    9. 4.9 Afskráning Stöðvarfjarðarhafnar (ISSTD)1911134
    10. 4.10 740 Afnotasamingur fyrir Egilsbraut 21808028
  5. 5. Íþrótta- og tómstundanefnd - 67

    Fundargerðin í heild

    Til máls tók Pálína Margeirsdóttir.

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 67 frá 4.desember 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 5.1 Ungmennaráð - 1
    2. 5.2 UÍA beiðni um styrk á árinu 2020
    3. 5.3 Ungt fólk 5.-7. bekkur Fjarðabyggð
    4. 5.4 Íþróttamaður Fjarðabyggðar 2019
  6. 6. Fræðslunefnd - 77

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 77 frá 4.desember 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 6.1 Tvöföld skólavist1910056
    2. 6.2 Reglur um skólahverfi, umsóknir og innritun í grunnskóla Fjarðabyggðar1911162
    3. 6.3 Snjalltækjavæðing og reglur um snjalltæki í grunnskólum Fjarðabyggðar1806053
    4. 6.4 Niðurstöður úr Skólavoginni1311034
  7. 7. Rafveita Reyðarfjarðar - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1911121 Allur ferill málsins

    Forseti mælti fyrir máli.

    Fyrir fundi bæjarstjórnar liggja kaupsamningar að fjárhæð 440 m.kr. ásamt fylgiskjölum 1-4, við RARIK ohf. f.h. Fjarðabyggðar og Rafveitu Reyðarfjarðar, um sölu á dreifikerfi og spennistöðvum Rafveitu Reyðarfjarðar auk búnaðar og tækja sem fylgja eiga. Einnig kaupsamningur að fjárhæð 130 m.kr. ásamt fylgiskjölum 1-7, við Orkusöluna f.h. Fjarðabyggðar og Rafveitu Reyðarfjarðar um sölu á raforkuviðskiptum Rafveitu Reyðarfjarðar, yfirtöku á samningum við Landsvirkjun ásamt rafstöð og stíflu. Kaupsamningar þessir eru háðir fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlits hvað varðar orkusölu veitunnar og samþykki iðnaðarráðherra á yfirtöku RARIK á einkaleyfi Rafveitu Reyðarfjarðar til orkudreifingar.

    Rafveita Reyðarfjarðar er síðasta dreifiveita rafmagns, hér á landi, í beinni eigu og rekstri á hendi sveitarfélags, en umhverfi og regluverk sem veitum er sett í núgildandi raforkulöggjöf er orðið verulega snúið og umfangsmikið. Um langt árabil hefur Rafveita Reyðarfjarðar framleitt um 5% af því rafmagni sem hún endurselur en 95% hafa verið keypt á heildsölumarkaði og það ásamt auknum kröfum í rekstrarumhverfi, samkeppni á raforkumarkaði og tæknilegum lausnum, gera sveitarfélaginu erfitt fyrir með áframhaldandi rekstur á henni í sínu starfsumhverfi. Því telur bæjarstjórn rétt að selja áðurnefndum aðilum Rafveitu Reyðarfjarðar sem sérhæfðir eru í rekstri rafmagnsveitna og sölu raforku í samkeppnisumhverfi enda geti þeir nýtt stærðarhagkvæmni og veitt sömu þjónustu til viðskiptavina veitunnar til framtíðar. Þá eru RARIK og Orkusalan í opinberri eigu, með starfsemi á Austurlandi, og þannig er tryggt að notendur rafveitunnar sitji við sama borð og aðrir íbúar landshlutans hvað varðar öryggi og þjónustu.

    Jafnframt vill bæjarstjórn að þeir fjármunir sem sveitarfélagið fær í sinn hlut, eftir greiðslu skatta, af sölu þessari, renni fyrst og fremst til uppbyggingar Íþróttahúss Reyðarfjarðar ásamt öðrum slíkum mannvirkjum og samfélagslegum verkefnum í samfélaginu á Reyðarfirði. Mun verða farið í áætlunargerð vegna þess eftir að ákvarðanir um sölu hafa verið teknar.

    Vegna áðurnefndra samninga samþykkir bæjarstjórn með 9 atkvæðum að boðað verði til íbúafundar á Reyðarfirði mánudagskvöldið 16. desember nk. kl. 20:00 til að kynna málið frekar og aukafundar í bæjarstjórn þriðjudaginn 17. desember nk. kl:17:00 þar sem ákvörðun verður tekin.

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir og Rúnar Már Gunnarsson.

  8. 8. Reglur um endurgerð gamalla bryggja

    Mál 1910182 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að reglum um styrkveitingu vegna viðhalds og endurgerðar gamalla bryggja. Hafnarstjórn og bæjarráð hafa samþykkt reglurnar fyrir sitt leyti og er þeim vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.

    Forseti mælti fyrir reglum.

    Til máls tóku Sævar Guðjónsson og Jón Björn Hákonarson.

    Bæjarstjórn samþykkir reglur með 9 atkvæðum.

  9. 9. Fjárhagsáætlun 2019 - viðauki 6

    Mál 1912031 Allur ferill málsins

    Framlagður viðauki nr. 6 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2019. Viðaukinn er í samræmi við ýmsar samþykktir bæjarstjórnar, bæjarráðs og annarra nefnda er varða fjárfestingarákvarðanir, fjárfestingarverkefni, millifærslur milli rekstrarliða og annarra breytinga fjárhagsáætlunar.

    Forseti gerði grein fyrir viðauka en viðaukinn sundurliðar og gerir nánari grein fyrir eftirfarandi:

    a)Kaup á Búðareyri 2 Reyðarfirði.

    b)Kaup á Sæbergi 3 Breiðdal.

    c)Nýtt þjónustuhús Breiðdal.

    d)Endurbætur skíðasvæðis Oddsskarði.

    e)Endurbætur íþróttahúss Eskifirði.

    f)Endurbætur Skólamiðstöðvar Fáskrúðsfirði.

    g)Endurbætur skólahúsnæðis Breiðdal

    h)Endurbætur Egilsbúðar Neskaupstað.

    i)Framkvæmdir við Skólaveg á Fáskrúðsfirði - gatnagerð.

    j)Framkvæmdir við Skólaveg á Fáskrúðsfirði - vatnsveita.

    k)Framkvæmdir við Skólaveg á Fáskrúðsfirði - fráveita.

    l)Endurbætur Sæbergs Breiðdal.

    m)Snjómokstur í Fjarðabyggð.

    n)Uppbyggingu fólkvanga, friðlanda og útivistarsvæða í Fjarðabyggð.

    o)Fjárframlag til reksturs hjúkrunarheimilsins Hulduhlíðar.

    p)Tilfærsla framlags innan aðalsjóðs til hjúkrunarheimila.

    q)Tilfærslur fjármagns milli vinnuskóla og umhverfisverkefna innan aðalsjóðs.

    r)Leiðrétting innri húsaleigu milli málaflokka og deilda aðalsjóðs.

    s)Ráðningar mannauðsstjóra vegna skipulagsbreytinga.

    t)Úthlutun námsstyrkja milli málaflokka og deilda innan aðalsjóðs.

    u)Lækkun fjárveitinga til framkvæmd við móttökustöðvar úrgangs.

    v)Lækkun fjárvetingar til viðhaldsverkefna Félagslegra íbúða.

    x)Lækkun fjárveitinga til viðhaldsverkefna Eignarhaldsfélagsins Hrauns

    y)Hækkun framlaga Jöfnunarsjóðs í samræmi við lög um viðauka sveitarfélaga.

    Viðaukinn felur í sér eftirfarandi samanlagðar breytingar á útgjöldum:

    Útgjöld í rekstri A hluta hækka um 16,4.kr. og rekstrarniðurstaða A hluta verður jákvæð um kr. 213,8 m.kr.

    Útgjöld í rekstri B hluta lækka um 15 m.kr. og rekstrarniðurstaða samstæðu verður jákvæð um 505 m.kr.

    Fjárfestingar í A hluta hækka um 206,1 m.kr. og verða 731,3 m.kr. í stað 576 m.kr. áður.

    Fjárfestingar í B hluta hækka um 50,5 m.kr. og verða í samstæðu 1.331,5 m.kr. í stað 1.074,9 m.kr. áður

    Lántökur hækka um 52,4 m.kr. og verða 162,4 m.kr. á árinu.

    Handbært fé Aðalsjóðs mun lækka alls um 216,8 m.kr. frá fjárhagsáætlun ársins og verða 49,4 m.kr. í árslok 2019.

    Ragnar Sigurðsson vék af fundi undir liðum o) og p)

    Liður a) í viðauka nr. 6 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2019, borinn upp sérstaklega og samþykktur með 7 atkvæðum. Fulltrúar sjálfstæðisflokks eru á móti.

    Til máls við viðauka nr. 6 utan liða a), o) og p) tóku Ragnar Sigurðsson, Jón Björn Hákonarson og Einar Már Sigurðarson.

    Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 6 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2019, utan liða a), o) og p) með 9 atkvæðum.

    Liðir o) og p) samþykktir með 8 atkvæðum.

  10. 10. Búðareyri 2 Reyðarfirði, kaupsamningur

    Mál 1911157 Allur ferill málsins

    Lagt er til að kaup á Búðareyri 2 á Reyðarfirði verði að hluta fjármögnuð með lántöku hjá Sparisjóði Austurlands, með skuldabréfi að fjárhæð 40,8 m.kr. til 15 ára með 6,75% vöxtum. Lánið er óverðtryggt og með fyrsta veðrétti í eigninni. Lántaka lögð fyrir bæjarstjórn til samþykktar.

    Til máls tóku Ragnar Sigurðsson, Sævar Guðjónsson, Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson, Rúnar Már Gunnarsson, Eydís Ásbjörnsdóttir og Pálína Margeirsdóttir.

    Sjálfstæðisflokkurinn er á móti lántöku.

    Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum fyrirliggjandi skuldabréf við Sparisjóð Austurlands að höfuðstól kr. 40.800.000, til allt að 15 ára, í samræmi við skilmála skuldabréfs sem liggja fyrir á fundinum og bæjarfulltrúar hafa kynnt sér. Lánið er óverðtryggt á breytilegum vöxtum. Skuldabréfið er með 1. veðrétti í Búðareyri 2 Reyðarfirði og er lánið tekið til að fjármagna kaup fasteignarinnar. Jafnframt er Gunnari Jónssyni, staðgengli bæjarstjóra Fjarðabyggðar kt. 291065-8059, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Fjarðabyggðar að undirrita skuldabréfið við Sparisjóð Austurlands sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.

  11. 11. Lántaka 100 m.kr. á árinu 2019

    Mál 1912037 Allur ferill málsins

    Samkvæmt fjárhagsáætlun ársins 2019 var gert ráð fyrir lántöku allt að 100 m. kr. á árinu. Lagt er til að þessi lánsheimild verði nýtt. Heimild til lántöku lögð fyrir bæjarstjórn til samþykktar.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum fyrirliggjandi lánasamning við Íslandsbanka að höfuðstól kr. 100.000.000, til allt að 15 ára, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og bæjarfulltrúar hafa kynnt sér. Lánið er jafngreiðslulán og óverðtryggt á breytilegum vöxtum. Er lánið tekið til að endurfjármagna fjárfestingu ársins að hluta. Jafnframt er Gunnari Jónssyni, staðgengli bæjarstjóra Fjarðabyggðar kt. 291065-8059, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Fjarðabyggðar að undirrita lánssamning Íslandsbanka sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.