Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 643

9. desember 2019, kl. 08:30 til 10:55, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 281 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 642 og nr. 643 teknar til afgreiðslu saman.

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson

    Einar Már Sigurðarson vék af fundi við afgreiðslu liðar 2.7.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 643 frá 9. desember 2019, utan liðar 2.7. samþykkt með 9 atkvæðum.

    Liður 2.7. samþykktur með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rafveita Reyðarfjarðar - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1911121 Allur ferill málsins

    Umræða um málefni Rafveitu Reyðarfjarðar. Máli vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  2. 2. Rekstur málaflokka 2019 TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1904033 Allur ferill málsins

    Lagt fram yfirlit yfir rekstur og fjárfestingar Fjarðabyggðar fyrir janúar - október 2019, launakostnað og skatttekjur fyrir janúar - nóvember 2019.

  3. 3. Fjárhagsáætlun 2019 - viðauki 6

    Mál 1912031 Allur ferill málsins

    Framlagður viðauki nr. 6 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2019. Viðaukinn er í samræmi við ýmsar samþykktir bæjarstjórnar, bæjarráðs og annarra nefnda. Viðauka nr. 6 vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  4. 4. Lántaka 100 m.kr. á árinu 2019

    Mál 1912037 Allur ferill málsins

    Samkvæmt fjárhagsáætlun ársins 2019 var gert ráð fyrir lántöku allt að 100 m. kr. á árinu. Lagt er til að þessi lánsheimild verði nýtt. Bæjarráð samþykkir lántöku og felur fjármálastjóra afgreiðslu.

  5. 5. Búðareyri 2 Reyðarfirði, kaupsamningur

    Mál 1911157 Allur ferill málsins

    Lagt er til að kaup á Búðareyri 2 á Reyðarfirði verði að hluta fjármögnuð með lántöku hjá Sparisjóði Austurlands. Framlagt skuldabréf að fjárhæð 40,8 m.kr. til 15 ára með 6,75% vöxtum. Lánið er óverðtryggt og með fyrsta veðrétti í eigninni. Bæjarráð samþykkir lántöku. Dýrunn Pála Skaftadóttir situr hjá við afgreiðslu málsins.

  6. 6. Kauptilboð í Hrauntún 6 Breiðdalsvík

    Mál 1908027 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri leggur fram samkomulag við Íbúðalánasjóð um flutning á eftirstöðvum láns vegna Hrauntúns 6 yfir á fasteignina Hrauntún 10, þar til samkomulag liggur fyrir um lækkun skulda Breiðdalshrepps við Íbúðalánasjóð. Bæjarráð samþykkir tillögu fjármálastjóra.

  7. 7. Kauptilboð í Bleiksárhlíð 2-4, 3ja herb.1.h frá Uxavogi ehf..

    Mál 1912062 Allur ferill málsins

    Einar Már Sigurðarson vék af fundi við afgreiðslu þessa liðar. Framlagt tilboð frá Uxavogi ehf. að upphæð 8,3 m.kr. í 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð í Bleiksárhlíð 2-4 á Eskfirði. Fasteignamat er 9,3 m.kr. og ásett verð 9,4 m.kr. Innréttingar og gólfefni eru mjög léleg. Fjármálastjóri og sviðsstjóri framkvæmdasviðs mæla með að tilboði verði tekið. Bæjarráð samþykkir sölu á íbúðinni.

  8. 8. Kauptilboð í hesthús við Símonartún

    Mál 1912020 Allur ferill málsins

    Kauptilboð í hesthúsið á Símonartúni á Eskifirði frá Þorsteini Snorra Jónssyni að fjárhæð kr. 500.000. Bæjarráð hafnar tilboði þar sem hærra tilboð hefur borist.

  9. 9. Húsnæði í hesthúsabyggð á Símonartúni

    Mál 1910163 Allur ferill málsins

    Bæjarráð óskaði eftir afstöðu eigna- skipulags- og umhverfisnefndar til breytinga á deiliskipulagi svæðisins er hesthúsið við Símonartún utan Eskifjarðar, stendur á. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar til fyrri bókunar frá fundi nefndarinnar 11. nóvember síðastliðins er varðar Símonartún, en þar telur nefndin ekkert því til fyrirstöðu að við endurskoðun aðalskipulags verði gert ráð fyrir breyttri landnotkun við Símonartún, þannig að gert verði ráð fyrir geymslum og léttum iðnaði á svæðinu. Deiliskipulagi yrði breytt til samræmis.

    Í ljósi ofangreinds samþykkir bæjarráð tilboð Gísla Hjartar Guðjónssonar í hesthúsið á Símonartúni Eskifirði að fjárhæð kr. 3.000.000. Bæjarráð felur fjármálastjóra og sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs afgreiðslu málsins.

  10. 10. Endurnýjun á björgunarklippum

    Mál 1912052 Allur ferill málsins

    Minnisblað slökkviliðsstjóra er varðar endurnýjun á búnaði til að bjarga fastklemmdu fólki úr bifreiðum. Bæjarráð heimilar kaup á búnaði, takist af liðnum óráðstafað.

  11. 11. Landsmót UMFÍ 50 árið 2019 í Neskaupstað

    Mál 1706128 Allur ferill málsins

    51.sambandsþing UMFÍ sem haldið var á Laugarbakka 11. - 13, október sl., færir Fjarðabyggð og bæjarstjórn þakkir fyrir góða aðstöðu og móttökur á 9.landsmóti UMFÍ 50 , sem haldið var í Neskaupstað í sumar.

  12. 12. 391.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga og sveitarstjórnarlögum (forsendur úthlutana úr Jöfnunarsjóði)

    Mál 1912011 Allur ferill málsins

    Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga og sveitarstjórnarlögum (forsendur úthlutana úr Jöfnunarsjóði), 391. mál.

    Umsögn þyrfti að berast eigi síðar en 9. desember. Vísað til fjármálastjóra til skoðunar.

  13. 13. Drög að reglum um meðferð, varðveislu og eyðingu á tölvupóstum afhendingarskyldra aðila

    Mál 1912038 Allur ferill málsins

    Þjóðskjalasafn Íslands hefur sent héraðsskjalavörðum til umsagnar drög að reglum um meðferð, varðveislu og eyðingu á tölvupóstum afhendingarskyldra aðila. Frestur til að skila inn umsögn er til og með 3. janúar 2020. Vísað til stjórnsýslu- og þjónustusviðs til skoðunar.

  14. 14. Ósk um stuðning - Náttúruverndarsamtök Austurlands 50 ára

    Mál 1911097 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Náttúruverndarsamtaka Austurlands, dagsett 18. nóvember 2019, þar sem óskað er eftir styrk vegna sérstaklega mikils umfangs á 50 ára afmælisári NAUST. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur tekið vel í erindið og vísar því til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Tekið fyrir að nýju í bæjarráði í upphafi nýs árs.

  15. 15. Starfsemi Krabbameinsfélags Austfjarða

    Mál 1912063 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Krabbameinsfélags Austfjarða þar sem óskað er eftir framlagi til starfsemi félagsins. Bæjarráð fagnar öflugu starfi félagsins og vill koma að því að styrkja það með því að veita 600.000 kr. styrk á móti húsaleigu á árinu 2020. Tekist af liðnum óráðstafað.

  16. 16. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 248

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 248 frá 2.desember 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 16.1 Breyting á opnunartíma söfnunarstöðva sorps á Fásk og Stöð1911089
    2. 16.2 319. mál til umsagnar frumvarp til laga um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun1911080
    3. 16.3 Verkefnis- og matslýsing Kerfisáætlunar 2020-20291911139
    4. 16.4 Ósk um stuðning - Náttúruverndarsamtök Austurlands 50 ára1911097
    5. 16.5 735 Strandgata 53 - bílastæði við húseign1911161
    6. 16.6 Umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar1805134
    7. 16.7 Kvöð um aldursmörk Melgerði 13 Reyðarfirði1911030
    8. 16.8 730 Brekkugata 5 - Endurnýjun á lóðaleigusamningi1911040
    9. 16.9 740 Fólkvangur - Framkvæmdaleyfi, vegur, stígar og bílastæði1910167
    10. 16.10 740 Skjónulækur - Umsókn um framkvæmdaleyfi, færsla á læk1911072
    11. 16.11 735, 740 Dreifbýli - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Neskaupstaðarlína 21911105
    12. 16.12 Breiðtorg - Breiðdal1809004
    13. 16.13 Húsnæði í hesthúsabyggð á Símonartúni1910163
  17. 17. Fræðslunefnd - 77

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 77 frá 4.desember 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 17.1 Tvöföld skólavist1910056
    2. 17.2 Reglur um skólahverfi, umsóknir og innritun í grunnskóla Fjarðabyggðar1911162
    3. 17.3 Snjalltækjavæðing og reglur um snjalltæki í grunnskólum Fjarðabyggðar1806053
    4. 17.4 Niðurstöður úr Skólavoginni1311034
  18. 18. Íþrótta- og tómstundanefnd - 67

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 67 frá 4.desember 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 18.1 Ungmennaráð - 1
    2. 18.2 UÍA beiðni um styrk á árinu 2020
    3. 18.3 Ungt fólk 5.-7. bekkur Fjarðabyggð
    4. 18.4 Íþróttamaður Fjarðabyggðar 2019