Lántaka 100 m.kr. á árinu 2019
Mál 1912037 Fyrst á dagskrá 9. desember 2019, síðast 12. desember 2019. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2019
Bæjarráð, fundur 643 liður 4
Samkvæmt fjárhagsáætlun ársins 2019 var gert ráð fyrir lántöku allt að 100 m. kr. á árinu. Lagt er til að þessi lánsheimild verði nýtt. Bæjarráð samþykkir lántöku og felur fjármálastjóra afgreiðslu.
-
Bæjarstjórn, fundur 281 liður 11
Samkvæmt fjárhagsáætlun ársins 2019 var gert ráð fyrir lántöku allt að 100 m. kr. á árinu. Lagt er til að þessi lánsheimild verði nýtt. Heimild til lántöku lögð fyrir bæjarstjórn til samþykktar.
Enginn tók til máls.
Lesa alla bókunina (103 orð til viðbótar)
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum fyrirliggjandi lánasamning við Íslandsbanka að höfuðstól kr. 100.000.000, til allt að 15 ára, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og bæjarfulltrúar hafa kynnt sér. Lánið er jafngreiðslulán og óverðtryggt á breytilegum vöxtum. Er lánið tekið til að endurfjármagna fjárfestingu ársins að hluta. Jafnframt er Gunnari Jónssyni, staðgengli bæjarstjóra Fjarðabyggðar kt. 291065-8059, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Fjarðabyggðar að undirrita lánssamning Íslandsbanka sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
-
Bæjarstjórn, fundur 281 liður 2.4
Fundargerðin „Bæjarráð - 643“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.