Bæjarráð, fundur 642
2. desember 2019, kl. 08:30 til 09:55, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 281 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs nr. 642 og nr. 643 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tók Eydís Ásbjörnsdóttir
Sævar Guðjónsson vék af fundi við afgreiðslu liðar 1.1.
Fundargerð bæjarráðs nr. 642 frá 2. desember 2019, utan liðar 1.1. samþykkt með 9 atkvæðum.
Liður 1.1. samþykktur með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Húsnæði í hesthúsabyggð á Símonartúni
Mál 1910163 Allur ferill málsins
Lagt fram tilboð í hesthúsið á Símonartúni Eskifirði. Bæjarráð óskar eftir afstöðu eigna- skipulags- og umhverfisnefndar til breytinga á deiliskipulagi svæðisins er hesthúsið stendur á. Erindi tekið fyrir að nýju þegar afstaða liggur fyrir.
-
2. Reglur um endurgerð gamalla bryggja
Mál 1910182 Allur ferill málsins
Framlögð drög að reglum um styrkveitingu vegna viðhalds og endurgerðar gamalla bryggja. Verkefnastjóra hafna var falið að gera lítilsháttar breytingar eftir fund hafnarstjórnar, í samræmi við umræður á fundinum. Hafnarstjórn hefur samþykkt reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarráðs. Bæjarráð samþykkir reglur og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.
-
3. Klæðning samkomuhússins á Stöðvarfirði
Mál 1911173 Allur ferill málsins
Bréf Salthúsmarkaðshópsins Stöðvarfirði er varðar klæðningu samkomuhússins í þorpinu. Óeðlilegar tafir hafa orðið á verkinu og ítrekar bæjarráð að því verði lokið sem allra fyrst. Sviðsstjóri framkvæmdasviðs mun fylgja verkinu eftir.
-
4. Beiðni um styrk vegna jólasjóðsins 2019
Mál 1911193 Allur ferill málsins
Ákvörðun um framlag í jólasjóð Fjarðabyggðar 2019. Hefð er komin á samvinnu Rauða kross deilda í Fjarðabyggð og Fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar, Mæðrastyrksnefndar Kvenfélagsins Nönnu, Kvenfélags Reyðarfjarðar, Kaþólsku kirkjunnar og Þjóðkirkjunnar, við að styrkja einstaklinga og fjölskyldur sem þurfa á aðstoð að halda fyrir jólin. Bæjarráð samþykkir að styrkja jólasjóðinn um 500.000 kr. líkt og undanfarin ár.
-
5. Erindi Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar
Mál 1908107 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sátu Ingi Steinn Freysteinsson, Hilmir Ásbjörnsson og Jóhann Ragnar Benediktsson. Í kjölfar fundar sem haldinn var með stjórnarmönnum Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar (KFF) og Fjarðabyggð, þann 20. september 2019, er lögð fram framtíðarsýn, óskir og afreksstefna félagsins. Bæjarráð felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að fara yfir óskir KFF og leggja fram minnisblað fyrir bæjarráð.
-
6. Hafnarstjórn - 232
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 232 frá 25.nóvember 2019, lögð fram til umfjöllunar.
- 6.1 Erindi varðandi Breiðdalsvíkurhöfn1911086
- 6.2 Endurnýjun dráttarbáts1911119
- 6.3 Hafnarkantur við nýja netaverkstæðið að Naustahvammi 91911123
- 6.4 Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskimjölsverksmiðju1911085
- 6.5 Listi yfir undanþágu frá Hafnsöguréttindum1901127
- 6.6 Veðurstöðvar á Fjarðabyggðarhöfnum1911045
- 6.7 Seatrade Cruise Global sýningin í Miami 20201911070
- 6.8 Reglur um endurgerð gamalla bryggja1910182
- 6.9 Afskráning Stöðvarfjarðarhafnar (ISSTD)1911134
- 6.10 740 Afnotasamingur fyrir Egilsbraut 21808028