Bæjarráð, fundur 640
18. nóvember 2019, kl. 08:30 til 11:15, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Þórður Vilberg Guðmundsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 280 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs nr. 640 og nr. 641 lagðar fram til samþykktar.
Til máls tók Eydís Ásbjörnsdóttir.
Fundargerð bæjarráðs nr. 640 frá 18.nóvember 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Rekstur málaflokka 2019 TRÚNAÐARMÁL
Mál 1904033 Allur ferill málsins
Framlagt yfirlit yfir rekstur málaflokka og fjárfestingar janúar - september 2019 og skatttekjur og launakostnað janúar - október 2019. Einnig deildaryfirlit fyrir janúar - september.
-
2. Mannauðsstefna Fjarðabyggðar
Mál 1805210 Allur ferill málsins
Ásta Sigríður Skúladóttir, mannauðsstjóri Fjarðabyggðar, sat þennan lið fundarins og fór yfir mannauðsmál sveitarfélagsins og verkefni sviðsins.
-
3. Menningarstofa Fjarðabyggðar
Mál 1708057 Allur ferill málsins
Ari Allansson, forstöðumaður menningarstofu sat þennan lið fundarins og fór yfir verkefni menningarstofu og starfið framundan.
-
4. Byggingarframkvæmdir við leikskólann Lyngholt
Mál 1812086 Allur ferill málsins
Sviðstjóri framkvæmdasviðs sat þennan lið fundarins og fór yfir framkvæmdir við stækkun Leikskólans Lyngholts.
-
5. Trúnaðarmál - erindi frá íbúa
Mál 1911087 Allur ferill málsins
Bæjarráð felur sviðstjóra umhverfissviðs að fara yfir erindið og vera í sambandi við bréfritara.
-
6. Fundur í almannavarnarnefnd í umdæmi lögreglustjórans á Austurlandi 2019
Mál 1911076 Allur ferill málsins
Fundargerð almannavarnarnefndar í umdæmi lögulegustjórans á Austurlandi frá 15. október 2019 var lögð fram til kynningar.
-
7. Fundarboð Veiðifélags Norðfjarðarár 2019
Mál 1911066 Allur ferill málsins
Fundarboð á almennan félagafund í Veiðifélags Norðfjarðarár þann 18. nóvember lagt fram til kynningar. Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri verði fulltrúi Fjarðabyggðar á fundinum.
-
8. 317. mál til umsagnar frumvarp til laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta (leyfisveitingar, málsmeðferð, endurupptaka o.fl.)
Mál 1911069 Allur ferill málsins
Alsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta (leyfisveitingar, málsmeðferð, endurupptaka o.fl. Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umsagnar í eigna-, skipulags, og umhverfisnefnd.
-
9. 319. mál til umsagnar frumvarp til laga um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
Mál 1911080 Allur ferill málsins
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umsagnar í eigna-, skipulags, og umhverfisnefnd og til kynningar í félagsmálanefnd.
-
10. 320.mál til umsagnar frumvarp til laga um almannatryggingar almennar íbúðir (hækkun tekju- og eignamarka leigjenda, sérstakt byggðaframlag, veðsetningu),
Mál 1911082 Allur ferill málsins
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um almannatryggingar almennar íbúðir (hækkun tekju- og eignamarka leigjenda, sérstakt byggðaframlag, veðsetningu),Lagt fram til kynningar. Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umsagnar í félagsmálanefnd.