Hafnarstjórn, fundur 232
25. nóvember 2019, kl. 11:30 til 13:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 642 liður 6
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 232 frá 25.nóvember 2019, lögð fram til umfjöllunar.
Bæjarstjórn, fundur 281 liður 4
Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Sævar Guðjónsson.
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 232 frá 25.nóvember 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Erindi varðandi Breiðdalsvíkurhöfn
Mál 1911086 Allur ferill málsins
Lagt fyrir erindi frá Elís Pétri Elíssyni varðandi höfnina á Breiðdalsvík. Hafnarstjórn þakkar bréfritara fyrir erindið og mun taka það til frekari skoðunar í vinnu sinni.
-
2. Endurnýjun dráttarbáts
Mál 1911119 Allur ferill málsins
Endurnýjunar er þörf á dráttarbáti Fjarðabyggðarhafna til framtíðar litið. Hafnarstjórn er sammála um að hefja skoðun og þarfagreiningu á nýjum slíkum báti. Verkefnastjóra hafna og sviðsstjóra framkvæmdasviðs falið að halda utan um þá vinnu.
-
3. Hafnarkantur við nýja netaverkstæðið að Naustahvammi 9
Mál 1911123 Allur ferill málsins
Lagt fyrir erindi frá Hampiðjunni Ísland ehf. varðandi hafnarkantinn við netagerðina á Norðfirði. Hafnarstjóra og starfsmönnum falið að ræða við bréfritara um útfærslur og frekari skoðun á málinu.
-
4. Beiðni um umsögn v.endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskimjölsverksmiðju
Mál 1911085 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar umsögn vegna endurnýjunar heimavigtunarleyfis fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar. Hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við umsögnina og felur hafnarstjóra að senda hana.
-
5. Listi yfir undanþágu frá Hafnsöguréttindum
Mál 1901127 Allur ferill málsins
Fram hafa komið athugasemdir vegna undanþágu frá lóðsskyldu. Hafnarstjóra falið að ræða við skipafélög vegna málsins og leggja fyrir að nýju.
-
6. Veðurstöðvar á Fjarðabyggðarhöfnum
Mál 1911045 Allur ferill málsins
Framlagðar upplýsingar um veðurstöðvar. Tekið fyrir á næsta fundi.
-
7. Seatrade Cruise Global sýningin í Miami 2020
Mál 1911070 Allur ferill málsins
Erindi frá Cruise Iceland vegna sýningarinnar Seatrade Cruise Global í Miami 20-23.apríl 2020 um hvort Fjarðabyggðarhafnir vilji nýta sameiginlegan starfsmann þar. Kostnaður 80.000 kr. Hafnarstjórn samþykkir erindið.
-
8. Reglur um endurgerð gamalla bryggja
Mál 1910182 Allur ferill málsins
Framlögð drög að reglum um styrkveitingu vegna viðhalds og endurgerðar gamalla bryggja. Verkefnastjóra hafna falið að gera lítilsháttar breytingar í samræmi við umræður á fundinum. Hafnarstjórn samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarráðs.
-
9. Afskráning Stöðvarfjarðarhafnar (ISSTD)
Mál 1911134 Allur ferill málsins
Breyting á skráningu Stöðvarfjarðarhafnar vegna skipa í alþjóðasiglingum. Verkefnastjóra hafna falið að ganga frá breytingu.
-
10. 740 Afnotasamingur fyrir Egilsbraut 2
Mál 1808028 Allur ferill málsins
Afnotasamningur milli hafnarstjórnar og Safnastofnunar Fjarðabyggðar vegna Egilsbrautar 2. Áður tekið fyrir á 206.fundi hafnarstjórnar. Hafnarstjórn samþykkir samninginn og felur hafnarstjóra undirritun hans.