Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 233

9. desember 2019, kl. 11:30 til 12:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
  • Kristinn Grétar Rögnvarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 282 liður 4

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 233 frá 9.desember 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.

  • Bæjarráð, fundur 644 liður 7

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 233 frá 9.desember 2019, lögð fram til umfjöllunar.

Dagskrá

  1. 1. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2019

    Mál 1901001 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð Hafnasambands Íslands frá fundi þann 18.nóvember síðastliðinn

  2. 2. Rannsóknir á setþykkt, kóralþörungum og botndýralífi

    Mál 1909016 Allur ferill málsins

    Lögð fram gögn úr rannsóknum á fyrirhuguðu efnistökusvæði í Hellisfirði. Taka þarf ákvörðun um hvort fara eigi í frekari rannsóknir á svæðinu. Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna að ræða við leyfisveitendur um niðurstöður rannsókna og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju.

  3. 3. Verkefni hafnarsjóðs

    Mál 1908100 Allur ferill málsins

    Farið yfir fjárfestingaáætlun og fyrirhugaðar framkvæmdir ársins 2020. Framkvæmdasviði falið að vinna áfram tillögur að viðgerð á stálþili hafskipabryggju á Eskifirði og leggja fyrir að nýju. Jafnframt lögð fram skýrsla Eflu yfir valkosti til hafnargerðar hjá Eskju á Eskifirði. Hafnarstjórn samþykkir að leggja til valkost 2 í skýrslu til frekari vinnslu hjá Skipulagsstofnun.

  4. 4. Viðburðir tengdir komu skemmtiferðaskipa 2019

    Mál 1902068 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar minnisblað um mat á viðburðum tengdum komum skemmtiferðaskipa 2019. Hafnarstjórn vísar minnisblaði til frekari vinnu við komu skemmtiferðaskipa til Fjarðabyggðar.

  5. 5. Umsókn um framkvæmdaleyfi lagnaleiðar milli fiskiðjuvers og fiskimjölsverksmiðju

    Mál 1912047 Allur ferill málsins

    Umsókn Síldarvinnslunnar um leyfi til að leggja lagnir milli Fiskiðjuvers og Fiskimjölsverksmiðju SVN í Neskaupstað. Hafnarstjórn samþykkir framkvæmdaleyfi vegna lagnaleiðar með skilyrðum sem tekin eru fram í svarbréfi.

  6. 6. Framkvæmdir 2019 - yfirlit frá framkvæmdasviði

    Mál 1902078 Allur ferill málsins

    Kaup á húsnæði fyrir þjónustumiðstöð og hafnaraðstöðu í Breiðdal að Selnesi 14 og 14b. Hafnarstjórn staðfestir áður samþykkt kaup á Selnesi 14 og 14b.