Hafnarstjórn, fundur 234
6. janúar 2020, kl. 11:30 til 13:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 646 liður 13
Fundurgerð hafnarstjórnar frá 7. janúar 2020 tekin til umfjöllunar
Dagskrá
-
1. Skyndiúttekt á Mjóeyrarhöfn
Mál 2001001 Allur ferill málsins
Lögð fram sem trúnaðarmál skýrsla vegna skyndiúttektar Samgöngustofu á hafnaraðstöðu á Mjóeyrarhöfn.
-
2. 730 Mjóeyrarhöfn - Umsókn um stöðuleyfi, starfsmannaaðstaða Eimskips
Mál 1912110 Allur ferill málsins
Lögð fram stöðuleyfisumsókn Ara Benediktssonar/Mannvits hf fh. Eimskips, dagsett 12. desember 2019, þar sem sótt er um endurnýjun stöðuleyfis fyrir starfsmannaaðstöðu Eimskips í gámaeiningum innan hafnarsvæðis Mjóeyrarhafnar. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar erindinu til umsagnar hafnarstjórnar.
Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti stöðuleyfi en felur verkefnastjóra hafna að fara í heildstæða skoðun á aðstöðu á Mjóeyrarhöfn.
-
3. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2019
Mál 1901001 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fundargerð Hafnasambands Íslands frá 6.desember 2019.
-
4. Strandgata - Gamla bræðsla Mjóeyrarvík
Mál 2001014 Allur ferill málsins
Lagður fram tölvupóstur frá Sævari Guðjónssyni vegna Gömlu bræðslunnar í Mjóeyrarvík. Hafnarstjórn felur hafnarstjóra og verkefnastjóra hafna að fara yfir skráningarmál hússins, ræða við bréfritara um hans hugmyndir og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju.
-
5. Styrkbeiðni 2019 - Sjómannadagsráð Neskaupstaðar
Mál 1912095 Allur ferill málsins
Sjómannadagsráð Neskaupstaðar óskar eftir styrk vegna hátíðarhalda á sjómannadaginn 2019.
Hafnarstjórn samþykkir að styrkja Sjómannadagsráð Neskaupstaðar í samræmi við fjárhagsáætlun.