Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 646

13. janúar 2020, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2019 TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1904033 Allur ferill málsins

    Framlagt sem TRÚNAÐARMÁL yfirlit yfir rekstur málaflokka og framkvæmdir janúar - nóvember 2019 auk launakostnaðar og skatttekjur janúar - desember 2019.

    Yfirlitið kynnt.

  2. 2. Styrkbeiðni til handa Knattspyrnufélagi Fjarðabyggðar TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1908107 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað íþrótta- og tómstundafulltrúa sem trúnaðarmál um fjárhagsleg málefni Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna að málinu áfram og vísar erindi til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.

  3. 3. Vottun gervigrass í Fjarðabyggðarhöllinni

    Mál 1909149 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað íþrótta- og tómstundafulltrúi um gervigrasið í Fjarðabyggðarhöllinni. Fyrir liggur úttekt á Fjarðabyggðarhöllinni sem gerð var af Knattspyrnusambandi Íslands. Helstu niðurstöður eru þær að gervigrasið á leikvellinum er talið óviðunandi.

    Bæjarráð vísar erindi til umfjöllunar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd. Erindið verður tekið að nýju fyrir í bæjarráði.

  4. 4. Vinnustaðagreining 2019 TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1909129 Allur ferill málsins

    Lögð fram sem trúnaðarmál vinnustaðagreining fyrir Fjarðabyggð. Farið yfir helstu niðurstöður.

  5. 5. Jafnlaunagreiningar TRÚNAÐARMÁL

    Mál 2001021 Allur ferill málsins

    Framlagðar niðurstöður jafnlaunagreiningar fyrir sveitarfélagið. Gögn eru merkt sem trúnaðarmál. Jafnlaunagreining kynnt.

  6. 6. Sumaropnun í bókasöfnum Fjarðabyggðar, sumarið 2020

    Mál 1911151 Allur ferill málsins

    Vísað frá menningar- og nýsköpunarnefnd til afgreiðslu bæjarráðs kostnaði vegna sumaropnunar sem er ekki á fjárhagsáætlun menningarmála 2020.

    Bæjarráð vísar fjármögnun vegna opnunartíma bókasafna til fjármagns sem veitt er að liðnum sumarlaun starfsmanna.

  7. 7. Ósk um stuðning - Náttúruverndarsamtök Austurlands 50 ára

    Mál 1911097 Allur ferill málsins

    Fram lagt að nýju bréf Náttúruverndarsamtaka Austurlands, dagsett 18. nóvember 2019, þar sem óskað er eftir styrk vegna sérstaklega mikils umfangs á 50 ára afmælisári NAUST.

    Bæjarráð samþykkir að styrkja Náttúruverndarsamtökin um 50.000 kr. Tekið af liðnum óráðstafað 21 690.

  8. 8. Orkumarkaðir í mótun: Íslensk orka á alþjóðlegum mörkuðum

    Mál 2001080 Allur ferill málsins

    Boðað er til morgunverðarfundar Landsvirkjunar og greiningarfyrirtækisins CRU sem fjallar

    um stöðuna á raforku- og álmörkuðum á Íslandi og erlendis.

    Framlagt og kynnt en fundi er streymt af vefnum.

  9. 9. Drög að reglugerðum um fiskeldi

    Mál 2001093 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að þremur reglugerðum um fiskeldi, fiskeldissjóð og útboði eldissvæða.

    Vísað til bæjarstjóra og atvinnu- og þróunarstjóra til yfirferðar og gerðar umsagnar.

  10. 10. Fyrirspurn um eflingu innviða til skemmri og lengri tíma

    Mál 2001091 Allur ferill málsins

    Aðgerðarhópur ráðuneytanna hefur óskað eftir upplýsingum frá landshlutasamtökum og sveitarfélögum um stöðu innviða.

    Bæjarráð Fjarðabyggðar leggur þunga áherslu á það við ríkisvaldið að farið verði í heilstæða greiningu á innviðum landsins og því sem fór úrskeiðis í illviðri því sem gekk yfir landið í desember síðastliðnum. Á grundvelli þeirrar greiningar þarf svo að ráðast strax í endurbætur á flutningskerfi raforku, varafli og öryggisfjarskiptum með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi og að allir íbúar landsins sitji við sama borð hvað varðar grundvallar lífskjör. Í því samhengi birtist einnig nauðsyn þess að raforkuframleiðsla og dreifing raforku sé í opinberri eigu og slakað verði á hagnarkröfum til að fyrirtækin geti byggt upp varaafl og haldið úti mannskap um allt land til að takast á við erfiðar aðstæður því áðurnefnt óveður er ekki einsdæmi. Slík veður hafa komið áður og munu koma aftur í framtíðinni.

    Bæjarráð samþykkir að fela atvinnu- og þróunarstjóra og sviðsstjóra framkvæmdasviðs að taka saman og senda greinargerð um innviði í Fjarðabyggð.

  11. 11. Fundarboð um framtíð Hallormsstaðaskóla

    Mál 2001098 Allur ferill málsins

    Framlagt fundarboð frá Hallormsstaðaskóla um framtíð skólans sem haldinn 21. janúar nk. er boðað til fundar með stofnaðilum að Hússtjórnarskólanum á Hallormsstaðaskóla (nú Hallormsstaðaskóla) kl. 16.30 -18.00 á Hótel Héraði.

    Bæjarráð samþykkir að senda fulltrúa.

  12. 12. Upplýsingatæknimál -innleiðing á Onecomplain

    Mál 1810046 Allur ferill málsins

    Um nokkurt skeið hefur verið unnið að opnun á ábendingakerfi fyrir starfsemi sveitarfélagsins.

    Kerfið er formlega opnað þar sem formaður bæjarráðs sendir ábendingu til sveitarfélagsins og bæjarstjóri tekur við ábendingu.

  13. 13. Hafnarstjórn - 234

    Fundargerðin í heild

    Fundurgerð hafnarstjórnar frá 7. janúar 2020 tekin til umfjöllunar

    1. 13.1 Skyndiúttekt á Mjóeyrarhöfn2001001
    2. 13.2 730 Mjóeyrarhöfn - Umsókn um stöðuleyfi, starfsmannaaðstaða Eimskips1912110
    3. 13.3 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20191901001
    4. 13.4 Strandgata - Gamla bræðsla Mjóeyrarvík2001014
    5. 13.5 Styrkbeiðni 2019 - Sjómannadagsráð Neskaupstaðar1912095
  14. 14. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 21

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 7. janúar sl. tekin til afgreiðslu.

    1. 14.1 Málefni Tónlistarmiðstöðvar Austurlands 20181803046
    2. 14.2 Sumaropnun í bókasöfnum Fjarðabyggðar, sumarið 20201911151
    3. 14.3 Fundagerðir Héraðsskjalasafns Austurlands 20191903035