Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd

Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 21

7. janúar 2020, kl. 17:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
  • Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Ari Allansson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 646 liður 14

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 7. janúar sl. tekin til afgreiðslu.

Dagskrá

  1. 1. Málefni Tónlistarmiðstöðvar Austurlands 2018

    Mál 1803046 Allur ferill málsins

    Umfjöllun um málefni Tónlistarmiðstöðvar Austurlands, tónlistarsamning í breyttu umhverfi og ákvörðun um fulltrúa á aðalfund Tónlistarmiðstöðvarinnar, sem haldinn verður 15. janúar 2020 kl. 17:00.

    Menningar- og nýsköpunarnefnd tilnefnir Jón Björn Hákonarson og Snorra Styrkársson sem fulltrúa sveitarfélagsins á aðalfundinn.

  2. 2. Sumaropnun í bókasöfnum Fjarðabyggðar, sumarið 2020

    Mál 1911151 Allur ferill málsins

    Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir tillögu safnanefndar um fyrirkomulag sumaropnunar 2020 í bókasöfnum Fjarðabyggðar.

    Kostnaður vegna sumaropnunar er ekki á fjárhagsáætlun menningarmála 2020 og vísast til umfjöllunar í bæjarráði.

  3. 3. Fundagerðir Héraðsskjalasafns Austurlands 2019

    Mál 1903035 Allur ferill málsins

    Fundargerð aðalfundar Héraðsskjalasafns Austfirðinga lögð fram til kynningar.