Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd

Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 22

17. febrúar 2020, kl. 17:00 til 18:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
  • Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Stefán Aspar Stefánsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 652 liður 13

    Lögð fram til afgreiðslu fundargerð Menningar-, og nýsköpunarnefndar frá 17. febrúar sl.

  • Bæjarstjórn, fundur 287 liður 4

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 17. febrúar sl. með breytingu um skipan í starfshóp í lið 6 staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Skipun stjórnar Tónlistarmiðstöðvar

    Mál 2001188 Allur ferill málsins

    Skipa þarf Tónlistarmiðstöð Austurlands þriggja manna stjórn auk þriggja varamanna þeirra og skipta verkum hennar til samræmis við 3. gr. samþykkta frá 15. janúar 2020.

    Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að stjórn miðstöðvarinnar skipi Eydís Ásbjörnsdóttir, Gunnar Jónsson og Snorri Styrkársson og til vara Jón Kristinn Arngrímsson, Gunnlaugur Sverrisson og Valgeir Ægir Ingólfsson. Formaður Gunnar Jónsson, Snorri Styrkársson gjaldkeri og Eydís Ásbjörnsdóttir ritari.

  2. 2. Beiðni um stykr vegna rútuferða á leiksýningu 9. bekkjar Nesskóla

    Mál 2002072 Allur ferill málsins

    Beiðni um styrk frá 9. bekk Nesskóla vegna rútuferða í tengslum við uppsetningu á leikritinu Amma þó!

    Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir að greiða fyrir ferðir með rútu fyrir grunnskólanemendur á sýninguna Amma þó! skólasýningu.

  3. 3. Skapandi sumarstörf - Lokaskýrsla

    Mál 2001181 Allur ferill málsins

    Framlögð lokaskýrsla um verkefnið Skapandi sumarstörf 2019 sameiginlegt verkefni Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs.

    Menningar- og nýsköpunarnefnd lýsir ánægju sinni með vel heppnað verkefni síðasta sumar og bindur vonir sínar við verkefnið þróist og verði enn öflugara á komandi sumri.

  4. 4. Stúdenta- og ungmennaskipti milli Fjarðabyggðar (Fáskrúðsfjarðar) og Gravelines

    Mál 1901077 Allur ferill málsins

    Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til kynningar í menningar- og nýsköpunarnefnd minnisblaði íþrótta- og tómstundafulltrúa um stúdenta- og ungmennaskipti milli Fjarðabyggðar og Gravelines.

  5. 5. Eistnaflug 2020

    Mál 2001243 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að uppfærðum samningi við Millifótakonfekt ehf. um menningarhátíðina Eistnaflug. Tekið fyrir að nýju á næsta fundi menningar- og nýsköpunarnefndar.

  6. 6. Starfshópur um nýsköpun og atvinnuþróun

    Mál 2002099 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga formanns um skipan starfshóps um nýsköpun og atvinnuþróun í Fjarðabyggð þar sem óskað verður eftir aðkomu Nýsköpunarmiðstöðvar.

    Menningar- og nýsköpunarnefnd tilnefnir Valgeir Ægir Ingólfsson atvinnu- og þróunarstjóra, Jónu Árnýju Þórðardóttur og Ara Allansson sem fulltrúa í hópinn. Verkefni hópsins er að meta tækifæri til nýsköpunar í Fjarðabyggð, stuðning og styrkjum við frumkvöðla. Hópurinn óski eftir samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð og aðra stuðningsaðila í verkefninu. Starfshópurinn mun vinna út árið 2020. Nefndin felur bæjarritara að gera erindisbréf starfshópsins.

  7. 7. Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027

    Mál 1810136 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu endurskoðunar á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027. Lögð fram tillaga sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs um að leitað verði eftir ábendingum frá öðrum nefndum í stjórnkerfi Fjarðabyggðar um viðfangsefni sem ástæða væri til að skoða við gerð lýsingar aðalskipulagsins.

    Bæjarritara og stjórnsýslufulltrúa falið að yfirfara skipulagslýsingu og leggja fyrir nefndina að nýju.